Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 20.09.1964, Qupperneq 7

Lesbók Morgunblaðsins - 20.09.1964, Qupperneq 7
l»essi imynd var tekin á hljómJeikum „The Telstars“ í Austurbæ jarbióí. Talið írá vinstri: Juhu, JStig, Claus og Mik. Góðir eestir a ferð Spiallað við dötnsku systurnar Leciu og Lucienne Við hittum þær íyrir skommu dönsku systumar Leciu og Lucienne, sem hér hafa dvalizt að undanfömu og haldið hljóanleika ásamt unglingahlj ómsveitinni „The Telstars." Umboðs- maður þeirra, Jörgen Krul, kynnti okkur fyrir þeim, en hann er forstöðumaður ,,pop“-deildar Skandinav- isk Musikbureau. Hugtakið „pop“ er stytting úr orðinu popular (vinsæll) og er haft yfir nýjustu dægurlö'g- in. Kvöldið áður en við heim- Bóttum stúikuinar, höfðu þær haldið aðra hljómleika sina hér og vakið slíka hrifningu, að þær höfðu ekki haft svefnfrið ella nóttina! Siminn hafði ekki þagnað, og íyrir utan Btóðu unglingarair í hópum og báðu um að fá að komast inn. Stúikumar litlu, seim ekki eru nerna 12 og 15 ára gamlar, eru Bkiljardaga litt geinar fyrir Bamkvæmislíf, eins og vafa- laust hefur verið til ætlazt, og reyndu því að láta ásælni aðdáendaiiðsins sem vind um eyru þjóta. Þessar ungu systur hafa þeg ar getið sér mjög góðan orð- etír í Danmörku og reyndar viðar fyrir sinn fágaða og líf- Jega söng. Kvað Jörgen Krul |>að ekkert vafamál, að þær mundu komast langt á íráma- brautinni, þegar fram liðu Btundir. Þær hafa sent frá sér tiljómpiöku, sem notið hefur mikilla vinsæfda. Lögin á plöt- \inni hafa samið Otto Brand- enburg og Nat Russell, en þeir eru báðir íslendingum að góðu kumnir, — hafa komið hingað til skemmtanaha'Jds. Jörgen Kiul gaf okkur allar upplýsingar um stúlkumar, en þæa- kinkuðu kolli tii sam- þykkis við og við. Stúlkurnar eru frá Avadöre í nágrenni Kaupmannahafnar. Lucienne, sú yngri, er enn í skóla, en Lecia hjálpar til 'viö heimilisstöa-fin. Hún hefur sungið allt frá því hún var 3 ára, en þá skemmti hún ná- grönnunum með lögum, sem hún iærði á augabragði úr út- varpimu. Áhuginn á tonlistinni vaknaði þó fyrir alvöru, þegar henni var géfin í afmæiisgjöf ensk plata. Lagið og textann Jærði hún utanað á samri stund.u —" en skildi að sjáJf- sögðu eltkert í því, sem hún var að fara með, því að hún var aðeins 4 ára g>öm'Ul! Það kom snemma i Ijós, að litla systir hafði líka sömu sönghæfileikana til brunns að bera. Þegar hún var sex ára, var hún ósjáJfrátt farin að syngja miiliröddina með Lec- iu. Þá kunngerði Lecia íor- eldrum sínum, að hún heiði fengið sér atvinnu við að bera út blöð. Tilgangurinn: að vinna sér inn íyrir gítar! Eftir að þær höfðu eignazt gítarinn, vocru þær oft beðnar um að taka lagið og það igerðu þær — og haía gert allt til þessa dags. Þær hafa tekið þátt í fjölmörgum söngmótum, og sagði Jörgen Krul, að þær hefðu 43 sinmum borið sigur úr býtum í slikum mótum! Hljómplatan þeirra kom út 11. maí s.l. Á henni eru lög- .. in „Wishing to kiss you“ og „Waiting on the corner“. Fyrra lagið hefur heyrzt nokkrum sinnum i útvarpinru hér og virð ist væniegt til vinsælda. Segja má, að óvenjuvel hafi til tek- izt með þessa fyrstu plötu, en í rauninni var það tilviljun ein, sem réði því. Stúlkumar voru staddar i skrifstofu „His Mast er’s Vodce" plötuútgáfiufyrir- tækisins og höfðu komið þang að til skrafs og ráðagerða. Þar var líka staddur af tilviljun hinn kuinni söngþari Otto