Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.1970, Side 26

Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.1970, Side 26
Gísli Brynjólfsson Frá stórbýlinu Hlíð í kofa undir steini hjá Fossi Stórbýlið Hlíð. Undir Hásumar — 24. júlí 1970 —• föstu- dagsmorgunn í 14. viku sumars. Og við erum stödd á einum fegursta staðnum í einni fegurstu sveit Suður- lands •— Fossi á Siðu. — Ef til er sveitasæla á Islandi, þá er hún hér á þessum stað á þessari stundu. Allt fagnar og gleðst. — „Allt lifandi lof- syngur þér,“ stendur þar. Hér hljóm- ar slíkur söngur. Þetta er í einu orði sagt unaðslegt umhverfi: Hjal í fossi, blóm í brekku, fuglar í mó, huldjxfólk í hömrum og fram yfir hvassa kletta- brún heiðarinnar sigla hvít ský á bláu djúpi himinsins. En inn í þennan heim sumarsins, söngsins og blómanna berast annarleg hljóð úr veröld manna og véla. Strák- ar geysast um túnin á traktorum með hávaða og gauragangi og alls konar vélar attaní. Og meðfram allri Síðunni — þvert gegnum grænan gróðurfeld landsins er vegurinn ristur niður i svörðinn. Eftir honum æða bilarnir, þyrlandi upp rykbólstrum sem standa í ioftinu langa stund eins og púður- mökkur yfir óvinavígstöðvum. En erindið hingað að Fossi þennan fagra sumarmorgun er hvorki að dást að náttúrunni né vandlætast yfir verk um mannanna. — Heldur hvað? Taka mynd af steini — stórum steini, sem liggur hér jarðfastur í frjósömu túni undir fagurri hlíð. Ef sú mynd heppn- ast á hún að fylgja þessum línum og minna á það að fyrir tæpum eitt hundr- að árum var mannabygð undir þessum stóra steini. Hann var hafður í vegg á litlum bæ, sem var húsaskjól blindum bónda, ungri bústýru hans og veik- byggðum börnum þeirra, sem fæddust til að deyja. En þessi saga hefst ekki hér á Sið- unni heldur úti í Skaftártungu þar sem heitir að Hlíð. Þar bjuggu á öndverðri síðustu öld hjónin Jón Jónsson frá Eystra-Dal í Fljótshverfi og Ragnhild- ur Gísladóttir frá Geirlandi. Jón var mektarmaður í sinni sveit, hreppstjóri og sáttasemjjri og meðhjálpari, sem þá þóttu allt virðulegar trúnaðarstöður svo sem enn eru þær ef rétt er skoðað. Hitt var þó meira um vert hvilíkur mannkostamaður Jón var, gestrisinn, hjálpsamur og leysti hvers manns vand ræði enda er kallaður valmenni og öðr- um hrósyrðum í sálnaregistrum Ása- presta. Jón í Hlíð andaðist 8. júní 1835 60 ára að aldri úr óþekktum sjúkdómi. Tvö skáld sunnlenzkra sveita ortu eftir hann látinn, þeir sr. Páll skáldi og Þorsteinn tól. 1 eftirmælum sr. Páls segir m.a. á þessa leið: Aila hans búrisnu ei má teikna eins við hefðar og neyðarstönd, ef tæki ég upp að tína og reikna til myndi þurfa í aðra hönd: Margyrtan tón að mynda brag, mikinn pappír og langan dag. En í ijóði Þorsteins tóls eru 1. og 4. erindið þannig: Valinkunnur og víða frægur virtur elskaður flestum af sitt hefur endað síð nú dægur sálina meðtók hann er gaf. Líkið í jarðar lagt er þró, lifir minningin hjá oss þó. Trúfastur vinur, tryggur öllum tilbjó ei neinum svik né véi, dýrmætum skrýddur dyggðum snjöllum daglega gjörði rétt og vel. Frömuður sveita frægur var frægðinnar rigti víða bar. Ragnhildur í Hlíð var annáluð gæcta kona. Hún var ljósmóðir I Ásasókn og siðar I Skaftártungu allri. Hún lifði mann sinn í rúm 30 ár og hélt áfram búskap í Hlíð, fyrst á allri jörðinni, síð- an á móti Eiríki syni sínum eftir að hann kvæntist. Er Ragnhildur talin búandi í Hlið fram yfir áttrætt, síðast 1858, þá með eitt hjú, Sigríði Bjarna- dóttur, vinnukonu 32 ára. Eftir það var Ragnhildur hjá Eiriki syni sínum og Sigríði konu hams tál dauðadaigs. Hún andaðiisit úr