Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.1987, Blaðsíða 34
Vinna sem betur hentar
ungum mönnum
Blaðaljósmyndari: Ámi Sæberg á Morgunblaðinu
Margir hafa þá hugmynd um nútíma blaðaljós-
myndara, að þeir séu frekir og ágengir og
svífist einskis í þeirri viðleitni að ná betri
myndum en keppinautarnir. Þessi mynd af
vargagangi blaðaljósmyndara er áreiðanlega
sprottin úr sjónvarpinu, þar sem þeir sjást
stundum ryðjast hver um annan þveran,
þegar eitthvert stórmenni er á ferð eða
miklir atburðir að gerast. Þannig er það
líka úti í hinum stóra heimi. Eitthvað
ámóta hefur ugglaust átt sér stað héma
í fyrra, þegar toppfundurinn var haldinn
í Höfða, en þar fyrir utan má segja, að
mesta agúrkutíð ríki árið um kring og
ærið sjaldgæft að blaðaljósmyndarar þurfí
að olnboga sig áfram eða slást um færi til
að ná mynd.
Með fáeinum undantekningum má
segja að ljósmyndaraliðið af blöðunum sé
mjög ungt að árum, enda liggur í hlutar-
ins eðli að það er nauðsynlegt að vera
léttur á sér. Einn af ungu mönnunum á
Morgunblaðinu, sem gegnir þessu hlut-
verki, er Ámi Sæberg og hefur nafn hans
oft sést í Lesbók vegna þess að hann tek-
ur gjaman myndir 'af listaverkum, sem
þar birtast.
„Það er mikið til í því, að blaðaljós-
myndun sé ungra manna vinna," segir
Arni og bætir við: „Það gerir hraðinn.
En það hefur Iíka sína kosti að vera búinn
að starfa jafnvel áratugum saman í þessu
og þekkja marga. Persónulegur kunnings-
skapur opnar mönnum ýmsar dyr í þessu
eins og öðra. Eg er ekki blaðaljósmyndari
vegna þess að ég hafí ákveðið það fyrir
löngu og ekki getað hugsað mér annað.
Atvikin leiddu bara til þess eitt af öðra.
Við getum sagt, að það hafí verið tilviljan-
ir.“
Um dæmigerðan vinnudag blaðaljós-
myndara segir Ámi: „Dagamir era aldrei
eins, svo það er erfítt að ákveða, hvemig
dæmigerður dagur er. Þetta er vaktavinna
og þar af leiðandi misjafnt hvenær byijað
er. En þegar við mætum á staðinn fáum
við fyrirskipanir frá fréttastjóra og það
gæti jafnvel verið að fara í hvelli til Græn-
iands, — nú eða að labba út í næsta hús
og taka þar mynd af manni. Líklega er
algengast að samtök eða fyrirtæki efni
til blaðamannafímda og að við séum send-
Ámi Sæberg, ljósmyndari hjá Morgunblaðinu: „Get legið yfir
tízkublöðum á sama hátt og aðrir liggja yfir bílablöðum. “
Mynd eftir Árna af eyðibýli á Hornströndum. Hér er mikið hvannstóð á sumrin og hér standa hvannirnar uppúr fönninni.
Húsið hefur nú verið brennt.