Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.1970, Side 12

Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.1970, Side 12
misþyrmingum, sjúkdómum, kulda eða fyrir eigin hendi. í apríl 1945 voru í búðunum um 45,000 vinnufangar. Þeir voru fluttir suður á bóginn, látnir ganga í röðum, og þegar Bandaríkjamenn náðu þeim eftir nokkurra daga göngu voru aðeins nokkur þúsund á Mfi. Kinir höfðu verið skotnir á leiðinni, eða dáið af ofreynslu. Varðgæzlan í Flossenburg var ekki eins mikil og í Berlín og því var oft mögulegt að komast í samband við vinnufangana. Það var þeim að þakka að ég komst fljótlega að raun um að auk mín voru fjórir Danir í búðunum. Þeir voru Max Mikkelsen, skipstjóri í verzlunarflotanum, Hans F. Hansen, vélstjóri, Knud E. Pedersen, stýrimaður og bóndi einn frá Bandaríkjunum, af dönsku bergi brotinn, Adolf T. Larsen. Þeir höfðu allir gengið í brezka herinn, orðið þar liðsforingjar, og hafði verið varpað út í fallhlífum yfir Danmörku en verið handteknir. Tveimur vikum eftir komu mína kom fimmti Daninn, Jörgen L. F. Mog- ensen, vararæðismaður frá Danzig og mér tókst að standa í stöðugu sambandi við hann með smáseðlum sem við föld- um í glufu í fangelsismúrnum. í fángabúðunum áttu sér stað margar aftökur. Þá tíu mánuði, sem ég var í Flossenburg, gizka ég á að 700—800 manns hafi verið tekin af lífi. Aftök- urnar fóru fram í fangabúðagarðinum, en ég hafði útsýni yfir hann úr glugga mínum. Á leiðinni til aftökustaðarins, sem var undir hálfþaki í garðinum, voru fórnardýrin afklædd í baðherbergi skammt frá, og síðan voru hendur þeirra bundnar saman með stálvír. Aftökurnar áttu sér ýmist stað með skoti í hnakkann eða hengingu. Kaðall var festur í krók í múrnum, og renni- lykkju brugðið á neðri endann. Fangan- um var skipað að klífa upp stiga, sem reistur hafði verið upp að múrnum, og stinga höfðinu í snöruna. Síðan var stig- anum sparkað frá. í múrinn voru greyptir sex krókar þannig að hægt var að hengja sex menn samtímis. Líkunum var velt til hliðar og látin liggja þar, og ekki fjarlægð fyrr en allt dagsverkið hafði verið unn- ið. Það tók oft til meira en tveggja tuga manna. Áður en líkin voru brennd í líkbrennsluofnunum, voru gulltennur rifnar úr þeim. Þegar menn voru hengdir, kom dauð- inn venjulega skyndilega og snöggt, en eftir sérstakri skipun var hægt að draga aftökuna á langinn. Dæmi vo,ru til þess að það tæki hálfa klukkustund að hengja mann. í fangelsinu sjálfu voru aðeins 40 klef ar, en fjöldi fanganna var oft svo mik- ffl, að troða varð 10—15 í sama klefann, aðallega dauðadæmdum Rússum og Pólverjum. Til var einnig sérstakt refsitæki. Var þá notaður skápur, sem var þannig, að fanginn, sem í hann var settur, gat ekki staðið uppréttur, og ekki lagzt niður, ekki einu sinni á hnén. Venjulega voru menn látnir dúsa í þessum skáp í meira en þrjá sólarhringa. Það voru einkum rússneskir foringjar, sem urðu fyrir miklum misþyrmin.gum meðan á yfirheyrslum yfir þeim stóð. Klefi minn, sem var nr. 21, var þann- ig staðsettur, að ég sá yfir