Lesbók Morgunblaðsins - 20.09.1964, Blaðsíða 7
l»essi imynd var tekin á hljómJeikum „The Telstars“ í Austurbæ jarbióí. Talið írá vinstri: Juhu,
JStig, Claus og Mik.
Góðir eestir a ferð
Spiallað við dötnsku systurnar Leciu
og Lucienne
Við hittum þær íyrir
skommu dönsku systumar
Leciu og Lucienne, sem hér
hafa dvalizt að undanfömu
og haldið hljóanleika ásamt
unglingahlj ómsveitinni
„The Telstars." Umboðs-
maður þeirra, Jörgen Krul,
kynnti okkur fyrir þeim,
en hann er forstöðumaður
,,pop“-deildar Skandinav-
isk Musikbureau. Hugtakið
„pop“ er stytting úr orðinu
popular (vinsæll) og er
haft yfir nýjustu dægurlö'g-
in.
Kvöldið áður en við heim-
Bóttum stúikuinar, höfðu þær
haldið aðra hljómleika sina hér
og vakið slíka hrifningu, að
þær höfðu ekki haft svefnfrið
ella nóttina! Siminn hafði
ekki þagnað, og íyrir utan
Btóðu unglingarair í hópum og
báðu um að fá að komast inn.
Stúikumar litlu, seim ekki eru
nerna 12 og 15 ára gamlar, eru
Bkiljardaga litt geinar fyrir
Bamkvæmislíf, eins og vafa-
laust hefur verið til ætlazt,
og reyndu því að láta ásælni
aðdáendaiiðsins sem vind um
eyru þjóta.
Þessar ungu systur hafa þeg
ar getið sér mjög góðan orð-
etír í Danmörku og reyndar
viðar fyrir sinn fágaða og líf-
Jega söng. Kvað Jörgen Krul
|>að ekkert vafamál, að þær
mundu komast langt á íráma-
brautinni, þegar fram liðu
Btundir. Þær hafa sent frá sér
tiljómpiöku, sem notið hefur
mikilla vinsæfda. Lögin á plöt-
\inni hafa samið Otto Brand-
enburg og Nat Russell, en þeir
eru báðir íslendingum að góðu
kumnir, — hafa komið hingað
til skemmtanaha'Jds.
Jörgen Kiul gaf okkur allar
upplýsingar um stúlkumar, en
þæa- kinkuðu kolli tii sam-
þykkis við og við.
Stúlkurnar eru frá Avadöre
í nágrenni Kaupmannahafnar.
Lucienne, sú yngri, er enn
í skóla, en Lecia hjálpar til
'viö heimilisstöa-fin. Hún hefur
sungið allt frá því hún var
3 ára, en þá skemmti hún ná-
grönnunum með lögum, sem
hún iærði á augabragði úr út-
varpimu. Áhuginn á tonlistinni
vaknaði þó fyrir alvöru, þegar
henni var géfin í afmæiisgjöf
ensk plata. Lagið og textann
Jærði hún utanað á samri
stund.u —" en skildi að sjáJf-
sögðu eltkert í því, sem hún
var að fara með, því að hún
var aðeins 4 ára g>öm'Ul!
Það kom snemma i Ijós, að
litla systir hafði líka sömu
sönghæfileikana til brunns að
bera. Þegar hún var sex ára,
var hún ósjáJfrátt farin að
syngja miiliröddina með Lec-
iu. Þá kunngerði Lecia íor-
eldrum sínum, að hún heiði
fengið sér atvinnu við að bera
út blöð. Tilgangurinn: að
vinna sér inn íyrir gítar!
Eftir að þær höfðu eignazt
gítarinn, vocru þær oft beðnar
um að taka lagið og það igerðu
þær — og haía gert allt til
þessa dags. Þær hafa tekið
þátt í fjölmörgum söngmótum,
og sagði Jörgen Krul, að þær
hefðu 43 sinmum borið sigur
úr býtum í slikum mótum!
Hljómplatan þeirra kom út
11. maí s.l. Á henni eru lög-
.. in „Wishing to kiss you“ og
„Waiting on the corner“. Fyrra
lagið hefur heyrzt nokkrum
sinnum i útvarpinru hér og virð
ist væniegt til vinsælda. Segja
má, að óvenjuvel hafi til tek-
izt með þessa fyrstu plötu, en
í rauninni var það tilviljun ein,
sem réði því. Stúlkumar voru
staddar i skrifstofu „His Mast
er’s Vodce" plötuútgáfiufyrir-
tækisins og höfðu komið þang
að til skrafs og ráðagerða. Þar
var líka staddur af tilviljun
hinn kuinni söngþari Otto
Brandenburg og þegar hann
hafði heyrt stúlkumar syngja,
varð hann mjög hrifinn og bað
stúlkumar að koma daginn eft
ir með gitarinn sinn með sér.
