Lesbók Morgunblaðsins - 09.10.1960, Page 6

Lesbók Morgunblaðsins - 09.10.1960, Page 6
498 LESBÓK MORGUNBLAÐSIN S Jötnarnir í Himalaja SÍÐAN Sir Edmund Hillary fór að undirbúa leiðangur sinn til þess að leita að hinum svonefnda snjómanni í Himalajafjöllum, hefir mikið verið talað og ritað um þessa furðuskepnu. Franskur mannfræðingur hefir t. d. dregið saman hið helzta, er menn vita, eða þykjast vita um þenna snjómann, og er hér útdráttur úr þeirri ritgerð. UM nokkra mánuði hefir sérstök nefnd, skipuð af vís>ndastofnun- inni í Moskva, verið að rannsaka hvað hæft muni vera í sögnunum um snjómanninn. Nefndarmönnum hefir ekki komið saman. Sumir halda því fram að snjómaðurinn sé til og sé nokkurs konar eftirlegu- kind, er staðið hafi ' stað meðan þorri mannkynsins he.'t áfram á þroskabraut sinni. Aðrir telja að sögusagnirnar um sniómanninn sé ekki annað en hégómi og hindur- vitni. Nefndin hefir gefið út tvo bækl- inga um þetta efni og á þeim má sjá, að sagnirnar um sniómanninn eru ekki bundnar við einn stað, heldur hefir hans orðið vart mjög víða. Nefndin hefir la?t kapp á að halda öllum sögusögnum til haga, straumur klofnað. Hefir önnur kvíslin haldið beint áfram, en hin hefir beygt norður með klettinum, og í þeim hraunstraumi er hellir- inn. Gæti eg trúað að hann næði alla leið upp undir hliðið á gígn- um ,eins og Þorv. Thoroddsen hef- ir gizkað á, og er þá mörgum sinn- um lengri, en menn hafa talið. Það væri mjög æskilegt að farið væri í hellinn með góð ljós og hann mældur. Mætti þá fara svo, að þarna bættist við enn eitt furðu- verk náttúrunnar á Snæfellsnesi, sem alla fýsti að sjá. Á. Ó. og þess vegna eru í þessum bækl- ingum sögur, sem sýnilega eru upp- spuni einn, en svo eru aðrar sögur, sem verðskulda að þeim sé ræki- legur gaumur gefinn. Ein af elztu sögunum er komin frá manni, sem Jóhann Schildt- berger hét. Hann hafði ferðazt um Asíu í 30 ár og kom beim til Bay- ern 1427. Hann sagði svo frá, að í fjallakeðju, sem sé á milli Síberíu og eyðimerkurinnar, hafist við „villimenn“, sem sé allir kafloðnir, nema í andliti og á hcndum. Þessi fjallakeðja er sennilega Altai- fjöllin. Schildtberger getur um höfðingjann Ediguei, og að honum hafi verið gefin „villimannahjón“. Síðan segir hann: „Eg hefi verið í þessu landi og vissi um þetta, og þegar eg var með Tchekra kon- ungssyni, þá sá eg þau með mínum eigin augum.“ Það er kunnugt að þessi Tchekra var uppi, og Schildt’oerger hefir gefizt gott tækifæri til bess að sjá villimennina, því að Tvrkir höfðu hertekið hann og gáfu hann Edi- guei konungi, eins og villimenn- ina.-------- Vér skulum nú athuga yngri heimildir. Til er ritgerð frá árinu 1930 eftir prófessor Jamtsanano Hann segir þar frá því að Mongólar hafi sagn- ir um snjómanninn og telur að þessar sagnir séu alveg sannar, en getur þó ekki komið með nein dæmi, er staðfesti það. Jötunmyndin úr tíbetönsku dýrafræð- inni frá 18. öld. Árið 1958 ritaði prófessor Rintchen í Ulan Bator í Mongolíu um þetta efni. Segir hann þar frá frá því að menn sé sannfærðir um að snjómaðurinn sé til, en kemur ekki með neinar beinar sannanir fyrir því. Hann hefir og frásagnir rússneskra hermanna, sem gættu landamæranna í Pamir-fjöllum. Þessir hermenn segjast hafa séð snjómanninn, en frásagnir þeirra eru heldur ruglingslegar. Þó eru þar tvær undantekningar. Önnur þeirra er frá dr. Kara- petian herlækni, sem var í Dag- hestanfjöllum í Kákasus á ofan- verðu árinu 1941. Hann segir að lögreglan þar hafi komið með mann til sín og beðið sig að skoða hann. Þessi maður var allsnakinn, enda þótt þetta væri um hávetur. Lögreglan helt að hann væri njósn- ari. „Ekki var að efa að hér var um mann að ræða“, segir dr. Karpetian, „en hann var kafloðinn á brjósti og baki. Háraliturinn var brúnn, en annars eru allir svart- hærðir á þessum slóðum. Þess má og geta að loðnan var líkust bjarn- héðni og hárin 2—3 sm. á lengd.“

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.