fangelsisgarð- inn og hluta fangabúðanna. Aðeins litl- um hluta hulunnar var svipt burtu fyrir mér þegar ég stóð við klefaglugga minn og varð vitni að viðbjóðslegum atburð- um. Þær 700—800 aftökur, sem ég sá í garðinum fyrir framan fangaklefabygg- inguna, voru aðeins brot af heildaraftök um þeim, sem áttu sér stað í fangabúð- unum. Síðar fékk ég vitneskju um að í búð- unum væru meira en 2,000 rússneskir foringjar. Þeir voru að hluta geymdir í fangaklefunum, að hluta vinnufangar, sem voru látnir vinna í grjótnámi í ná- Dietricli Bonlioeffer — þýzkur prestur og andstæðingur naz- ista. Hann var i’angi í Flossenburg nieð Limding — og var tekinn þar af lil'i. Knrt von Schuschnigg —• kanslari Austurríkis áður en Hitler sameinaði það Þýzkalandi. Var í lialdi ásamt Lunding bæði í Flossenbiu-g og Daehau og víðar. Hann komst lífs af, og er enn á lífi. grenninu. Foringjatign þeirra var frá höfuðsmönnum upp í ofursta og aðeins um 120 þeirra lifðu af. JÓLATRÉ OG „H'EIMS UM BÓL‘‘ VIÐ GÁLGANN. Eftir uppreisnina í Varsjá, sem Bor hershöfðingi stjórnaði, kom mikill fjöldi pólskra andspyrnumanna til fangabúð- anna. Að tíu mönnum eða svo frátöld- um, vom þeir allir teknir af lífi. Aðfangadagskvöld 1944 var reist risa- stórt jólatré, skreytt ljósum, á nafna- kalisvelli fangabúðanna. Umhverfis það safnaðist mannskapurinn úr fangabúð- unum og söng „Stille Nacht, Heilige Nacht“ (Heiirns um ból), án þess að virðast láta það hafa áhrif á sig að ör- skammt frá trénu stóð gálgi, og í hon- um hékk maður. Undir hálfþakinu í fangelsisgarðinum, þar sem aftökurnar fóru fram, stóð lengi eftir jólin skreytt jólatré, sem SS-menn- irnir höfðu komið þar fyrir. Það síð- asta, sem þeir, sem teknir voru þar af lífi, höfðu fyrir augum, voru böðlar þeirra og skreytt jólatré. Þann 2. febrúar 1945 komu til fangels- isins margir frægir fangar, sem þangað voru fluttir frá öðrum fangabúðum, þar á meðal Sachsenhausen og Buohenwald. Meðal þessara fanga var Kurt von Schuschnigg, fyrrum kanslari Austur- ríkis og kona hans, Vera, fædd Czernin greiíaynja, og þriggja ára dóttir þeirra, Maria-Dolores. Með þessum fangahópi kom einnig yfirmaður þýzku herleyniþjónustunnar, Wilhelm Canaris, aðmíráll. Siðast af öllu hafði ég búizt við að hitta þann mann hér undir slíkum kringumstæð- um. Aðmírállinn var settur í klefa nr. 22. Sem leyniþjónustumenn vorum við „kollegar", en höfðum ávallt verið and- stæðingar. Nú vorum við klefanágrann- ar í fangabúðum! Kl. 4 að morgni þess 9. apríl var Schuschnigg-fjölskyldan flutt á brott, til hallar einnar í Tyrol, að því sagt var, en við áttum eftir að hittast aftur — og það ekki í neinni höll. Kl. 6 sama morgun var Canaris hengd ur. Daginn áður hafði hann verið í yfirheyrslum til kl. 1 um nóttina, en þá var hann fluttur í klefa sinn örmagna. í þessari síðustu yfirheyrslu höfðu Þjóð verjarnir m.a. brotið nef hans. Um nótt- ina hafði ég samband við hann með því að banka merkjamál á vegginn. Hon um var ljóst, að leikurinn var á enda, og hann bað mig þess, að slyppi ég lif- andi frá þessu, skyldi