Lesbók Morgunblaðsins - 20.09.1964, Page 2
ÆMff llBk
SVIP-
MVND
* egar Anastas Mikojan varð
forseti Sovétríkianna k liðnu sum
ri og Leóníd Breznev lét af því em
bætti — að beiðni Krústsjovs — til
að helfifa siff formannsstarfinu í
Komxnúnistaflokknum, var bað ná
lega samdóma álit erlendra sér-
fræðinffa um 90vézk málefni. að
moguleikar Breznevs á að verða
eftirmaður Knistsjovs hefðu mjög
aukizt.
Bieytingin er ahnennt talin vera
fyrsta skrefið til að tryggja „rétt
an“ eftirmann. Álitið er að Krús>t-
sjov hafi gengið þannig frá hnút-
unum, að þrír nánustu samstarfs-
merin hans tækju við þremur veiga
mestu embættum í ríkinu, næst
hans eigin embætti — Breznev
yrði formaður fiokksins, Aleksei
N. Kósygin yrði aðstoðarforsaet Ls-
ráðberra og Mikojan yrði forseti
rikisins.
Menn gengu yfirleitt út frá því, að
meS þessari ráðstöfun hefði Krústsjcnr
fyrir augum tvö markmið; hann gæ-ti
varið sjálfan sig fyrir þrýstingi frá svo
að segja öllum hliðum, og þegar valda
skeiðj hans væri lokið mætti skipta
valdtnu á þrjár hendur, Breznev tseki
við flokknum, Kósygin fengi fram-
kvæmdavaidið og Mikojan héldi
stöðu sinni sem æðsti maður Æðsta-
ráðsins (þjóðþingsins). Þannig var
hugmyndin sett fram, og vel má vera
að hún reynist vera samkkæm veru-
ieikanum, en í Moskvu er allt á huldu
uni merkingu þessara mannaskipta
enn sem komið er. *
Að því er varðar Leóníd Breznev,
þá vilum við um helztu atriðin í opin-
berum ferli hans, embætti sem hann
hefur gegnt, staðina sem hann hefur
hein.sótt eða starfað á, en við vitum
sama og ekkert um manninn sjálfan.
Víð vitum, að næst Krústsjov er
hann valdamesti maður í miðstjórn
Kommúnistaflokksins og að miðstjórn
in befur hið raunverulega vald í
Savétríkjunum. Við vitum líka, eða
leljum okkur vita, að hann fjallar um
roálefni sem varða Iögregluna, herinn,
starfsmenn rikisstjórnarinnar og skipu
lag.smál ríkisins yfirleitt. Þetta veitir
honum að sjálfsögðu feiknamikil völd.
En við vitum ekkert uim hugmyndir
hans — og ertun ekki einu sinni örugg
ir um að hann hafi nokkrar sjáLfstæð
ar hugmyndir.
Á öllum starfsferli sínum hefur hann
sagt svo fátt opinberiega um grund-
vallarstefnumál, að helztu erlendu sendi-
ráðin í Moskvu, sem venjulega fylgj-
ast vel með slíkum málum, eiga mjög
erfitt með að skilgreina afstöðu hans
og stefnu í þeim hugmyndafræði-
iegu deilum sem verið hafa efst á baugi
í kommúnistaheiminum um langt skeið.
Hann hefur bergmálað sjónarmið
Krústsjovs, en ýmsum finnst hann
hafa gert það máttleysisiega og án
sannfæringar. í sumum mikitsverðum
málum, — t.d. að því er varðar eftiriit
LEONID BREZNEV
flokksins með Iistamönnum — hefurhann
stundum gefið í skyn, að hann sé með
mæltur strangari aga, en Krústsjov
heíur líka stundum tekið þá afstöðú.
Við vitum sem sé að Breznev hefur
alla tíð stutt Krústsjov dyggilega. En
við vituim ekki, hvort ha.nn mundi
halda fast við stefnu hans að honum
frágengnum, eða hvort hann yrði jafn
dyggur þjónn annarrar stefnu. Gáta
Breznevs er gáta allrar þeirrar kyn-
slóðar sovézkra Ieiðtoga sem hann til
heyrir. Menn vita ekki miklu meira
um félaga hans eða keppinauta í mið
stjórninni — menn eins og Kósygin
og Podgorny (sem er annar nákominn
samstarfsmaður Krústsjovs). Það er
undravert hlve keimlíltir allir þessir
menn eru í útliti, klæðaburði og ailri
framkomu. Þeir eru gæddir sömu
mýktinni, klæðast sams konar dökkum
fötum, hafa sama suðandi raddhreim
inn þegar þeir flytja ræður, bera sama
alvörusvipinn og eiga sama ásetniag-
inn um að láta ekki á sér bera — til
að skyggja ekki á höfuðpaurinn.
Þetta eru hinir nýju stjórnmálamenn
Sovétríkjanna — þeir minna einna
helzt á forstjóra stórra fyrirtækja á
Vesturlöndum, einbeittir, vinnusamir,
duglegir og séðir, en án nokkurs áber-
andi persónuleika.
Kreznev virðist samt skera sig úr
að því leytí, að hann er óþvingaðri,
persónutegri og hýrari á brá en flestir
félagar hans. Á ferðalögum aínum er-
lendis og við hátíðleg tækifæri heima
fyrir hefur hann fengið orð fyrir að
beita a/ipuðum kumpánabrögðum og
þeim sem helzt einkenna bandaríska
stjómmálamenn á kosningaferðalög-
uro,
Við þau mörgu hátíðlegu tæikifæri,
þegar æðstu valdamenn í Moskvu
koma inn í móttökusal í Kreml í litl-
um hnapp þétt á haela Krústsjovs,
stingur hið opinskáa og laglega and-
lit ,Breznevs og viðkvæmnislegt göngu
lag hans skemmtilega í stúf við stifa
cg drungalega framgöngu félaga
hans. En að dasmi annarra opinberra
em.bættismanna í Sovétríkj unum hefur
Breznev haldið einkaLífi aínu leyndu
fyrir forvitnum erlendum sendimönn-
um og venjulegum sovétborgurum.
Hann býr ásamt konu sinni, Viktoríu,
í einu af sex Iystihúsum sem ætluð eru
æðstu mönnum Sovétríkj anna á Lenin-
hæðum, íbúðarhverfi sem stendur í
brattri hlíð handan við Moskvu-fljót
með útsýn yfir borgina. Hann á a.m.k.
eina dóttur, Galínu, sem sögð er vera
sérlega lagleg, og ungan kvæntan son,
Júrí, sem er verkfræðingur. Tengda-
dóttir hans kennir ensku og dvaidist
nýiega nokkra mánuði í Lundúnum —
og það var ævintýri sem „skaðaði
hana ekki“, að því er Breznev sagði
einum gesta sinna.
Og þetta má heita allt sem við vitum
um einkalíf Leónids Breznevs, sem nú
er á 59. aldursári. Sagt er að hann
sé með köfium í roeira lagi ölkær, og
þegar hann var í opinberri heimsókn
til Marokkó f ársbyrjun 1901 gengu
sögur um, að hann hefði gengið undir
aðgerð vegna hjartasjúkdóms, en það
var að sjálfsögðu aldrei opinberlega
staðfest.
Póiitísk ævisaga Breznevs á það
sammerkt við einkalíf hans, útlit og
hátterni, að hún er í fuLlu samræmi við
hefðbundna forskrift fyrir sovézka
framámenn. Svo keimlíkar eru hinar
pólitísku ævisögur helztu leiðtoga
Sovétríkjanna, t.d. eins og þær eru
skráðar í hinni „Miklu Sovét-alfræði-
orðabók", að við sjálft liggur, að þær
gætu hver fyrir sig átt við þá aila.
Ijeóníd Iljitsj Breznev var 11 ára
gamall drenghnokki, þegar bolscK'íka-
byltingin í Rússlandi brauzt út. Hann
var sonur stáliðnaðarmanns í hinum
litla námubæ Kamenskoje — sem
seinna var nefndur Dnéprodzersjinsk
— á bökkum Dnépr-fljóts. Hann vann
um skeið í stáliðjuveri, gerðist síðan
landmælingamaður, og fluttist loks
tíl Moskvu þar sem hann varð nem-
and>' við Landbúnaðarstofnunina. 25
ára gamall var hann orðinn meðlimur
í Kommúnistaflokknum.
Snemma á ferli sínum sem flokks-
starfemaður varð Breznev bæjarstjóri
í heimabæ sínum, og svo gerðist það
árið 1938 að hann hækkaði í tign og
íélck hið gamla starf Krústsjovs sem
aðalritari Kommúnistaflokks Úkraínu.
Síðan hefur hann alla tíð verið mjög
handgenginn Krústsjov. Á stríðsárun-
um var hann póiitískur kommissar í
18. herfylki Rauða hersins (í Úkraínu),
og eftir stríð tók hann aftur við starfi
sínu sem flokksforingi, fyrst í Úkraínu,
síðan í Moldavíu.
Árið 1952, ári áður en Stalín féll frá,
var hann skipaður meðlimur í .mið-
stjórn Kommúnistaflokksins og vara-
meðlimur Forsætisráðsins. Þegar
Krústsjov varð aðalritari flokksins og
fékk í hendur stóraukið vald til em-
bættisveitinga, var eitt af fyrstu verk
um hans að skipa Breznev pólitískan
koramissar alls Rauða hersins og síðar
yfírkommissar hermáiaráðuneytisins.
Árið 1954, skömtnu eftir að Krústs-
jov hóf framWvæmd áætíunar sirmar
um „Iandnám“ í Kazakstan, varð
Breznev foringi Kommúnistflokksins
í Kazakstan og hafði yfirumsjón með
framkvæmd áætlunarinnar. Tveimur
órum síðar var búið að rækta 87 millj-
ón ekrur, og Breznev hafði fæirt sönn
ur á að áætiun Krústsjovs var fram-
kvæmanleg, þrátt fyrir viðvaranir
sérfræðinganna. Þegar allt fór út um
þúfur (skömmu síðar) var hann aftur
kominn til Moslilvu og búinn að tryggja
sér mikinn og bjargfastan orðstír sem
afburðaduglegur skipuleggjari og verð-
mætur aðstoðarmaður Krústsjovs.
Árið 1960 tók .Breznev við embætti
Kliments Vorosjílovs sem forseti Sovét
rikjanna um þær mundir sem viðsjárn
ar út af U-2 njósnafiugvéiinni stóðu
sem hæst. Hann varð að láta af hendi
sæti sitt í miðstjórn Kommúnistaflokka
ins þá, en fékk það aftur I júní 1963
— tveimur mánuðum eftir að Froi’. R.
Kozlov, sem sagður er hafa verið and-
vigur ýmsum stefnumálum Krústsjovs,
fékk hjartaslag og hætti pólitíslcum
aískiptum.
Framihald á bls. 4.
Utgelanm: H.t. ArvaKur, KeylqavIK.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vicur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: AðalstræU 6. Sími 22480.
2 LESBÖK MORGUNBLAÐSINS
29. tbl. 1964