Lesbók Morgunblaðsins - 19.03.1944, Page 13
LESBÓK M0RGUNBLAÐSIN3
117
0'J4t
enr
ÞAKHERBERGIÐ
FYRST MUNDI frú Parker sýna
þjer stóru stofurnar. Þú inundir
ekki fyrir þitt auma líf þora að
taka fram í fyrir henni, á meðan,
hún væri að lysa öllum þeirra
kostum og auðæfum mannsinst er
í þeim hafði búið undanfarin 8 ár.
l>á mundi þjer takast að stynja
npp þeirri játningu, að þú værir
* hvorki læknir nje tannlæknir.
Frú Parker mundi taka þessavi
játningu þannig, að tilfinningar
þínar í garð foreldra þinna yrðu
aldrei þær sömu og áður, foreldra
þinna, sem höfðu vanrækt svo
grátlega að ala þig þannig upp,
að þíi værir fær um að gegna störf-
um þeim, er hæfði stóru stofunun^
hennar frú Parker.
Þá mundir þú fara upp einn
stiga, og líta á 8 dollara-herbergið
á annari hæð. Eftir að hafa sann-
færst, af hegðun frii Parker, um
að herbergið væri vel þeirra 12
dollara virði, sem hr. Toosenberry
hafði altaf borgað fyrir það, þang-
að til hann fór til Florida, rjett
hjá Palm Beach, til þess að hafa
umsjón með appelsínu ekrum bróð-
ur síns, mundir þú tauta, að þú
vildir eitthvað ennþá ódýrara.
Ef þii lifðir af fyrirlitningu frú
Parker mundi hún næst sýna þjer
stóra herbergið hans hr. Skidders
á þriðju hæð. Það var ekki tómt.
ITann reykti vindlinga og skrifaði
leikrit í því allan daginn. En all-
ir, sem voru að leyta sjer að her-
bergjum voru látnir heimsækja
herbergi hans til þess að dást að
henginu þar. Og eftir hverja heim-
sókn var hr. Skidder vanur að
borga upp í húsaleigu sina af ótta
við þann möguleika að sjer yrði
sagt upp.
Þá-----þá —, ef þú stæðir enn
á öðrum fæti, með hendina kreista
utan um þrjá raka dollara í
vasa sínum, lýsandi hásróma yfir
hinni hræðilegu og vítaverðu fá-
tækt þinni, mundi frú Parker ekki
lengur verða leiðsögumaður þinn.
llún mundi gala hástöfum:
(,Clara“, snúa við þjer bakinu og
þramma aftur niður.
Ilin svarta mær, Clara, mundi
síð'an leiða þig upp háan stiga, sem,
lá upp á fjórðu hæð, og sýna þjer
þakherberið. Gólfflötur þess var
7x8 fet.
Það lá fyrir miðjum ganginum.
I því var járnrúmstæði, þvotta-
borð og einn stóll.
Þjer mundi finnast þessir fjór-
ir auðu veggir umlykja þig, eins
og líkkista. Þú mundir grjpa með
hendinni utan um háls þinn, standa
á öndilini, líta upp, eins og þú
stæöir niðri í brunni, — og anda
síðan enn einu sinni. I gegnum
litla þakherbergisgluggann sást
dálítill flötur bláu eilífðarinnar
„Tveir dollarar" mundi Clara
segja með sinni hálf fyrirlitlegu
og hálf auðmjúku röddu.
Dag einn kom ungfrú Leeson að
leyta sjer að herbergi. Hún bar með
s.jer ritvjel, sem yar altof stór
fyrir hana, því að hún var mjög
smávaxin, með augu og hár, sem
höfði^ haldið áfram að vaxa eftir
að hiin hætti því, og sem virtust
altaf segja: „Heyrðu, því gast þú
ekki fylgt okkur eftir.“
Frú Parker sýndi henni stóru
stofuna niðri. „1 þessu herbergi.
sagði hún, er hægt að hafa beina-
grindur, tilr......
„Jeg er hvorki læknir nje fann-
læknir“, sagði ungfrú Leeson, og
fór hrollur \im hann.
Frú Parker gaf hcnhi þetta ó-
tnilega, aumkvandi, glottandi, ís-
kalda augnatillit, sem hún geymdi
þeim, er hvorki voru læknar nje
tannlæknar, og leiddi hana upp á
aðra hæð.
„Átta dollarar?“, sagði uugfrú
Leeson. „Nei, nei, jeg er aðeitts fá-
tæk, vinnandi stúlka. Sýnið mjer
eitthvað ódýrara“.
Hr. Skidder stökk upp úr sæti sínu
og stráði vindlingaösku á gólfið,
þegar barið var að dyrum.
,(Afsakið hr. Skidder“, sagði frú
Parker, og brosti djöfuliega þegar
hún sá fölvan á andliti hans, ,,-Ieg
vissi ekki að þjer væruð heima.
Jeg ætlaði aðeins að lofa frúnni
hjerna að líta á hengið yðar“.
„Það er yndislegt“, sagði ung-
frú Leeson, og brosti nákvæmlega
eins og englarnir brosa.
Þegar þær voru farnar, varð hr.
Skidder önnum kafinn við að þurka
lit háu, dökkhærðu kvenhet.juna. nr
síðasta (óútgefna) leikritij . sínu,
og setja í staðinn aðra .smávaxne.
með mikið ljóst hár og fjörlegan
svip.
Þá gaf hið venjulega kall „Cl»ra-“
veröldinni til kvnna ástamlið í
pyngju ungfrú Leeson. ;
*
Svartur draugur kom og -þreif
í hana, dróg hana upp- himioháan
stiga, ýtti henni irtn í hvelfingu
með ofurlítilli Ijósglætu e'fst uppi
og muldraði þessi illgirnislegu,