Þær gerðu það og Otto ,Brand-
enþurg tók fram penna og
nótnapappir og samdi á næstu
tveimur dögum fyrir þær lög-
in tvö, sem þær sungu inn á
fyrstu hljómplötu sína. Sjálf-
ur samdi hann lika textann
við annað lagið, en Nat Russ
ell samdi textann við hitt.
Stúikurnar hafa átt góðan
hauk í horni þar sem Otto
Brandenburg er. Það var ein-
mitt hann, sem átti mestan þátt
í því að þær komu hingað til
lands. Þegar Haukur Morthens,
sem er góðkunningi Ottós, var
að svipast um eftir skemmti-
kröftum fyrir ísienzka ung-
hnga, mælti Ottó sérstaklega
með stúlkunum en það varð
til þess að þær 'komu hingað
til lands, ásamt unglingahljóm
sveitinni „The Telstars“.
Piltarnir, sem skipa hljóm-
sveitina, haía þaö að aðalat-
vinnu að leika fyrir dansi og
halda hljómleika. Jörgen sagði
okkur, að samkeppni slíkra
hljómsveita í Danmörku væri
geysimikil. Þar eru rúmlega
þúsund „pop“ hljómsveitir.
— Hljómsveitir, sem eru að
cts®&ólt
byrja, spila fyrst i stað ókeyp-
is meðan þær eru að skapa sér
nafn, sagði Oörgen — og ef
heppnin er með, er þessi at-
vinnuvegur hinn arðvænlegasti.
„The Telstars“ hafa um langt
skeið verið í hópi beztu ung-
lingahljómsveita Danmerkur.
Þeir eru talsvert frábrugðnir
flestum öðrum hljómsveitum
— þeir leika að mestu leyti lög
eftir sjálfa sig — nema að sjálf
sögðu, þegar um annað er beð-
ið, eins og t.d. bítlamúsikina
hér. Allur þorri þessara hljóm-
sveita leggur annars allt ofur-
kapp á að stæla bítlana og „The
Rolling Stones“ bæði í útliti
og flutningi tónlistarinnar.
Unga íólkið í Danmörku er
líka mjög hrifið af þeirri teg-
und tónlistar og sækir mikið
dansstaði og hljómleika, því að
útvarpið og sjónvarpið leika
yfirleitt ekki „bítlamúsik". í
sjónvarpinu hefur ekki heyrzt
hítlamúsik í tvö ár, — eða síð
an hinn^ nýji sjónvarpsstjóri
tók við. Áður hafði verið í sjón
varpinu vinsæll músikþállur
undir stjórn Ottós Leisners, en
hann var þá látinn hætta. —
í útvarpinu er sérstök músik-
dagskrá — program III — og
þar á að vera músik fyrir alla.
Þessi dagskrá hefur hinsvegar
eingöngu mótazt af smekk þess
sem um dagskrána sér, þannig
að músi.k eins og allur þorri
unga fólksins vill heyra, heyrist
aldreL
Að lokum sagði Jörgen Krul:
— Við erum mjög hriíin af
þeim móttökum, sem við höf-
um þegar fengið, og við 'hlökk
um mikið til að ferðast út á
landsbyggðina. Tromm.uleikari
hljómsveitarinnar gat að vísu
ekki verið með í þessari ferð
vegna veikinda, en sá sem
leysti hann af hólmi íhefur
ekki snert trommur i tvö ár.
Þrátt fyrir þetta hefur allt
■gengið að óskum hingað til —
já, næstum þvi allt. Það bilaði
reyndar hátaiarakerfið okkar
á fyrstú hljómleikunum í Aust
urbæjarbíói og við bjuggumst
þá satt að segja við hinu versta
af áhorfendum. Þeir voru hins
vegar hinir rólegustu meðan
Ivið vorum teknir að gerast ör-
væntingarfuJlir, — ég get sagt
þér það, að komi svona nokk-
uð fyrir á hljómleikum í Dan-
mörku, er hljómsveitin óðara
pípt niður. En við skulum
sleppa að minnast á það.
t* J #
® ^ r •
eC'••• I
.ij.* ®'
‘vVj •*.» «
í‘» > •
•
.•V'.u«-íc*’» *
r« i> ■ •
ms
i #
B H * I § ~
• *
i \ ■ 4 • y *
ik*
#9
iinsku systurnar Lecia og Luc ienne. (Ljciim. Mbl. I / Þ.)
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS ?
29. tbL 1964