Lesbók Morgunblaðsins - 19.03.1944, Side 16
120
LESBÓK MOROUNBLAÐSINS
Smælki
Kennariim: — lljálpaði ekki Jón
Gísla þjer með heimadæmin þín?
Siggi: — Nei.
Kennarinn: — Ertu viss um, að
hann hafi ekki hjálpað þjer?
Si£gi: — Ilann hjálpaði mjer
ekki. hann reiknaði þau einn.
★
Það var tuttuírasti afmælis-
dagrur stúlkunnar. Kærastinn hafði
lofað henni að senda henni stóran
hlómvönd. í honum áttu að vera
jafnmarjrar rósir og árin. sem hón
var búin að lifa. — Hann fór því
til blómakaupmanns, sem var <ram-
all kunninfri hans. ogr bað að senda
20 rósir heim til kærustunnar.
Þeírar liann var farinn safrði
kaupmaðminn við affrreiðslustúlk-
una:
,.Þessi maður hefit' verslað hjer
í tíu ár. Gefið honum því dálitla
uppbót, 10 rósum fleira en hann
bað um“. Afgreiðslustólkan hlíddi
þessu nákvæmlega.
Daginn eftir. fjekk unnustan, 20
ára gömul, HO rósir í afmælisgjöf.
Þess gerist víst ekki þörf að hafa
söguna lengri.
★
Lögregluforinginn: — Ilafið þið
náð strokufanganum ’
Lögregluþjónninn: — Nei. en við
hofum sært hann svo mikið, að
hann þorir ekki að láta sjá sig, þeg-
ar við erum einhversstaðar nálægt.
★
Bill í sjóliðinu: — Við hvaða
menn líkar þjer best?
Katie í ITollywood: — Þá, sem
eru orðnir blankir og vita hvenær
þeir eiga að segja góða nótt og fara
heim.
★
Skipstjórinn: — Það er engin
von lengur. Kkipið er að sökkva.
Eftir klukkustund eru allar jarð-
legar þjáningar okkar á enda.
Sjóveikur farþegi.. - Þökk sje
guði.
★
Tommi: — Pabbi, yrðirðu glað-
ur, ef jeg lækkaði útgjöld þín um
10 krónur.
Faðirinn: — Já, auðvitað.
Tommi: — Það er gott, jeg hefi
þegar lækkað þau ura það. Þú
lofaðir að gefa mjer. 10 krónur, ef
jeg fengi góðan vitnisburð hjá
kennaranum, en nú hefi jeg ekki
fengið hann.
Hjer sjáið þið fyrstu myndina, sem tekin var af söngkonunni
Dinah Shore og leikaranum George Montgomery, eftir að þau
giftu sig. Þau voru gefin saman í Las Vegas. — Montgomery
er nú .,corporal“ í ameríska hemum.
Söngkona og leikari gifta sig