Lesbók Morgunblaðsins - 19.03.1988, Side 12

Lesbók Morgunblaðsins - 19.03.1988, Side 12
Hansaborgin , Liibeck Isjónvarpsauglýsingum ferðaskrifstofanna uppá síðkastið hefur mátt sjá hyaða hugmyndir forráða- menn þeirra hafa um vilja hugsanlegra viðskipta- vina. Samkvæmt þessu beinist allur áhugi væntan- legra ferðamanna til útlanda að því einu að busla Eins og að undanförnu munu margir íslendingar fara í sumarleyfinu til Danmerkur, Hollands, Þýzkalands og fleiri staða í norðanverðri Evrópu. Þeim er í þessari grein bent á hansaborgirnar þýzku, ekki sízt Liibeck, sem er á margan hátt hrífandi og svo merkileg heimild um löngu liðna tíma, að UNESCO hefur tekið bæinn í tölu útvalinna merkisstaða. á baðströnd, sitja með glas í hendi á sund- laugarbakka og horfa á börnin í vatnsrenni- brautunum. Að minnsta kosti er reynt að beina sem flestum í þann farveg. Það fóður sem ferðaskrifstofumar auglýsa og halda að landsfólkinu, er nokkuð einhæft og mætti af þessu álykta sem svo, að ekki þurfi að auglýsa fyrir þá, sem kjósa öðruv- ísi ferðir. Ekki er ætlunin að gera með einu orði lítið úr sólarlandaferðum; þær eru sjálfsagð- ur og nauðsynlegur valkostur. En það væri kannski hægt að hafa fleiri rétti á matseðlin- um, - og raunar eru þeir til, þegar betur er að gáð. Síðustu árin hefur færzt í vöxt, að íslendingar kjósi sumarhús í Hollandi, Þýzk- alandi eða Danmörku ásamt bílaleigubíl, sem gerir fólki kieift að sjá ókunn lönd og borgir. Sá ókostur fylgir þessu, að sumar- veðrátta í Norður-Evrópu getur brugðist til beggja vona eins og átti sér stað síðastliðið sumar. Það er þó undantekning og afar ólíklegt að það gerist aftur í bráð. Hansaborgirnar Þeir sem kjósa flug og bíl og kannski sumar- hús einnig í þeim löndum sem fyrr eru nefnd, hljóta að íhuga einnig hvert fýsilegt sé að aka. Akstur á hraðbrautum eða þjóð- vegum Evrópu er ósköp tilbreytingarlaus út af fyrir sig og engin hætta á að maður gleymi sé við að stara hugfanginn á lands- lagið eins og á Islandi, — að minnsta kosti ekki fyrr en komið er suður í Alpa. Það getur einnig verið þreytandi og erfitt að vera á bíl í stórborgunum og flestir reyna að forðast það á sumarleyfisferðalögum. Smærri borgir og bæir eru miklu betri valkostur og í Norður Evrópu úir og grúir af þeim. Að fara til nokkurra slíkra borga í Þýzkalandi einu, væri meira en nægilegt Maríukirkjan að innan. Hún er sérstæð fyrir mjög litfagra skreytingu, sem byggð var á miðaldafyrirmynd. viðfangsefni í sumarleyfinu og óvíða er betrá að koma og vera gestur en í Þýzkalandi. En til þess að ætla venjulegum sumarleyfis- ferðalang ekki of mikið, vil ég benda á viðr- áðanlegan valkost, sem ég veit af fenginni reynslu, að hægt er að mæla með. Eg á þar við Hansaborgimar þýzku, sem svo hafa verið nefndar: Liibeck, Bremen og Miinster. Hansaborgimar em að vísu fleiri; Hamborg þar á meðal. En vegna þess að hún er stórborg, ætta ég að sneiða hjá henni hér. Hinsvegar er ekki ólíklegt að fólk vilji sjá Hamborg, ef það er á annað borð komið á svæðið og þá er það ekki mikið mál. Hamborg er stórfengleg borg ogmikil verzl- unarborg. Þeir sem vilja fara sérstaklega í Hansaborgaleiðangur, geta flogið héðan beint til Hamborgar og stanzað þar áður en lengra er haldið. Ekki tel ég nauðsynlegt að taka bílaleigubíl til að sjá Lvibeck, Brem- en og Miinster, því lestarferðir þama á milli em tíðar og áhyggjuminna ferðalag er ekki til en að dóla milli borga í lest. Leiðin liggur þá um Slésvík-Holstein, mar- Schiffergesellschaft - skipstjórahúsið í frá 1535. Þar er mjög vinsælt og gott v Hús frá tímum hansakaupmanna. flatt landbúnaðarhérað og frjósamt með kúm á beit, sem mjólka alltof mikið, svo af hljótast smjörfjöll og kvótar eins og víðar. HlN UPPHAFLEGA Hansaborg Er eitthvað sérlega merkilegt og heillandi við Hansaborgir og hversvegna eru þær nefndar svo. Já, það er margt stórmerkilegt við þær og einu er hægt að lofa: Það er eftirminnilegt að koma þangað; sjá borgir, sem vom að á köflum lagðar í rúst í stríðinu, en sökum ástar á fortíðinni var allt byggt upp svo til nákvæmlega eins og það hafði verið, - og allt fellur svo í ljúfa löð, að maður sér raunar ekki hvað hefur verið byggt upp. Og svo er það nafnið, sem Þjóð- vetjar halda ennþá í með nokkru stolti: Hansestadt - borg Hansakaupmanna. Þeir vom mikils ráðandi hér á stóm svæði á 200 ára tímabili; frá því fyrir 1300 og framund- ir 1500. Veldi þeirra hófst í Liibeck með 12

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.