Lesbók Morgunblaðsins - 16.07.1969, Side 6

Lesbók Morgunblaðsins - 16.07.1969, Side 6
Dr. Þorsteinn Scemundsson, stjarnfrœðingur: Nærmynd tekin úr Apollo 10 yfir fyrirhuguðum lcndingarstað. Svæðið sem myndin nær yfir er um 70 km á hvorn veg. Lendingarstaðurinn á að vera innan ferningsins, sem teiknaður er á myndina. STIGIÐ Á TUNGLI® VIÐ skulum byrja á því að setja okkur í spor þess manns sem fyrstur stígur fæti sínum á tunglið. Það er morgunn á lendingarstaðnum, sólin er lágt á lofti, svo að ójöfnur yfirborðs- ins koma skýrt fram í skini og skuggum. Himin-ninn er svart- ur, því að þarna er ekkert loft til að dreifa ljósinu og valda bláma. í iofttóminu heyrist held ur ekkert hljóð, nema það sem berst með titringi eftir jarðveg- inum. Tunglfarinn hreyfir sig með mestu varúð. Hann er að vísu léttur á sér, vegur aðeins einn sjötta hluta af því sem hann vó á jörðinni, en hlífðar- > búningurinn er fyrirferðarmik- ±11, og margs konar útbúnaður í bak og fyrir. Ætla mætti að tunglíaranum yrði auðvelt um gang vegna þess hve hann ;r léttur, en það er öðru nær, hanm verður miklu svifaseinni en á jörðinni. Að vísu gæti hann komizt hraðar áfram með því að stökkva eins og kengúra, en fyrsti tunglfarinn mun áreiðan- lega ekki hætta á neitt slíkt. Ef svo illa skyldi fara að hann hrasaði og rifi gat á hinn loft- þétta búning á klettanibbu, myndi lofttæmið valda því að hann missti meðvitund á fáein- um sekúndum og léti lífið áður en þrjár .mínútur væru liðnar. En tunglfarinn veit um hættuna og fer að öllu með gát. Af hitasveiflum á tunglinu fara mikílax sögur, svo að menn kynnu að halda að tunglfarinn eigi á hættu að stikna í sólinni eða helfrjósa í skugganum. Að þessu leyti eru aðstæðurnar þó * ekki eins slæmar og af er lát- ið. >að er að vísu rétt, að yfir- borðshitinn sólarmegin kemst stundum upp fyrir 130 stig á Celsius, og á nóttunni getur hit- inn fallið niður í 4- 150 stig, en þessar tölur segja ekki alla söguna. í fyrsta lagi mælist há- markshitinn aðeins á svæðum við miðbaug tunglsii.s, og þá að- eins meðan sólin er hæst á lofti. Annars staðar er hitasveiflan mun minni. í öðru lagi verða menn ekki varir við hita og kulda í sama mæli og á jörð- inni þar sem loftið getux leitt varmann að eða frá líkaman- um. f loftleysinu á tunglinu er ástandið líkast því sem er milli laga í hitabrúsa, þar sem varm- inn flyzt aðeins með geislun nema þar sem bein snerting á sér stað. Ef skór tunglfarans eru nægilega einangraðir þarf hann ekki að óttast kulda. Hitinn er meira vandamál, einkum ef stað- ið er lengi í sólinni, en búning- urinn, sem er hvítur, endurkast- ar mestu af sólarljósinu, og auk þess er í honum kælibúnað- ur með vatni sem haldið er nærri frostmarki. Sólskinið er sterkt, tvöfalt sterkara en á jörðinni, því að ekkert gufu- hvolf er til að draga úr birt- unni. Hafa því sumir fullyrt, að tunglfarinn muni fá ofbirtu í augun af því að horfa á yfir- borð tunglsins. Þetta virðist heldur ósennilegt, því að yfir- borðið er dökkleitt víðast hvar, mun dekkra en gerist og geng- ur á jörðinni. Auk þess hafa tunglfarar sólhlíf sem er áföst hjálminum, og geta brugðið henni fyrir ef þörf krefur. Þá er það hið margumtc-laða loftsteinaregn. Eins og kunn- Ugt cr, er tunglið berskjaldað fyrir loftsteinum, sem lenda á því með geysihraða. Flestir þess- ara loftsteina eru þó svo ör- smáir að þeir myndu ekki valda teljandi skaða, jafnvel þótt þeir lentu á tunglfaranum. Líkindin til þess að tung'lfarinn verðifyr- ir stærri steinum eru hverfandi lítil. Útfjólubláir geislar og rönt- gengeislar frá sólinni falla ó- hindrað á tunglið. Þessi geislun er vissulega afar sterk og myndi stórskaða óvarið hörund eða augu, en búningur geimfarans veitir honum fullkomna vörn gegn sliku. Öðru máli gegnir um geimgeislana, hinar hrað- fara rafagnir utan úr geimnum. Til þess að verjast þeim yrðu menn að líkindum að grafa sig undir yfirborð tunglsins. Sem betur fer er geimgeislastreymið venjulega ekki svo mikið að um bráða hættu sé að ræða, heldur öllu fretmur vandamál sem taka þarf tillit til við langdvalir á tunglinu. En einstöku sinmum ber það við, að mikill fjöldi geimgeisla flæðir yfir tunglið. Þessir geislar eiga upptök sín á sólinni, myndast þar við ó- venjulega sólblossa og berast til tunglsins 10-30 mínútum eftir að blossimn sést í sjónaukum. Aðvörunartíminn er allt of stutt- ur til þess að tunglfararnir geti komizt til móðurskipsins sem bíður á braut um tunglið, og þar sem tunglferjan sjálf veitir ekki nægilega vernd, yrði helzta ráðið að leita skjóls í skorningi eða hellisskúta. Það