Brandenburg og þegar hann hafði heyrt stúlkumar syngja, varð hann mjög hrifinn og bað stúlkumar að koma daginn eft ir með gitarinn sinn með sér. Þær gerðu það og Otto ,Brand- enþurg tók fram penna og nótnapappir og samdi á næstu tveimur dögum fyrir þær lög- in tvö, sem þær sungu inn á fyrstu hljómplötu sína. Sjálf- ur samdi hann lika textann við annað lagið, en Nat Russ ell samdi textann við hitt. Stúikurnar hafa átt góðan hauk í horni þar sem Otto Brandenburg er. Það var ein- mitt hann, sem átti mestan þátt í því að þær komu hingað til lands. Þegar Haukur Morthens, sem er góðkunningi Ottós, var að svipast um eftir skemmti- kröftum fyrir ísienzka ung- hnga, mælti Ottó sérstaklega með stúlkunum en það varð til þess að þær 'komu hingað til lands, ásamt unglingahljóm sveitinni „The Telstars“. Piltarnir, sem skipa hljóm- sveitina, haía þaö að aðalat- vinnu að leika fyrir dansi og halda hljómleika. Jörgen sagði okkur, að samkeppni slíkra hljómsveita í Danmörku væri geysimikil. Þar eru rúmlega þúsund „pop“ hljómsveitir. — Hljómsveitir, sem eru að cts®&ólt byrja, spila fyrst i stað ókeyp- is meðan þær eru að skapa sér nafn, sagði Oörgen — og ef heppnin er með, er þessi at- vinnuvegur hinn arðvænlegasti. „The Telstars“ hafa um langt skeið verið í hópi beztu ung- lingahljómsveita Danmerkur. Þeir eru talsvert frábrugðnir flestum öðrum hljómsveitum — þeir leika að mestu leyti lög eftir sjálfa sig — nema að sjálf sögðu, þegar um annað er beð- ið, eins og t.d. bítlamúsikina hér. Allur þorri þessara hljóm- sveita leggur annars allt ofur- kapp á að stæla bítlana og „The Rolling Stones“ bæði í útliti og flutningi tónlistarinnar. Unga íólkið í Danmörku er líka mjög hrifið af þeirri teg- und tónlistar og sækir mikið dansstaði og hljómleika, því að útvarpið og sjónvarpið leika yfirleitt ekki „bítlamúsik". í sjónvarpinu hefur ekki heyrzt hítlamúsik í tvö ár, — eða síð an hinn^ nýji sjónvarpsstjóri tók við. Áður hafði verið í sjón varpinu vinsæll músikþállur undir stjórn Ottós Leisners, en hann var þá látinn hætta. — í útvarpinu er sérstök músik- dagskrá — program III — og þar á að vera músik fyrir alla. Þessi dagskrá hefur hinsvegar eingöngu mótazt af smekk þess sem um dagskrána sér, þannig að músi.k eins og allur þorri unga fólksins vill heyra, heyrist aldreL Að lokum sagði Jörgen Krul: — Við erum mjög hriíin af þeim móttökum, sem við höf- um þegar fengið, og við 'hlökk um mikið til að ferðast út á landsbyggðina. Tromm.uleikari hljómsveitarinnar gat að vísu ekki verið með í þessari ferð vegna veikinda, en sá sem leysti hann af hólmi íhefur ekki snert trommur i tvö ár. Þrátt fyrir þetta hefur allt ■gengið að óskum hingað til — já, næstum þvi allt. Það bilaði reyndar hátaiarakerfið okkar á fyrstú hljómleikunum í Aust urbæjarbíói og við bjuggumst þá satt að segja við hinu versta af áhorfendum. Þeir voru hins vegar hinir rólegustu meðan Ivið vorum teknir að gerast ör- væntingarfuJlir, — ég get sagt þér það, að komi svona nokk- uð fyrir á hljómleikum í Dan- mörku, er hljómsveitin óðara pípt niður. En við skulum sleppa að minnast á það. t* J # ® ^ r • eC'••• I .ij.* ®' ‘vVj •*.» « í‘» > • • .•V'.u«-íc*’» * r« i> ■ • ms i # B H * I § ~ • * i \ ■ 4 • y * ik* #9 iinsku systurnar Lecia og Luc ienne. (Ljciim. Mbl. I / Þ.) LESBÖK MORGUNBLAÐSINS ? 29. tbL 1964

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.