Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.1954, Síða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.1954, Síða 14
242 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Upp úr jörðinni standa steinsteypuklumpar og járnflækjur Evrópu, því að það lá utan bann- línu Frakka. Árið 1305 neyddu Englendingar Dani, sem þá réðu yfir eynni, til að láta hana af hendi og héldu henni síðan til 1890, er þeir létu Þjóoverja hafa hana í skiftum fyrir Zansibar. Bretar settu nú setulið á land, þó að ekkert húspláss værx fyrir hendi. Urðu þá margir evar- skeggjar að láta hús sín af hendi og sjá svo um sig sjálfir. Tekið var til að víggirða Helgoland og safna birgðum af skotfærum og öðrum hernaðarnauðsynjum, og sögðu Bretar, að hér ætti að byggja ann- að Gíbraltarvígi. Hér var líka auð- Reimers og unnustu hans, sem var að gerast á meginlandinu og vera til taks, ef þörf gerðist. Til þess að halda uppi póstsam- bandi við meginlandið urðu Helgó- lendingar að taka að sér hafnsögu, hvort sem þeim var það ljúft eða leitt, en auðvitað var það lífshættu- legt starf vegna franskra fallbyssu- báta, sem alls staðar voru á verði. Að vísu fengu þeir starfann að jafnaði vel borgaðan. Ýmsar sögur eru sagðar frá þess- um ferðum og sumar allrómantísk- ar eins og t. d. sagan um Claus Reuners og unnustu hans, sem var dóttir vitavarðarins í Neuwerk á Norðursjávarströndinni norðan- verðri. Hún kom fyrir aukaljósum í vitanum, svo að lítið bar á og gat þannig varað hann við, ef hæt.ta var á ferðum. Um hávetur flutti Claus Reimers hana með sér í gegn um kúlnahríð Frakka til þess að halda brúðkaup sitt til hennar úti á Helgolandi. Þegar hann dó, var hann svo fátækur, að síðast varð hann að veðsetja heiðursmerki, sem hann hafði hlotið, til þess að draga fram lífið. Svo völt er stríðs- gæfan. í kjölfar þess hernaðarlega mik- ilvægis, sem Helgoland hafði öðl- azt, fylgdi pólitísk spákaup- mennska. Alls konar ævintýra- menn, njósnarar og pólitískir flótta -menn tóku að leggja þangað leið sína, er þeir þóttust ekki lengur öruggir um sig annars staðar. Með- al þeirra voru Gustav Adolf IV. hinn sænski og August Gneisenau hershöfðingi. Smyglið, sem blómgaðist sífellt meira, færði Helgolendingum stór- fé í hendur, en það varð til þess, að þeir fóru að slá slöku við sjó- mennskuna og gerast makráðir, og datt hún svo til alveg úr sögunni. En þessi velgengni virtist brátt vera á enda, því að nú tóku Danir að líta á þá sem óvini sína og hefta smyglferðirnar, svo að nú var'sú tekjulindin líka úr sögunni. Vetur- inn 1807—1808 ríkti því mesta nevð -arástand, svo að Englendingar urðu að gefa íbúunum matvæli til þess að koma í veg fyrir hungurs- neyð. Brátt fór þó að birta í lofti aftur, og um vorið kom hvert verslunarskipið á fætur öðru hlað- ið nýlenduvörum, sem skortur var orðinn á á meginlandinu, en þaðan komu á nóttunni bátar hlaðnir matvælum. Hófst nú fjörug vöru- skiftaverslun og mikið brask. Fiski- sagan Vcir fljót að berast, og ævin- týramenn og spekúlantar streymdu að úr öllum áttum. Helgolending- ar létu ekki sitt eftir liggja, svo að nær allir tóku einhvern þátt í braski og smygli, sem engin leið var að halda í skefjum lengur. Einstök skip lögðu leið sína frá Helgolandi austur í Eystrasalt, til Rússlands, Miðjarðarhafs og Suður -Ameríku, og skipulagður smygl- hringur rak starfsemi sína allt suður til Mið-Þýzkalands. Verð á húsum og lóðum steig gífurlega, og húsnæðiseklan var alveg ótrúleg. Sagt er frá rakara einum, sem hafðist við í stórri tunnu eins og Diogenes forðum, og margir urðu að hreiðra um sig í stórum tréköss- um undan varningi. Allir höfðu fullar hendur fjár, en þó var stund- um ekki hægt að fá helztu nauð- synjar nema fyrir okurverð, þó að allsnægtir væru af öðrum vöruteg- undum, sem annars voru mjög sjaldgæfar. Árið 1811 tókst Napóleon að verja strendur Hollands og Þýzka- lands svo vandlega, að verslun og smygl þangað var útilokað, en það varð til þess, að verslunarskip fóru að sigla fram hjá Helgolandi til Rússlands. Þegar svo meginlands-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.