Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.1987, Qupperneq 6
Borgin Síena séð úrlofti. Á
torginu á miðri myndinni
fara hátíðahöldin fram.
Palíóið í Síena
Fyrstu heimildir um kappreiðarnar í Síena eru
frá 13. öld. Þær hafa breytt um mynd í tímans
rás en hugmyndin að baki þeirra hefur alla tíð
verið hin sama. Þeir sem etja kappi við hvern
annan eru borgarbúar sjálfir eða hverfin í borg-
í borginni Síenu á Ítalíu
eru haldnar kappreiðar
tvisvar á sumri. Þetta eru
ekki venjulegar
kappreiðar á skeiðvelli,
heldur er aðaltorg
borgarinnar lagt undir
keppnina.
Kappreiðarnar snúast
ekki um veðmál, eða
gæði hrossanna heldur
eru þær trúarhátíð sem á
rætur sínar að rekja aftur
til miðalda.
Eftir
GUNNSTEIN ÓLAFSSON
inni. Hrossin og knaparnir eru fengnir utan
borgarmúranna en keppa í nafni hverfanna.
Borginni er skipt í 17 hverfi eða kontrödur
sem hvert á rétt á að tefla fram einu hrossi.
Vegna þrengsla á brautinni taka aðeins 10
kontrödur þátt í hlaupinu hverju sinni en
sjö sitja hjá og bíða næsta hlaups að ári.
Þær þijár sem eftir eru til að fylla tuginn
eru dregnar úr hópi þeirra sem kepptu áð-
ur. Sigurvegari keppninnar er sá sem kemur
fyrstur í mark. Sá sem er annar tapar. Á
meðan á hlaupinu stendur mega knapamir
gera allt sem þeir vilja til þess að meija
sigur. Þeir mega jafnvel hindra hina með
keyri sínu. Allt er leyfilegt. Verðlaunin eru
veglegur silkiborði sem nefnist palíó og af
honum dregur keppnin nafn sitt. Kappreið-
amar em haldnar til dýrðar Maríu mey,
vemdardýrlingi Síenuborgar.
KONTRADAN
Síena er á Mið-Ítalíu, skammt suður af
Flórens. Borgimar hafa jafnan eldað grátt
silfur saman og hefur. Síena ávallt liðið fyr-
ir nærveru risans í norðri. Síenar minnast
sigursins sem þeir unnu á Flórens árið 1260
sem þýðingarmesta atburðar í sögu borgrík-
isins á miðöldum og fram að falli þess árið
1555. Á þessum tíma var Síena stórveldi
en hvarf síðan í mengi smáríkjanna sem
Medici-ættin í Flórens lagði undir sig og
skákaði í valdabaráttunni við erlent hervald.
Borginni er eins og áður segir skipt niður
í 17 hverfí og líta þau á sig hvert og eitt
sem sjálfstæðar einingar. Síena er því ekki
aðeins ein borg heldur borgríki með 17
smáborgum sem allar hafa sjálfstæða stjóm,
eigin fjárhag, eigið tákn, eigin fána, eigin
Vamarlið Síenu var vel búið nýtízku vopnum.
söng og sína sérstöku sögu. Þær heita
kontrödur og fylgja íbúum sínum frá vöggu
til grafar í bókstaflegum skilningi. Börnin
sem fæðast innan kontrödunnar em skírð
til hennar. Þegar þau fermast er fulltrúi
kontrödunnar viðstaddur, sömuleiðis við
giftingu og hún ber félagsmenn sína síðasta
spölinn til grafar. Hver Síeni telur sig skyld-
ugan til þess að þjóna kontrödunni og
kontradan hleypur undir bagga með honum
eigi hann í fjárhags- eða persónulegum erf-
iðleikum. Kontradan þjónar því að vissu
marki sem tryggingarfélag líkt og
frímúrarareglan. Foreldrar ala böm sín upp
í ást til kontrödunnar, sýna þeim hvaða
þýðingu hún hefur í lífí þeirra og kennir
þeim að virða hinar kontrödurnar eins og
þessi síenska bamagæla ber með sér: (í
hógværð sinni sleppa mæðumar þó oftast
að nefna eigin kontrödu.)
Iðrahöndlar gæsirnar,
júðasynir turnarnir,
dýrðlingsbanar sniglamir,
turtildúfur valdníðingar,
pardusarnir líkgrafarar. .
Bylgjan myrti Makkebeus,
langhálsaðir gíraffamir;
puntsvínið, sautjándíni,
skítalykt af skeljungunum,
sauðahjörðin sundurslitin.
Brjóstmylkingar sæúlfar,
eiturbrydduð silkilirfan,
sjónumblindar uglurnar,
slönguhændir drekarnir,
karlkerlingar skógarmenn,
treggáfaðir einhyrningar,
skítagulir arnarungar