Lesbók Morgunblaðsins - 12.11.1944, Side 5
LESBÓK MORG'UNBLAÐSINS
437
stökkva á þá vatni, því að
houuin þótti sárt, að þeir skyldu
hljóta illt fyrir hans skuld. Klukk-
an hálf ellefu skipaði Sigurður að
slökkva öll ljós. Guðmundur fór
þá út. Skömmu síðar var barið og
kastað inn staurum og stokkum.
Einnig voru tvær rúður brotnar.
I því bili sá Pjetur út um gluggann,
að Sigurður fór með skrímslið á
undan sjer austur með húsinu.
Stuttu síðar kom hann inn og þótt-
ist þá vera dasaður og hafa bundið
vofuna niður og Guðmundur sagði
sjer vera illt af særingum Sigurðar.
Síðan heyrðist ekki frekar í vof-
unni. Pjetur kvaðst hafa viljað
skjóta drauginn, en sjer hefði verið
bannað það. Þá gat Pjetur þess,
að Sigurður hefði síðan sagt sjer,
að draugurinn hefði sagt, að hann
væri sendur af Jóni á Belgsstöðum,
og að hann væri tilbúinn úr hrafns-
hjarta og hræfuglaskinnum og
mannsviti. Kvaðst Pjetur hafa
goldið Sigurði 5 ríkisbankaseðla
og haldið öllum í húsinu veislu.
Loks tók hann fram, að sjer
hefði nú verið sagt, að draugur-
inn hafi Guðmundur Ilannesson
verið og saman tekin ráð að hræða
sig, og því kæri hann þetta atferli.
Kæra þessi er vafalaust sönn í
öllum atriðum og kemur að miklu
leyti heim við Draugsrímu, og er
cflaust miklu sannári frásögn.
Sigurður Thorgrímsen bæjarfó-
geti ljet birta þcim fjelögum stefnu
10. janúar 1824 og mættu þeir hjá
honum tveim dögum síðar. Urðu
þær lyktir máls þessa, að þeir fje-
lagar fjellust á að greiða fjögur
ríkisbankamörk silfurs til fátækra 1
umdæminu „áður cn þrjár sólir
eru af himni, einn fyrir alla“. Ekki
cr þess getið, að Pjetur skyldi fá
bætur, eða hver greiddi kostnað
málsins, ef nokkur hefir verið,
Sýnir þctta. mál og kveðskapur
Sigurðar um það, að hann hefir
verið ærið alvörulítill og galsa-
mikill, og drykkfeldur, því til þess
virðist leikurinn hafa Arerið gerður,
að hræða vín út úr þessum ein-
feldningi. I rímunni segir:
llann ljet sækja heilan pott,
og hinum tók að veita.
Breiðfjörð þykir í bikar gott,
og bágt á með að neita.
Það er athyglisvert, að Pjetur
kallar Sigurð „bödkerlærling"
í þessari kæru. Má af því
ráða, að Sigurður hefir ekki dulið,
það, að hann lauk aldrei við beyk-
isnám sitt í Kaupmannahöfn. Það
hefir verið talið, að Sigurður hefði
lokið námi í þessari. iðngrein, en
hann viðurkenndi síðar fyrir rjetti,
að hann hefði ekki fengið sveins-
brjef, og verður það nánar rakið
síðar. Eins og áður getur kom Sig-
urður frá Danmörku til Isafjarðar
árið 1818, og varð beykir í Neðsta-
kaupstað. Ilefir honum sennilega
boðist þessi atvinna og þá horfið
frá námi, þó ekki væri hann full-
numa. Standa ennþá á Isafirði þau
hús, seni hann vann og dvaldi í,
og er talið, að til skanims tíma
hafi verið til þar smíðsgripir eftir
hann.
Um haustið 1824 fluttist Sigurð-
ur til Vestmannaeyja á vegurn
Westy Petreusar kaupmanns, sem.
þá átti verslanir bæði í Vestmanna-
eyjum og Reykjavík. Jeg hcf í
grcin í Ilelgafelli lýst dvöl Sigurðar
í Vestmannaeyjum, og sagt frá
kvonfangi hans þar.
Viðskilnaði Sigurðar við Reykja-
vík í þetta sinn er lýst með all-
miklum reyfarablæ af þeim Gísla
Konráðssyni og Jóni Borgfirðing.
Kæmi mjer ekki á óvart, þó frá-
sögn þeirra um sölu Sigurðar á
10 hdr. í Snóksdal væri orðum
aukin, eins og það er ótrúlegt, að
honum hafi vcrið synjað um vega-
brjef til Vestmannaeyja, sökum
skulda. i |
Ilinsvegar er ljóst, að Sigurður
hefir farið með nokkurri þykkju
frá Reykjavík, því að hann orti
við þann viðskilnað svo ósnotra
vísu, að Jón Borgfirðingur hefir
ekki treyst sjer til að taka hana
eða frásögnina í því sambandi upp,
úr ævisögu Sigurðar eftir Gísla
Konráðsson, og er þó fátt, sem hann
hefir látið fara fram hjá sjer.
Jeg sje mjer heldur ekki fært,
að tilfæra þá vísu. i
Þegar Sigurður hvarf frá Reykja-
vík að þessu sinni var hann 26.
ára gamall, og var þó orðinn þjóð-
frægur fyrir kveðskap sinn og
rímur.
Meira.
Smælki
Jón var nýtrúlofaður, cn hann
iðraðist þcss fljótlega og trúði
Sveini vini sínum fyrir því að
hann ætlaði að slíta trúlofuninni.
Ilann sagðist ætla að tala við unn-
ustuna strax í kvöld.
— Jæja, hvernig fór það, spnrði
Sveinn nokkram dögum síðar.
— Það fór illa, sagði Jón dapur
í bragði, jeg skriftaði fyrir henni
alla mína fortíð, en heldurðu að
það hafi dugað, Nei, jeg held nú
síður, og nú ætlum *við að gifta
okkur í næstu viku.
★
Skoti bað sjer konu og fjekk
hryggbrot. — Jeg get ekki gifst
yður, af því að jeg clska yður
ekki, sagði stúlkan, en jeg skal
vera yður sem systir.
— All right, sagði Skotinn. Hvað
fæ jeg mikið Jtegar pabbi deyr.
i