Lesbók Morgunblaðsins - 22.11.1953, Blaðsíða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
701
armun á góðum og lélet’um skepn-
um, hvort heldur það eru hestar,
kýr, kindur eða svín. Það hafa
einnig verið haldin próf í því,
hverjum takist bezt að lýsa kost-
um og göllum skepnanna. Það eru
hyggindi, sem í hag koma, þegar
menn fara sjálfir að velja sér bú-
stofn, eða velja úr skepnur til þess
að senda á sýningar.
Auðveldari miklu er keppni í að
mjalta eða stjórna mjaltavélum.
Og þar geta bæði piltar og stúlkur
keppt. En svo eru til sérstakar
starfsíþróttir fyrir stúlkur. Þær
eru látnar keppa um það hverri
takist bezt að bera snyrtilega á
borð, hver sé snjöllust í að smyrja
brauð með áleggi, skreyta kökur,
strjúka lín o. s. frv.
Allt miðar þetta að því að finna
þá, sem skara fram úr í ýmsum bú-
skaparstörfum, utan húss og inn-
an. Hér er komin ný íþrótt með
sínar „stjörnur". Og sagan um
heimsmeistarakeppnina í Ontario
sýnir það, að hinar stóru „stjörn-
ur“ á því sviði, geta orðið jafn
frægar og beztu hlauparar eða
knattspyrnumenn.
Starfsíþróttamótin falla trauðla
inn í venjulegt félagslíf (máske að
undanteknu því að bera á borð
o. s. frv.), og hafa því ekki orðið
ávinningur fyrir hið innra félags-
líf hjá þeim félögum, er mest hafa
gengizt fyrir þeim. En það er hægt
að víkka starfssviðið, og sums stað-
ar hefir það verið gert. Og þá er
helzt um samkeppni viðvaninga að
ræða, og það er nú eldra en starfs-
íþróttirnar. Mörg ungmennafélög
hafa glætt félagslífið með því að
efna til samkeppni í upplestri, að
segja sögur og þessháttar, sem vel
er fallið til þess að koma ófram-
færnum á stað. Þannig er og hægt
að koma á samkeppni milli félaga
í einu fylki, eða þá um allt land.
Hér í Noregi hefir t. d. farið fram
leiklistarkeppni bvrjenda, á milli
ýmissa ungmennafélaga. Þá er og
skemmtileg tvímenningskeppni
(pilts og stúlku) í gróðursetningu
plantna. En þá þurfa fróðir menn
að líta vel eftir, því lítið gagn er
að því að koma mörgum plöntum
niður í jörðina, ef sumar standa
á höfði, en frá hinum þannig geng-
ið að þær ná ekki að þroskast.
Fram að þessu hefur keppni í
starfsíþróttum stöðugt færst í auk-
ana í Noregi. Fyrst er keppt um
meistaratitil innan héraðs, síðan
landsmeistaratitil, og seinast verð-
ur keppt í meistaramóti Norður-
landa. Næsta meistaramót Norður-
landa verður háð í Finnlandi á
sumri komanda. Þar verður keppt
í plægingu með hestum og traktor,
vélamjöltun og þríkeppni kvenna
(línstroku, hnepplusaumi og r.ð
smyrja brauð).
íslendingar eru sannarlega vel-
komnir til þessa leiks.
Molar
„Wall Street Journal" segir að bíl-
arnir sé nú orðnir svo fullkomnir, að
fárra endurbóta á þeim sé að vænta.
Það sem helzt væri nauðsynlegt að
finna upp, svo að þeir sé fullkomnir,
sé hemlar, sem þeir setji á bílstjórana.
—//—
Innbrotsþjófur fór inn í hús, þar
sem hann vissi að enginn var heima.
En er hann kom inn í stofu, rakst hann
á kött, sem var hálfdauður úr hungri.
Þjófurinn fór fram í ísskápinn og náði
þar í mjólk handa kisu, og svo skrifaði
hann með stórum stöfum á blað og
hengdi á stofuhurðina: „Ég skal kæra
ykkur fyrir dýraverndunarfélaginu“.
—//—
Kaþólskur prestur var spurður að þvi
hvort ekki væri syndsamlegt að nota
kinnalit.
— Sumir trúaðir menn halda að það
geri ekkert til, sagði hann, en aðrir
telja að það sé syndsamlegt. Ég er
enginn öfgamaður og þess vegna vil ég
fara bil beggja og segja að það sé
ekki syndsamlegt að nota kinnalit, ef
hann er borinn aðeins á aðra kinnina.
—//—
Nýar vinkonur voru að tala saman.
— Heima hjá mér, sagði önnur, er
það talið ógæfumerki fyrir unga stúlku
að ganga í bómullarsokkum.
— Hvers vegna? spurði hin. — Hvað
skeður?
— Ekkert.