ég bera fjölskyldu hans kveðju og auk þess að ég færði konu hans orðsendingu, sem var einkamál. Þessar síðustu óskir hans gat ég sem betur fer uppfyllt nokkrum mán- uðum síðar. Sama morgun var rúmlega tugur þýzkra fanga einnig hengdur, bæði her- foringjar og óbreyttir borgarar, Þeirra á meðal voru Hans Oster, hershöfðingi, jrfirmaður foringjaráðs Canaris, og hinn þekkti guðfræðingur Dietrich Bonhoeff- er. Vígstöðvarnar voru nú skammt frá fangabúðunum, 50—80 km að því er við töldum. Allar járnbrautir höfðu verið eyðilagðar og allir flutningar á þjóðveg unum voru nær útilokaðir vegna stöð- ugra loftárása. Eins og miálum var nú komið vorum við allir sannfærðir um að við yrðum teknir af lífi. Einasta vonin um björgun væri skyndisókn Bandaríkjamanna, sem kæmi óvart — eða flótti, og við Danirn- ir tókum að undirbúa flóttatilraun. En áætlanir okkar komu aldrei til framkvæmda. Nóttina milli 14. og 15. apríl var mér tilkynnt að ég yrði fluttur í vörubilalest til Tyrol. Leiðin átti að liggja um Dachau, hinar miklu fanga- búðir við Múnchen. Síðdegis sunnudaginn 15. apríl fóru tveir vörubílar með 40 fanga innam- borðs frá fangabúðunum. Ég mátti að- eins hafa meðferðis það, sem ég gat kom ið í litla tösku. Föt og lítils háttar af mat, sem ég hafði dregið saman, varð að skilja eftir. Vegna loftárása vorum við þrjár kist. euð komast fyrstu 10 kílómetrana. Við staðnæmdumst í liitiu þorpi, Floss, og öllum var skipað að stíga út úr bílun- um. Verðimir fræddu okkur á því, að annax bíllliinn væri bilaður, en annar kæmi brátt í staðinn. — Sá bíll væri hins vegar minni, og yrðíi þvi að skilja allan farangur eftir. Hann mundi koma á eftir, og við mætfum aðeims taka það með okkur, sem væri í vösum okkar. Ég tók aðeins með mér vindlaipaikka, sem ég hafði nokkru áður fenigið send an í böggli frá Danmörku. Ekkert okk ar sá farangur siinn nokkru sinni aftur. Sumir voru án nauðsynlieguistu hreinlæt istækja, og það liðu margair vikur þang að tiil ég sá tanntoursta á ný. Vörubílin.n, sem kom í stað þess sem biiaði, reyndisf vera fangaJliutningabill, „Salatfat", sem í Þýzkalandi kallast „Grúne Minne“. í bílnum var rúm fyrir 10 manns, en 21 var troðið í hann, og hurðum síðan læst. Loftræstingin virk aði ekkd, pappi hafði verið lagður yfir loftinnfökin að utan. Þetta var versita ferð, sem ég hefi nokkru sinni lient í. Fangarndr lágu þvi næst í lögum hver ofan á öðrum, loftið var fúit og hitinin óbærillegur. Mjög sjaldan var numið staðar svo við gæt urn farið út, og við fengum hvorki vott né þurrt. Margir urðu brátt veik ir en félagsandinn og samstaða manna var hjartnæm. Ótal sinnum varð að aka bílunum í skjóli trjánna við veginn vegna hættu af fiugvéium, og á meðan bíll'inn var kyrr, varð hitinn inni enn óbæriiiegri. Áður en við hélidum af stað á ný eft- iir að hatfa niumið staðar í eitt slftot skipti, ranmsökuðu verðirnir bílinn. Tveir famgannia, sem verst voru farn- ir, voru dregnir út, farið með þá spöl- korn eftir vegar'sfcurðinum, og þar voru þeir teknir af lífi með skoti í hnia/ktoamm. LÍFIÐ FTRIK 20 SÍGARETTUR Er við staðnæmdumst eitt sinn um nótf ina missti ég meðvitund. Þrír SS-menm báru mig á strigapótoa spölkorn frá bílnum. Af tilviljun höfðu þýzk foringja- £rú, tékkneski prófessorinn Korvac og prófessor frá Lettlandi, Gustav Celm- ins, fenigið leyfi til þess að fara út um leið og þetta gerðist, og þau skildu strax hvað var í þanm veginn að ger- ast. Þau tæmdu alla vasa sína af sígar- ettum, og þær urðu urn 20 tallisims. Fyrir þær keyptu þau líf mitt. Fyrir sígaretturnar fengu þau SS- mennina tii þess að fleygja mér upp á palliinm á vöruibílnum, sem fylgdi á ef-tir, og hér í þessum opna bíl fékk ég svo mikið af fersku lofti, að ég kom brátt til' sjálfs mín. Þegar verðirniir komuist að raun um, að ég hefði ferrgið meðvitund, var ég fluttur aftur í lokaða bílin.n, næst er nuimið vaa' staðar. Nóttina milli 16. og 17. apríl komum við til Dachau, og var komið fyrir i hóruhúsi fangatoúðan'na, en venjuleg starfsemi þess hafði nú iagzt af. Tii Dachau komu þessa daga fliestir hinna þek'ktuistu fanga maisista. Hvernig á þvf stóð, að okkur Dönunum var btandað í þennan „fína hóp“, var dkkui' ráðgáta. Hér komu samain m.a. Leon Blium, fyrrum forsætisráðiheirra Fralkklands og kona hans, séra Martin Niemöller, franski skriðd'rek'aihershöfðiniginn de Lestré, ítailski hershöfðinginn Gairibaldi, sem þektotur var frá borgarastríðinu á Spáni, Gatoriel Piguet, bislkup atf Cler- mont-Ferrand og fjöldi þekktustu manna kaþólsku kirkjunniar í Þýzka- landi. Hér var einnig kominn Sdhuschnigg- fjölskyidan og Dachau var þá sú höll, sem Þjóðverjarnir höfðu talað um að flytja þau tifl frá Flossenburg! Af þek'ktum þýzkum fön.gum voru þarna m.a. fríherra Fabian von Schla- brendorff majór, sem stóð að baki hinni misheppnuðu tilraun að ráða Hitler af dögum. Þá var í fangahópnum allmikill fjöldi gísla, m.a. níu manns úr fjöl- skyiduinni Schenik von Stauiffenfbetrg, sem allir höfðu verið handteknir eftir tilraun Stauffenbergs til að drepa Hitl- er 20. júlí 1944. Og þarna hitti ég einnig háltfgerðan landa minn, dr. Hjalmar Schacht, fyrr- verandi ríkisbanikastjóra og fjármála- ráðherra, en hanin fæddist í Ting'lev. í hóruhúsi Dachau var okkur hrúgað samian við hin frumstæðustu skilyrði. Einikum leið kvenfólkið fyrir þetta. Nokkrir faniga'n'na voru skotnir á næstu dögum. Lauigarda'gin’n 21. aprí! fenigu 40 fang- air, þeirra á meðal við Danirnir, sex með töliu. boðskap uim að kl. 9 næsta morg- un ættuim við að mæta til kvikimynda- sýninigair í stóru baðhúsi, sem að sögn hafði verið innréttað sem kivikmynda- hús. Séra Martin Niemöller og aðrir gamil- ir Daehau-fangiar gátu frætt okkur á því, að þetta sérstæða boð þýddi ,að við yrðum teknir af lífi með ei’turgasi. Þegar „kvikmyndahússgestirnir" væru komnir inn í baðhúsið, væri öllum dyr- um harðlæst — og gasinu síðan hleypit á. Kl, 8:45 uim morguninn, er 15 mínútuir voru trl stetfniu, kom gagndkipun. 12 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 22. descmiber 1970

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.