Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.1987, Blaðsíða 10
Æðahnútar
og eiturlyf
Ný smásaga
eftir EINAR MÁ
GUÐMUNDSSON
Nú eru næstum því tveir áratugir síðan svarti
íþróttabragginn var rifinn. Hann stóð á milli
bæjarblokkanna og sjoppunnar, rétt hjá skól-
anum. Ef ég man rétt var það einn sólbjartan
vordag að hafist var harida. Það getur líka
Það er ekki vitað til að neitt markvert
hafi gerst meðan á rifrildinu stóð. Ekki
nema ef vera skyldi að önnur framhliðin
féll oná fótbolta sem strákar á túni skammt
frá voru að sparka. Sömuleiðis fundust þrjár
óhlaðnar skammbyssur og nokkur skothylki
hafa verið vetur eða dumbungslegt haust.
Það komu tveir stórir kranar og ótal kúbein
voru notuð til að jafna hann við jörðu. Mig
rámar enn í hljóðin þegar bárujárnsplötum
var hlassað niður á vörubílspalla. Svo var
hann horfinn upp á hauga.
1 - 1 W&m m "B y v • !
yZ- o m f c \ J ,, H
þegar farið var að gramsa í rústunum und-
ir fjölum íþróttasalarins. Einnig komu í ljós
heiðursmerki af yfirmannabúningi og undir-
föt af konu. Byssurnar, skothylkin og
heiðursmerkin voru flutt á Þjóðminjasafnið
en hvorki undirfötin né fótboltinn.
Það er alveg sama hvernig á málin er
litið. Svarti íþróttabragginn hafði runnið
sitt skeið á enda. Sögulegt framlag hans
til hermála var þegar orðið saga. Sem að-
staða til íþróttaiðkana var hann úreltur. Að
minnsta kosti ekki boðlegur útlendum lands-
liðum að keppa í handbolta. Það eina sem
hann gerði var að standa í vegi fyrir vega-
framkvæmdum. Á sínum tíma hafði hann
verið reistur fyrir bresku hermennina þegar
þeir hemámu landið. Hann varð eftir þegar
stríðinu lauk einsog svo margt sem stríðinu
fylgdi. Þá var honum breytt í íþróttahús og
var lengi vel helsta íþróttahús borgarinnar.
Þar vora íslandsmótin í handknattleik hald-
in. Þar fóra fram fimleikasýningar og
körfuboltaleikir. Eitt sinn mætti fimleika-
flokkur ofan af Keflavíkurflugvelli.
Amerískar stelpur dönskuðu can-can-dans
með tilheyrandi fótasveiflum og pilsasvift-
ingum. Á eftir sýndu skólanemendur reiptog
og höfuðstökk. Þegar íþróttahöllin með
kúluþakinu var byggð gekk bragginn úr
skaftinu sem íþróttahús. Skólinn fékk bráða-
birgðaaðstöðu fyrir leikfimikennsluna í
íþróttahöllinni á meðan verið var að inn-
rétta leikfimisal í nýrri álmu við byggingu
hans.
í dag liggur tvískipt malbikuð akbraut
yfir svæðið þar sem bragginn stóð og þó
nú séu liðin tæp tuttugu ár síðan hann var
rifinn og enn lengra síðan ég var að slíta
barnsskónum þar í grennd, og þó ég hafi
síðan slitið ótal öðrum skóm í mörgum borg-
um, hrýs mér enn hugur þegar ég minnist
sturtuklefans sem var grámálað herbergi inn
af búningsklefanum. Þannig er bragginn
hluti af sál minni. Þaðan hefur hann enn
ekki verið rifinn.
I gegnum sturtuklefann var gengið út í
leikfimisalinn. Hann bergmálaði mjög und-
arlega. Síðar hef ég oft heyrt þetta bergmál
á næturrölti mínu í borgunum. Til dæmis
þegar ég skýst inn hliðargötu í leit að
dimmri krá. Hjartað berst við torkennilegan
ótta og sjálft himinhvelið fær á sig mynd
gráleits sturtuklefa. Þegar ég er timbraður
eða með tannpínu sé ég fyrir mér pípulagn-
imar sem vora utan á veggjunum. Þær
leggjast einsog æðanet yfir höfuðið. Mig
dreymir að ég sé á tónleikum þar sem loft-
pressur leika fyrir dansi. Þetta hefur oft
tafið mig frá doktorsritgerðinni.
Ég kalla martraðir mínar til vitnis.
Tvívegis hefur niðurfallsopið með sápurenn-
andi vatninu gleypt mig. í örvilnan hef ég
flúið ljósastaur af því ég hélt hann væri
sturta. Nýtískuleg íþróttahús lít ég hom-
auga, sundlaugar forðast ég. Þó veit ég
fátt skemmtilegra en að synda baksund.
Ég þarf ekki annað en að sjá sturtuklefa í
bíómynd til að hún hellist yfir mig minning-
in þegar naktir bekkjarbræður mínir
umkringdu mig í sturtuklefa svarta íþrótta-
braggans.
Rennblautir stóðu þeir og bentu.
Rennblautir ... Einsog það hafí gerst í
gær ... einsog þeim rigni úr loftinu ...
Eg nudda sápunni upp og niður rifbeinin.
Ég nýt þess að finna vatnið renna. Það fell-
ur einsog foss yfir höfuðið. Þá heyri ég
raddir, lít upp og sé ótal fingur sem benda.
Hvað vilja allar þessar raddir? Hvað meina
allir þessir fingur? Eitt andartak held ég
að athyglin beinist að nýsprottnum háranum
umhverfís kynfærin. Við eram ekki margir
sem getum státað af góðri sprettu. Þeir sem
ekki geta það eru fyrir löngu hættir að segja
að við eigum að greiða okkur að neðan.
Þess era jafnvel dæmi að þeir sem era al-
veg sköllóttir hafi málað á sig hár með
tússlit.