Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.1954, Síða 18

Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.1954, Síða 18
246 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Turninn, sem stóðst allar sprengjuárásir langur og heitur umræðufundur i Slésvík. Voru þar m. a. mættir all- margir af prófessorum Kielarhá- skóla, og hröktu staðhæfingar klerksins, sem voru í öllu í algerri andstöðu við niðurstöður vísind- anna. En sr. Spanuth hristi bara höfuðið og lét ekki sannfærast um, að sér gæti skjátlazt. Heldur hann enn áfram baráttunni ekki ósvipað Hollander hinum ameríska, sem barðist við það áratugum saman að sanna, að rúnasteinninn frægi frá Kensington væri ósvikinn. — ★ — Nú var kútterinn kominn upp að mynni haínarinnar á Helgolandi. Það fyrsta, sem vekur athygli mína, er stórefhs stafli af bjór- kössum, svo að ég hef orð á því, að ekki muni vera ölbann eða héraðs- bann á eynni, en fæ þá skýringu, að ekkert neyzluvatn sé þar til, heldur þurfi að flytja það frá meg- inlandinu og sé þá engu meiri fyrir- höfn að flytja bjór til drykkjar en vatn. Þegar á land er komið, var strax auðséð, að hendur höfðu verið látn- ar standa fram úr ermum. Mikill hluti hafnargarðanna var þegar endurbyggður, en allstórt svæði, þar sem áður höfðu verið kaíbáta- byrgi, var eins og nýrunnið hraun. Á nokkrum stöðum sá á skipsílök upp úr sjónum. Af Neðribænum svonefnda, sem staðið hafði á und- irlendinu á suðurodda eyarinnar, sást hvorki tangur né tetur. Rúst- um húsanna haíði verið rutt burt, og skammt frá stóð múrsteinaverk- stæði, þar sem gömlu steinarnir úr rústunum voru malaðir til þess að búa til úr þeim nýa. Á öðrum stað standa vélar, og eru þar verka- menn að khppa niður alls konar járnarusl, sem flytja á til lands, því að þama er líka dýrmætt hráeíni, sem má nota. Þyrping af myndarlegum timb- urskálum stendur niður við höfn- ina, og draga þeir úr ömurleika eyðileggingarinnar. í þeim eru bú- staðir verkamannanna, sem eru um 300 að tölu, skrifstofur verkfræð- inga, samkomusalur, verslun og jafnvel póstafgreiðsla. Uppi undir klettunum standa nokkur ný hús, mjög einkennileg úthts. Það eru tilraunahús í nýum stíl samkvæmt, tillögum færustu arkitekta. Ég lét í ljós vonbrigði yfir því, að ekki skuli vera lengra komið húsbygg- ingunum, en ástæðan er sú, að það kostaði margra mánaða erfiði í stöðugum lífsháska að flytja burt og gera óvirkar ósprungnar sprengj -ur, sem lágu hundruðum saman um alla eyna og í höfninni, svo að hægt væri að byrja á framkvæmd- um. Einnig málmurinn úr þeim er seldur sem brotajárn og sprengi- efnið notað til friðsamlegra starfa. Ég klöngraðist eftir grjótskriðu, þar sem áður lágu breiðar tröppur upp á svonefnt Oberland, þar sem Efribærinn var áður. Þar stendur hvergi steinn yfir steini, nema hvað turn einn rambyggður, sem loftvarnabyssur höfðu staðið á, stendur hálfur, og hefur bráða- birgða vitaljósum verið komið fyrir í honum. Búið er að slétta úr húsa- rústunum eða flytja þær burt, og verkfræðingar eru önnum kafnir við að mæla fyrir nýjum götum og húsum. Af kirkju Helgolands stendur svo sem þriggja metra langt og hnéhátt múrveggjarbrot, og í kirkjugarðinum hggja leg- steinar á víð og dreif, brotnir. Á einum stað liggur dálítil hrúga af mannabeinum. í ófriði fá jafnvei hinir dauðu ekki að njóta grafar- róar. — Skammt frá stendur eitt beykitré, einmana og einstæðings- legt, síðasta tréð á Helgolandi. Héðan er ágætt útsýni yfir til baðstaðarins, sem kallaður er „die Dune“, og sést greinilega að sand- eyrarnar hafa áður verið áfastar við eyna, þó að nú sé nokkur hundruð metra breitt sund á milli. Þar er enginn á ferli, enda komið haust. Einstígi liggur niður fyrir klettana á vesturströnd eyarinnar, og geng ég þar niður. Þá sé ég enn betur tign og fegurð þessarar kletta -eyar, sem engin orð fá lýst nema orð Helgolendinga sjálfra: „Green es deát Lunn...

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.