Lesbók Morgunblaðsins - 16.07.1969, Page 12

Lesbók Morgunblaðsins - 16.07.1969, Page 12
Maifhias Johannessen: Undrið er allt í kring um okkur „] upphafi skapaði Guð himin og jörð. En jörðin var þá auð og tóm, og myrkur grúfði yfir djúpinu og Guðs andi sveif yfir vöfnunum. Þá sagði Guð: Verði Ijósl og það varð Ijós" SkÖmnui áður en heimferð þremenninganna, Bormans, Lowell og Anders, hófst frá braut umhverfis tunglið á jólum 1968, lásu þeir til skiptis úr Fyrstu Mósebók. í „Kompaníinu" spyr ég Þór- berg undir lokin um framtið- ina. Ég hef m.a. svofellda fclausu eftir horuum: „Sálræn vísindi verða stund uð af kappi, og þar verða geysi legar framfarir. Mönnum mun verða í framtíðinmi kennt að fara úr likamanaim og ferðast í sLnum andlega líkama milli landa og jafnvel hnatta með öll um sálargáfum í fullu standi. Þá eru menn komnir til Peking á sama augnabliki og þeir Ihugsa sér það. Og menn geta spásserað um tunglið án þess að hafa nokkurt súrefni né lóð á fótunum. Það sýnir útá- þekjuskap visindamanna, þeg- ar þeir fullyrða, að ljóshrað- inn sé mestur þekktur hraði. Rúnki er kominn í sama and- artaki til London og hann hugs- ar sig þangað. Það er meira að segja hugsanlegt, að menn kom ist svo langt að geta leyst upp holdlega líkamanm og sent hann til fjarlægra staða og skapað hanm þar að nýju.“ Ég spyr, hvort reynast mumi tmmt að brjóta niður vegginm milli lífs og dauða í ríkara mæli en gert hefur verið. Þórberg- ur svarar: „Jú, tæki verða fumdin upp, sem menn geta séð með inn í annan heim og líf fólks í öðr- um heimi.“ „Þú talaðir miiikið um sport áð- an. Heldurðu, að Ferðafélagið verði þá við lýði?“ „Máski. En forseti þess verð- ur þjálfari í utanskrokksferða- lögum. Það verður mikið geng- ið á fjöll og margir mumiu standa uppi á háum tindum og góna yfir landið." Og síðar í þessu samtali okk- ar Þórbergs segir hann, að sá tírni muni koma“ að litið verði á menn, sem aldrei hafa brugð- ið sér til annarra hnatta, líkt og við lítum nú á kerlimgar, sem aldrei hafa farið í kaup- stað“. Því miður hefur þessi fram- tiðarsýn ekki orðið okkar hlut- Skipti. Við lifum í samtíð, sem hefur slökkt sönginm í brjósti margra. Þórbergur sagði, að rómantíkin mundi koma aftur í mýrri mynd, að blái liturinn m/umi ríkja. Við lifum í sam- tíð, sem hefur gráa litinn að leiðarstjömiu. Við lifum á tím- um DDT.s og gjöreyðingar- vopna. Merkilegum tímum að vísu, en hættulegum. Við er- um komin að krossgötum. Skim tunst þindarlaust eftir ein- hverju nýju, en leitum oft langt yfir skammt. Bamið er á næstu grösum, kraftaverk allra krafta verka. En höfum við stund fyr- ir það, svo önnum kafin sem við erum? Við förum of oft á mis við þá staðreynd, að fersk Skynjun bamsims er nýtt land- nám. Ný geimför. Bamið bætir stöðugt grösum í flóru alls Skáldskapar. En við höfum varla tíma til að staldra við: sjá, heyra. Samt eru geimferð- irnar sprottnar úr sama jarð- vegi og forvitni bamsins. Undrið er allt í kringum okk- ur. Sonur minn 5 ára, sagði ekki alls fyrir löngu: „Ekki kveikja Ijósið, þá fer dagurinn í burtu". Það var sól úti. Hví að hrekja daginn burt? Raf- magnsljósið er okkur lífsmauð- syn. Það er ein stór'kostlegasta uppgötvum allra tíma. En það var ekki fundið upp til að reka sólima burt úr lífi okkar. Tæknin á að fegra líf okkar. Við eigum að nota hana, en ’ verða ekki þrælar hennar. Kannski er hún að verða of aðsópsmikil í daglegu lífi. Of- notfcun hefnir sín. Við eigum ef til vill of mikið undir tækni og nýjungum. En þá er illa komið, ef