kvefsótt 2. júní 1866. Þau Hlíðarhjón eignuðust alls 14 börn á 24 árum. Komust 11 þeirra til fullorðins ára, giftust öll nema eitt en öll eignuðust þau afkomendur. Skulu þau talin hér í aldursröð: 1. Rannveig f. 1801 — d. 1882, giftist Bjarna bónda á Heiði Einarssyni. Þau áttu 14 börn. Er börnin á Heiði voru tíu var þetta kveðið: Bjarni og Rannveig börn með tíu: Byrjar Einar, Eiríkur, Gróa og Solveig ganga um stíu gjörir fylgja Ragnhildur. Jón, Róshildur, Einar er og svo líka Þórunn hér. Yngstur Jón minn er hér drengur ekki er þörf að kveða lengur. Ot af þeim Heiðarhjónum, Rann- veigu og Bjarna er kominn mikill fjöldi Skaftfellinga. 2. Jón eldri f. 1802 — d. 1863. Hann kvæntist Ólöfu Sveinsdóttur frá Fossi á Síðu. Þau bjuggu í Heiðarseli og áttu 12 börn. Meðal sona þeirra var Stein- grímur silfursmiður í Heiðarseli, síðar á Fossi. Hann var kvæntur frænku sinni Þórunni Eiríksdóttur frá Hlíð. Ein af dætrum þeirra Heiðarselshjóna var Ragnhildur kona Einars Bjarnason ar á Heiði. Þau voru systkinabörn. Sonur þeirra var Bjarni, faðir þeirra Heiðarsystra, Kristínar og Elínar, sem enn búa þar. 3. Oddur eldri f. 1804 — d. s. ár. 4. Þuríður eldri f. 1805 — d. s. ár. 5. Þuríður yngri f. 1807 — d. 1866, giftist Þórhalla Runólfssyni. Þau bjuggu í Ytri-Ásum, Skálmarbæ I Veri og síðast í Mörk á Síðu og áttu 14 börn. Þórhalli var heilsuveill á yngri árum og lagðist stundum rúmfastur I vesöld og hugarangri. Eitt sinn er hann var á Flögu hjá Vigfúsi hreppstjóra Bótólfs- syni, lá hann og hafðist ekki á fætur fyrr en Vigúfs lagði á hest sinn og reið upp að Hlíð og bað Þuríðar heimasætu honum til handa. Tók hún því liklega. Þótti Vigfúsi vel hafa tekizt um erindi sitt og er hann kom heim gekk hann að rekkju Þórhalla og ávarpaði hann með þessari vísu: Rístu’ upp snjallur Runólfs bur rýmdu þungum krossi, þú mátt vakna Þórhallur þú átt von á kossi. Reis þá Þórhalli úr rekkju og kvænt- ist Þuríði. Voru þau gefin saman í Ása- kirkju 4. ágúst 1824. 6. Eiríkur f. 1808 — d. 1877 bóndi í Hlíð, kvæntur Sigríði Sveinsdóttur læknis Pálssonar. Hún var hin mesta „merkiskona, fróð og minnug, og fræddi mig um ýmislegt er snerti ævi föður hennar," segir Þorvaidur Thor- oddsen. Meðal barna þeirra voru sr. Sveinn í Ásum og bændurnir Björn í Svínadal og Jón i Hlíð. Dr. Jón Þor- kelsson ólst upp í Hlíð hjá þeim Sig- ríði og Eiriki. Hann kvað ljóðabréf til Björns fóstbróður síns og minnist lið- inna bernskudaga heima i Hiíð: Man ég forðum marga stund man ég ótal gaman þegar við með létta lund lékum okkur saman. 7. Gísli eldri f. 1810 — d. 1848. Kona þessum kletti stoð kofinn. hans var Guðrún Eiríksdóttir frá Hof- felli í Nesjum. Þau bjuggu að Gröf í Skaftártungu. Þau eignuðust 3 börn. Guðrún andaðist 1. nóv. 1845 en Gísii kvæntist aftur Kristínu Símonardóttur mállausa, Mála-Davíðssonar. Þeirra sonur var Gísli í Gröf, sem giftist Þuríði Eiríksdóttur frænku sinni frá Hlíð. Með kveðju til þeirra endar dr. Forni ljóðabréf sitt til Björns í Svína- dal: Sumarið kemur, sólin skín og sendir geisla, að öllum mun hún heillum hvisla. Heilsaðu bæði Þuru og Gisla. 8. Sigríður f. 1813 — d. 1878. Hún giftist Guðmundi bónda í Hoffelli í Nesjum Eiríkssyni. Þeirra börn voru 6. Eitt af þeim var Eiríkur hreppstjóri á Brú á Jökuldal, síðar í Syðra-Firði í Lóni. Hann var hagmæltur. Eftir hann eru þessar alkunnu vísur: Mikaels — frá — messudegi miðrar góu til i Syðra-Firði sólin eigi sést það tímabil. Framh. á bls. 30 26 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 22. desember 1970

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.