er bót í máli að sólblossar af þessu tagi eru sjaldgæfir (þeir sjást tæp- lega einu sinni á ári) svo að hættan er ekki ýkja mikil. Af öryggisástæðum hafa fyrstu tunglfaramir fyrirskipun um að fara ekki lemgra en 100 metra frá tunglferjumni. Hundr- að metrar eru stuttur spölur á landssvæði sem er álíka stórt að flatarmáli og Norður- og Suður- Ameríka til samans. Samt sem áður gera menn sér vonir um, að í þessari fyrstu ferð fáist svör við mörgum spurningum um þessa merkilegu veröld, sem í vissum skilningi er sjö- unda heimsálfa jarðarinmar. TILGANGUR TUNGLFERÖA Hvaða erindi eiga menn til tunglsins? Þetta er spurning sem margir hafa velt fyrir sér upp á síðkastið, ekki sízt þeir sem hafa séð nýlegar myndir frá tunglinu og heyrt geimfara lýsa þessu ríki auðnarinnar. Eins og menn vita er það ekk- ert smáræðis fyrirtæki að koma mönnum til tumglsins; kostnaðurirm við tunglferða- áætlun Bandaríkjamanna mun nú þegar kominn yfir 20 mill- jarða dala. Það vill svo til að þetta er nokkurn veginn sú upp- hæð sem við fengjum með því að raða þ úsundkrónaseðlum hverjum við endann á öðrum frá jörðinni til tunglsins. Skref- in á þessari leið eru því býsna dýr. Ef seðlunum væri staflað í bunka, yrði sá bunki um 200 km hár. Er vafasamt að íslenzka ríkið hefði efni á að láta prenta seðlana, hvað þá meir. Það er von að menn spyrji, hvað tungl- ferðir gefi í aðra hönd. Er það gull eða gimsteinar, platína eða úran? Áður en við förum að hugsa um námugröft á tunglinu er vissara að athuga kostnaðar- hliðina. Hún er ekki sem glæsi- legust. Þeir útreikningar sem gerðir hafa verið benda til þess að kostnaðurinn vegna vinmu eins manns á tunglinu muni verða um 7 milljónir króna á klukkustund, og að kostnaður- irm við að koma áhöldum þang- að verði um 1 milljón krónur á kílógrammið. Með öðrum orð- um: námugröftur á tunglinu verður ekki arðbær atvimmuveg- ur í náinni framtíð. Til saman- burðar er vert að minmast þess, að menn hafa ekki enm séð sér hag í að nýta Suðurskautsland- ið til námuvinnislu, þótt aðstæð- ur séu þar stórum aðgengilegri. Ávimnimgurinm af því að kom- ast til tunglsins, að svo miklu leyti sem við getum séð hann fyrir, er fyrst og fremst vísinda- legs eðlis. Rík ástæða er til að ætla, að á tunglinu megi finma svör við fjölmörgum djúpstæð- um gátum sem stjömufræðing- ar, eðlisfræðingar og líffræðing- ar hafa lengi glímt við. En þótt engar slíkar forsendur hefðu verið fyrir hendi, myndu menn samt hafa stefmt að því að kom- ast til tunglsins af einskærum metnaði og ævintýraþrá. Löng- un mannsins til að kanna hið óþekkta verður seint fullnægt, hvorki á heimskautum jarðar, á hæstiu fjallatimdum eða í und- irdjúpunum. Geimfarar nútím- ans eru beinir arftakar lamd- könnuðanna sem fumdu ný lönd og heimsálfur. í raunimni getuam við ekki, fremur em landkönn- u'ðirniir áðuir fymr, sagt fyrir um, hvaða gagn geti orðið að himum nýju landvinninguim. Ef til vill vitum við ekki meira um framtíðarnot tumglsins en Leifur heppni vissi um fram- tíðarmot Ameríku. Em ýmislegt sjáum við þó, sem ástæða er til að ræða nánar. ÁSÝND TUNGLSINS Tunglið sjálft er merkilegt rannsóknarefni og býr yfir mörgum óleystum gátum. Yfir- borð þesis eT að fla'tarmáli á við fjórðung af þurrlendi jarð- ar. Áður en geimtæknin kom til sögunnar hafði sú hlið tuingls- ins sem að jörðu snýr verið könnuð og kortlögð af mikilli vandvirkni með sjónaukum. Sið- ustu þrjú árin hafa svo Orbit- er-flaugar Bandaríkjamanna •sent til jarðar nærmyndir af öllu yfirborði tuniglsins, svo að segja má að meran hafi nú eins mikil gögn um landslag þar eins og á jörðinni sjálfri. Því er þó við að bæta, að úrvinnsla þessara nýju gagna er aðeins skammt á veg komim og mun sjálfsagt taka áratugi. Þegar horft er á tunglið í sjónaúka, virðist það fljótt á lit- ið hvítleitt eða örlítið gulleitt (guli blærinin stafar af ljósdreif- ingu í andrúmslofti jarðarinn- ar). Að öðru leyti er þar emga liti að sjá við fyrstu sýn. Lýs- ing geimf aranna í Apollo 8 virt- ist staðfesta þetta; þeiir töliuð-u um hvítgráa auðn, líkasta gipsi. En þeir sem mest og bezt hafa kannað tunglið í sjónaukum, með Ijóssiíun og öðrum aðferð- um, hafa löngum haldið því fram, að þar væri ýmsa liti að finna, einkanlega brún og gul svæði. Geimfararnir í Apollo 10 staðfestu þetta eindregið. Samkvæmt lýsingu þeirra eru sum svæðin skínandi hvít, önn- ur nær kolsvört, og þar við bætist svo sérkennilegur ljós- bt-únn litur sem víða kemur 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 16. júM 1969

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.