Lesbók Morgunblaðsins - 20.09.1964, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 20.09.1964, Blaðsíða 8
í I t t I t f i i í V f r i : Fjöiskyldan í stoíunni að Lundi. Við vorurn seint á ferð og Björn Geir var kominn í náttaoppinn. . r Jjjöm Geir er orðinn sex ára. Stór strákur, sem kom í heiminn úti í Kaupmannahöfn, en fluttist síðan í Kópavog og þar er hann nýbyrjaður að ganga í skóla. Jafnvel í Kópavogi eru þau ekki- byrjuð á dönskunni sex áPa svo að Björn Geir heldur sinni dciisku við með því að lesa Andrés Önd heima á kvöldin, því hann er orðinn fluglæs bæði á íslenzku og dönsku. Og auðvitað er Andrés Önd uppáhaldsnámsbókin, enda er And- rés kunnur sómakarl, bæði heima og eriendis, eins og þar stendur. Björn Geir er vasaútgáfa af föður sínum, en verður það varla lengi, því hann ætlar að verða eins stór og pabbi — og þá verður hann líka orðinn stór. Það er nefnilega mesta furða hve vel pabbanum tekst að troða sér inn í litla Citroen-bílinn þeirra, sem þrátt fyrir allt rúmar alla fjölskylduna og meira en það. J[ æja, við ættum að fara að kom- ast að efninu. Lesbókin er nefnilega kom in í heimsókn til þriggja manna fjöl- skyldu í Lundi við Nýbýlaveg í Kópa- vogi Otg hér er það Björn Geir sem sit- ur í öndvegi. Ekki vegna þess að hann sé einhver ólátabelgur, sem stjórni öllu á heimilinu. Nei, heldur vegna þess, að hann er Ijósgeislinn á heimilinu, eins og guðhræddar konur orða það. Og 'þannig á það einmitt að vera. Foreldrarnir eru Leifur Þorsteinsson, Ijósmyndari, og Friðrika Geirsdóttir, auglýsingateiknari. Frúin vinnur úti, ÍSLENZK HEiMILI eins og titillinn bendir til — ekki að- eins tii tekjuöflunar, (heldur hefur hún líka gaman af starfinu. Það skiptir ekki hvað minnstu máli. Sveinninn unir vel hjá ömmu og afa á daginn, en þau búa í sama húsi. Þar þarf enginn að láta sér ieiðast, því á þessu heimili er mikið staifað og þar gerist margt. Afinn er nefnilega hann Geir í Eskihlíð, sem margir kannast við — og hann á ó- grynnin öll af hænum, svínum, kúm — og svo einn hest og eina dráttahvél, segir Björn Geir. Á bænum eru líka nokkrir hundar og kettir. Um daginn voru komriir fjórir hundar, en þá var sá yngsti, sem nefndist NÝI LILLI, gefinn vandalausum og var að vonum mikil eftirsjá í honiun. V ið báðum um að fá að koma I heimsókn til Leifs og Friðriku vegna þess að það eru ekki nema tvö ár síð- an þau komu frá Kaupmannahöfn — og dönsk húsgögn eru meðal þess, sem freistar hér úti á landinu kalda. Þau sögðu hins vegar, að lítið væri að sjá hja þeim af slíku, því í Kaupmannahöfn hefðu þau verið við nám og ekki haft efni á að eyða miklu fé til húsgagna- kaupa frekar en annars. Okkur væri samt óhætt að koma í kt/öldkaffið, því kunningjarnir væru hvort sem er svo latir að heimsækja þau þarna suður í Kópavogi. Engu væri líkara en Beyk- víkingar te'du fjarlægðina suður eftir hálfgerða þingmannaleið og þar af leið- andi drykkju þau kvöldkaffið oftast tvö ein. Allir gestir væru meira en ■Velkomnir. Að Lundi eru margar íbúðir, því bú- ið er stórt og það krefst mikilla starfs- krafta. Dótrtir bór.dans og tengdasonur t.aka samt ekki mikinn þátt í bústörfun- um, en Björn Geir er fulltrúi þeirra við mjaltir, fóðrun og annað markvert, sem fram fer. Þarna hafa þau fjö'gur her- bergi og eldhús, mjög hlýlega íbúð í hljúðlátu umhverfi. Hér er gestum boð- iö að setjast í danska Safari-stóla, ein- falda og stílhreina harcWiðarstóla með leðuráklæði — og svo þægilega að sitja í, að það er beinlínis hætta á að fólkið sitji uppi með gestina. Svo segjast þau hafa komið tómhent frá kóngsins Kaup- mannahöfn. Þau eiga líka stórt og vand að sófaborð, en annars bera innanstokka. munir þess merki, að hér hefur hag- sýni og smekkvísi ráðið, en ekki prjál- sýkin, sem nú á dögum kemur alltoi mörgum á kaldan klaka fjárhagslega. „Og þessi er frá Kaupmannahöfn," segir Friðrika hlæjandi og bendir á geysistóra kommóðu, sem ekki er aif •nýjustu gerð. „Fyrst eftir að við kom- ur.i út byrjuðum við að draga að okk- ur það nauðsynlegasta og fórum þá oft í skranbúðir í hliðargötum til að skoða“, bætti hún við. „Þessi gamla kommóða var ekki sérlega falleg, þegar við keypt- um hana. En ég sá, að ég gat málað hana og gert hana að hálfgerðu „rari- teti“ — og það er hún orðin, a.m.k. í mínum augum“. Við héldum líka satt að segja, að þetta væri einhver dýr- mætur .erfðagripur — og ekki er ósenni- legt, að hann verði það einn góðan veö- urdag. En á kommóðunni góðu stendur þó áreiðanlega dýrmætur erfðagripur — bg það var efeki fjarri lagi hjá okkur. „Þelta er víst gömul salut-kanóna frá Bessastöðum“, segir Friðrika. „Hún stóð alltaf uppi á hillu í eldhúsinu hjá mömmu og pabba og mér hefur alltaf fundizt 'hún hluti af sjálfri mér svo a3 ég bað um hana — og fékk. A.nnars kemur hún frá föðurömmu minni. Bræð'Ur hennar áttu hana. Hún er senni lega steypt í Frederiksværk árið 1766. Það stendur a.m.k. á kanónunni", segir Friðrika. Ennú ber hún kaffið á borð og mikið og gott kaffibrauð — og það er sannarlega þess virði að koma hingað í kvöidkaffi. Og við förum að rabba um veru þeirra í Kaupmannahöfn. Hálft í hvoru sjá þau eftir að hafa ekki ílengzt ytra, því starfsmöguleikar og tekjur eru þar betri segja þau — fyrir út- lærðan Ijósmyndara og auglýsingateikn ara. En heimahagarnir hafa sterkt að- dráttarafl sem betur fer, þótt fæðin hér veiti fólki ekki svipaða möguleika og tækifæri og útlandið. „Hjá okkur þessum fáu, sem vinnum að vöruljósmyndun, auglýsingateikning- um og „reklame“ yfirleitt er þetta hálf- gert brautryðjendastarf hérna“, segir Leifur — „því til skamms tíma hefur Frú I'riðrika við teikniboröið í vinnustoíu sinni. 8 LESBÖK MOItGUNBLAÐSINS 29. tbl. 1964

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.