rafmagnsljósið veld- ur þvi að við þorum ekki leng- ur að trúa sólinni fyrir degin- um. Skynjun barnsins er óvænt nýjung, athugun þess nýstár- legur skáldskapur. Ef við hlust um á það, gleymum við eitt andartak dyn af helreið stríðs- guðsins. Samt er sagt að skáld- skapurinn sé dauður. Við þörfmumst hans ekki lengur. En eigum við að trúa því að einlægninni hafi verið útrýmt? Að enginin draiumiur sé til. Að undrið heyri einungis til for- tíðimnd? „Ef þið farið til sál- fræðings, vitnar hann í ljóð“, segir bandaríska skáldið Archibald MacleiSh. Samt er fullyrt að enginn þarfnist ljóðs ins, jafnvel þótt vitað sé að gott ljóð bregður nýju ljósi á viðfangsefnið. Við upplifum það á nýjan hátt. Það er tungl- ferð með sérstökum hætti. Tækni og nýjumgar eru eins og annað: gott í hófi. Nú er raunar svo komið að tækniin er að forpesta jörðina. And- rúmsloft stórborganna er eitr- að, fiskar drepast í Rín, geisla- ryk helsprengnia hefiuir girúft yf ir „þessari góðu jörð“, svo að vitnað sé í Borman geimfara. Nú hafa geimferðir kostað Bandaríkjamenn 24 milljarða doUara. Það kalla sumir sóun. í mínium huga er það upplífg- andi tala, þegar þess er gætt að stússið kringum fyrstu kj arnorkusprengj una kostaði 2 milljarða dala. Við höfum, í geiimferðumim, eignazt jörðina með nýjum hætti. Sú nýj.a jörð hefur ekki verið of dýru verði keypt. Nú vitum við hvað hægt er að gera, þegar reynt verður að sigrast á því sem nærtæk- aira er en tunglið: hungri, sjúik- dómium, styrjöldium. Kaninslki sýna tumglferðirmar betur en annað, að vonir standa til þess, ef við einbeitum okkur að vandamálum „þessarar góðu jarðar“ að þær 7000 milljónir manna sem lifa rnurnu um næstu aldamót búi við manosæmandi aðstæður, en hvorki við eitr- að loft, spillt vatn né hnoll- vekjamdi hungur. Ef svo á að geta orðið er nauðsynlegt að ræklta jörðima og umlhverfi hennar. Þotumar eru töfra- tæki. En þær skilja eftir sig fnyk í háloftunum. Ef sam- göngur halda áfram að eflast eins og verið hefur, segir þekktur vísindamaðuir, getur svo farið að næsta kynislóð sjái ekki til sólar. Hvarvetna blasa við uggvæn legar staðreyndir. Og kanmski er sú verst, ef rétt er sem arf- taki Marteins Lutlhers Kings heldur fram: „Það er lenigra milli kjmiþáttanina en milli tiuiniglis og jairðar". Þó að tunglferðirniar eigi kannski ekki eftir að mininka það bil, getum við litið til him- ins í barmslegri undruin og hvarflað huganum — ekki ein- ungis til geimskipa og áþreifan- legra staðreynda mamnlegrar snilldar, heldur einnig þeirra hugsjóoa, sem varpað hafa björtustu ljósi á þesisa flókniu og lítt skiljanlegu tilraun, sem kölluð er líf mannsimis á jörð- imni. Við erum að komast til tungls ins, vinna sigra. En ekki er síður um vert að vaxa til sól- ar. Vaxa til trúar á guðlega forsjón. Geimferðirnar muniu, að ég hygg, auka okikar gfiieði yfir fagnaðarerindi sköpuearveriks- ins, yfir hrynjandi alls lífs, reglum þess og lögmálum. Þær munu auðga okkuir lotnimgu fyrir djúpri þögn þessarar bláu ómælanlegu víðáttu. Við erum ekki miðdepill heimsins, heldur sandkorn á strönd ei- lífrair aiuðmar. Geimiferðirniair eiga eftir að beina athygli okk ar að veruleikanum innra með okkur sjálfum, veruleik „þess- arar góðu jarðar“. „Við geturn ekki búið guð tií, ef harun er ekki í sjálfuim okkur“, sagði gömul kona við mig fyrir skömmu. Hún er enginn spek- ingur, hún hefur ekki háskóla- próf. En hún hefuir þolað þumg- ar raunir. Og þykist haifa vissu fyriir því að lífið sé eillif hreyf- inig, bylgjusvið þekkt og óþekkt. Enginin