Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1946, Page 16
204
LtSBÓK MORGUNBLAÐSINS
Barnahjal
Kalli litli hefir eignast
lítinn bróðir. Hann horfir
með athygli á meðan mamma
er að þvo litla bróður og undr
ast hvernig höfuðið á honum
veltur máttlaust sitt á hvað.
En svo dettur honum gott í
hug:
— Mamma, ef höfuðið dett-
ur af litla bróður, má jeg þá
eiga það?
Nonni litli hefir gert eitt-
hvað af sjer og mamma ætlar
að refsa honum. En þá skríð-
ur hann undir hjónarúmið og
alveg upp að þili, þar sem
mamma getur ekki náð í hann.
Þegar pabbi kemur heim seg-
ir mamma honum að ná í
Nonna. Pabbi skríður inn und
ir rúmið, en þá heyrir hann
að Nonni hvíslar:
— Er hún að elta þig líka?
Það var á bolludaginn. Lár-
us litli var að eta nýbakaðar
bollur. Hann var nýkominn á
fætur. Hann spurði eftir pabba
sínum. Pabbi var ekki heima.
— Hvernig stendur á því að
pabbi fer frá okkur á hverj-
um degi?
— Pabbi verður að fara á
skrifstofuna og vinna þar á
hverium degi. Annars gætum
við ekki fengið svona góðar
bollur, sagði mamma. §
Litlu seinna er barið að dyr
um. Lárus hlevpur fram og
opnar. Aðkomumaður spyr:
— Er pabbi þinn hedma?
— Nei, hann er niðri á skrif
stofu að baka bollur.
icio
Knattspyrnufjelögin í Gautaborg. ,
NÝLEGA eru liðin 40 ár síðan
stofnaður var úrvalsflokkur knatt-
spyrnumanr^a í Gautaborg í Svíþjóð.
Á þessum 40 árum hefir flokkurinn
kept 4071 sinni við úrvalsfloicka
annara hjeraða í Sviþjóð, unnið 2196
kappleika, gert 655 jafntefli og tapað
1220 kappleikum. í þessum kapp-
leikum hefir hann skórað samtals
11.027 mörk á móti 7.261.
Afleiðing drykkjuskapar.
ÞÝSKUR vísindamaður hefir rann-
sakað afleiðingar drykkjuskapar í
einni ætt, frá konu nokkurii, serrl
fæddist árið 1740. Hún hjet Ada
Jurke og dó í byrjun nítjándu aldar.
Hún var drykkfeld og þjófgefin og
var mest á flækingi. En afkomendur
hennar eru taldir 834 og með aðstoð
yfirvalda hefir tekist að rekja ævi-
feril 709 af þeim. Þar á meðal voru
106 lausaleiksbörn, 142 betlarar, 64
höfðu verið á sveit, 181 kona var
skækja, og 76 höfðu verið dæmdir
fyrir glæpi, þar af 7 fyrir morð. Á
75 árum hafði þessi eina fjölskylda
kostað ríkið rúmlega 5 miljónir
marka.
Nokkur raunur.
Á MIÐÖLDUNUM voru bæði ridd-
arar og hestar þeirra í herklæðum
og hefir mönnum talist svo til að
járnið, sem fór í herklæði beggja hafi
verið um 90 kg. að þyngd. Þótt þetta
þyki nú nokkuð, er það ekkert á
móts við það sem fer í hertýgi nú á
tímum. Til þess að útbúa einn amer-
ískan hermann að fullu og öllu í
seinasta stríði, þurfti 11.160 kg. af
stáli.
Blóðlitur á sjó.
í ÍSLENSKUM annálum er þess
oft getið að blóðlitur hafi sjest á sjó,
og þótti jafnan vera mundu fyrir
stórtíðindum. Þess er -jafnvel getið,
að menn hafi komið í svo „blóðugan
sjó“ að færin hafi orðið rauð. Má
sjá, að menn hafa verið hræddir við
slíka fyrirburði. En nú er af sem áð-
ur var. Nú fagna sjómenn því, þegar
blóðlitur sje^t á sjó, því að hann boð-
ar góð tíðindi. Hann boðar það að
sildin sje í nánd. Því að blóðliturinn
á sjónum stafar af rauðátu.
Merkur dómtir.
DÓMARINN í St. Louis í Banda-
ríkjunum er kunnur að því að fara
sínar eigin götur og kæra sig koll-
óttan um það hvað aðrir segja. Ný-
lega kvað hann upp dórh, sem mörg-
um þótti einkennilegur. Maður nokk-
ur, Georg. Jameson hafði verið kærð-
ur fyrir það að stela 2 dollurum.
Hann meðgekk þjófnaðinn svo að
enginn efi var á því að hann var
sekuí. Og svo kom dómurinn: 24
mínútna fangelsiL Forsendur dóms-
ins voru þessar: í vikunni sem leið
var auðmaðurinn og bankastjórinn
Whitney dæmdur í. 5 ára fangelsi
fyrir þSð að draga sjer óheiðarlega
225.000 dollara. í samræmi við þetta
á hegningin fyrir það að stela 2 doll-
urum að vera 24 mínútur. Dómur-
inn yfir t^hitney bankastjóra þótti
mjög harður. Dómurinn yfir Jame-
son er nákvæmlega jafn harður mið-
að við það hvað hver um sig stal,
segir hinn rjettláti dómari að lokum.
Framtíðarlíf.
EF æskan gæti skilið hvers virði
útilíf er, þá mundu ekki jafn mörg
vandamál steðja að henni og stafa
af henni, sjerstaklega í borgunum.
Úti í náttúrunni geta menn drukkið
í sig andlega og líkamlega heilbrigði.
Útilífið, hið frjálsa útilíf er líf heil-
brigðinnar, það er framtíðarlíf.
(Eva Holm leikfimikennari).