daiuði. Geimferðimar munu ekki ein ungis svipta okkuir rómantískum hugmyndum um karlinn í tungl inu, heldur einndg — og eikki síður — beina sjónum okkar að því guðlega eðli, sem við vonum að manninum sé lagt í brjóst. Hvers vegna? Vegn>a þess að þær munu samnfæra okkur um að tilveran er kraftaverk. Og það verður hlutverk manmsins um næstu framtíð að reyna að skilja þetta kraftaverk, undr- ast það, fagna því. Og þá trúi ég því, að öll hlutföll í til- veru mannsins verði réttari en nú er. Geimfaramir hafa uppgötv- að þá staðreynd, að jörðiin er, þrátt fyrir allt og allt, gim- steinn. „Jörðin séð héðam er stór vin í hinini miklu auðn geimsins", sagði Lovell, þegai’ þeir félagar á Appollo 8. nálg- uðust tunglið. „Yndisleg jörð- m blaslr við dkkur“, sagði Bor- man. Þeir komu heim með góða jörð og yndislega, en skildu eftir úti í geimmum gráa auðn þessa hrímföla mána. Maður, líttu þéir nær(!) var boðsikapuir þeirrar ferðar, ef ég skil rétt. Vonandi á jörðin, þessi lítt slípaði gimsteinn, eftir að glitra í höndum margra kynslóða. Von andi eiga fyrirheit hennar eft- ir að verða ævintýri líkust. Og kammslki á miaðuirinn j'aifnvdl eftir að vita skyn góðs og ills. Kannski er jörðin, þrátt fyrir allt, sjálfur aldingarðurinn Eden. Við sendum menn út í geim- inn til að sækja þúsund ára gamlan draum, en þeir komu aftur með jörðima, fegurri en nokkru sinni. Nú vitum við loks að draumurinn er hér. Þessf jörð. Unidir fótum okkair. í brjósti okkar. Veruleiki og fyriirheit þessarur jarðar. Og þegar við nú erum að upp- götva þá staðreynd, eignumst við jörðina með nýjum hættL Hver finnur ekki til stolts innira með sér? Það sem okkur var trúað fyrir, það sem okkur er ætlað að ávaxta er ekki auðn og tóm, heldur blikandi og allt sjáandi auga í svartri nóttinni. Við höfum eiigmazt nýja jörð. Undrið mikla. Jörð sem var ætlað annað hlutskipti en lifa sjálfa sig. „Sjá, ég gjöri alla hluti nýja“. Eininig var sagt: ekfcert er nýtt undir sólinini. Réttara væri að segja: ekkert er gamalt undir sólinni. Jafn- vel gömul ljóð sem við héldum að aldrei yrði hægt að duista af rómantíska rykið, rísa upp með nýrri reisn, verða jafnvel nákomin nýrri kynslóð: Því lyftist ég á léttum himinvæng um ljósan geim á silfurtærum bárum og bý mér mjúka, háa, helga sæng, sem haggast ei af neinium sorgartárum. (Benedikt Gröndal) Hverjum hefði dottið í hug að þessar „háfleygu" línur ættu jaifinvei eftiæ að verð'a niokk uð raunsönn lýsing á tiltölu- lega hversdagslegu ferðalagi á geimöld? Fáir hafa Skrifað betur um för geimfaranma til tunglsins en bandaríska skáldið sem ég nefndi áðan, Arohibald Mac- leish. Hann hefur þorað að hefja augu sín til himims og fagna ómælanlegum víðernum geimsins og þessarar „heimilis- legu jarðar“. Hver ætti frem- ur en við að kuimna nofckur Skil á merkingu þessa viðmóts- þýða orðs, beim'ilislaguir? Er- lendur maður hefur sagt: „Eims og Fininland er þúsund vatna landið, þaninig er fsland land þúsunid heimiiila“. Voniamidi verð ur það ávallt, svo að við þurf- um ekki að horfa á eftir æsfc- umni út í upplausn og eitur- lyf stórborganna. Baðstofan helduir enin veifli Hluihverfci heniniar er ekki lokið, sem bet- ur fer. En hún er á undan- haldi. Með það í huga getur verið ástæða til að spyrja: Hafa skólamir brugðizt? Eru þeir það vígi sem við héldum? Eða sjónvarpið? Hefur það tefc ið við hlutverki ímyndunarafls- ins? 12 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 16. júlí 1969

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.