Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 08.06.1996, Qupperneq 16

Lesbók Morgunblaðsins - 08.06.1996, Qupperneq 16
VERÐLAUNALJÓÐ LISTAHÁTÍÐAR Fyrstu verdlaun Onnur verólaun Þrióju verólaun GUNNAR HARÐARSON ÞÓRÐUR HELGASON RAGNARINGIAÐALSTEINSSON Blánótt - Brot - Hugleiðing I. Út ífínmalað kaffið bættirðu kardimommum og settir í eirlitan ketilinn hinkraðirþangað til vatnið fór aftur að sjóða helltir ísmáa bollana freyðandi vökvanum. Og í dauflýstri stofunni sveif kliðurinn líkt ogreykur, leið út um opinn gluggann, útágötu þar sem léttklæddir skuggar flöktu á mildum veggjum oghlátrar og vélhjól brutu upp samhljóma torgsins. Með sykurhúðuðum kökum sýndirðu okkur landsvæði andstæðra fylkinga útskýrðir staðhætti og aðstæður hvernigþorpin breyttust ílínur talaðir við okkur kvöldið allt með leiftur íaugum við gný af fjarlægum þrumum. Svo fórum við út undir þungbúið hvolfþak næturinnar og regndropar rifuðu mynstur úr deplum á stéttina og fótatakið hljómaði í þröngri götunni eins og áleitnar hugsanir. Svo steyptist niður úrskýjunum blindhvítt haglél sem buldi á bílum ogþökum. Éggreip íhönd þína þéttingsfast og við tókum á rás yfir torgið í átt að kirkjunni komum þá auga á strætisvagnaskýli hlupum þangað og hlustuðum þar og biðum. Stjörnur Nú stjörnuljósum litlu börnin hampa íléttum höndum sínum - ogþau fagna en harma þegar blysin upp til agna á örskotshraða brenna leifturglampa. Og elskendurnir ástardrauma skapa en innan stundar neyðast til að vakna. Þeir einlægt ljúfra sæludrauma sakna er sjá af himni ástarstjörnu hrapa. En hæst á víðu hvolfi ávallt brenna hægum loga á traustum, fomum arni himinljós sem allirmunu erfa. Ogmeðan örstutt æviskeiðin renna þau alltafverða hverju sorgarbarni stjörnuljós sem aldrei, aldrei hverfa. Krossar og staðreyndir Rammbyggð og sterk eru rökþín, frændi, þau hefja sigyfir hversdagslegt skvaldur staðreyndir þínar standa traustar íkaldri reisn eins og krossar úr tré sem rísa við sjónhringinn reistir og háir og orð þín skella á andlitimínu. Þú hittir naglann á höfuðið, frændi. En óljós grunur minn um að annað sé rétt íföluljósinu fellur tiljarðar eins og seytli blóð úrsærðum höndum og blandist að lokum blessaðri moldinni. DJASSHUÓMSVEIT Carls Möllers leikur á Ijóðakvöldi Listahátíðar í Loftkastalanum annað kvöld undir upplestri nokkurra Ijóðskálda. Ljóðskáld og djass- leikarar á Listahátíð LJÓÐ OG DJASS nefnist dagskrá á Lista- hátíð sem fram fer í Loftkastalanum á morgun, sunnudag kl. 21. Samvinna á milli Ijóðskálda og djasslistamanna hefur tíðkast lengi, bæði í Bandaríkjunum og á Norðurlöndunum. Fyrir rúmum tuttugu árum vann hópur íslenskra skálda og tón- listarmanna saman að flutningi ljóða og djass í Norræna húsinu og víðar. Arið 1994 kom þessi hópur saman að nýju ásamt yngra fólki og stóð fyrir nokkrum dagskrám við góðar undirtektir áheyr- enda. Síðastliðið ár hefur þessi hópur einnig heimsótt nokkra skóla til að kynna æsku iandsins ljóð og djass, hefur það sömuleiðis mælst vel fyrir. Höfundur tón- listarinnar er Carl Möller og skilgreinir hann stefin sem ljóðrænan djass eða stefjadjass. Tónlistin er unnin I samvinnu við skáldin og tekur mið af hugblæ ljóð- anna. Hljóðfæraleikarar sem fram koma eru Carl Möller, pianó, Róbert Þórhallsson, bassa og Guðmundur Steingrímsson, trommur. Ljóðskáldin sem koma fram eru Ari Gísli Bragason, Didda, Jón Óskar, Matthías Johannessen, Nína Björk Árna- dóttir og Þorri Jóhannsson. Ljóó úr Ijóóasamkeppni Ljóðakvöld verður haldið í Loftkastal- anum á mánudagskvöld kl. 21 í tengslum við ljóðasamkeppnina sem framkvæmda- stjórn Listahátíðar efndi til. Þar munu nokkur þau skáld sem sendu inn Ijóð í keppnina lesa upp verk sín. Alls bárust 525 ljóð í keppnina frá um 200 skáldum. Fyrstu verðlaun í keppninni hlaut Gunnar Harðarsson fyrir Ijóðið Blánótt, önnur verðlaun hlaut Þórður Helgason fyrir ljóð- ið Stjörnur og þriðju verðlaun hlaut Ragn- ar Ingi Aðalsteinsson fyrir Ijóðið Krossar og staðreyndir. Verðlaunaljóðin ásamt 52 öðrum ljóðum úr samkeppninni hafa verið gefin út á ljóðabók í samvinnu Listahátíð- ar og Máls og menningar. Fílharmóníukvartett Berlínar í óperunni FÍLHARMÓNÍUKVARTETT Berlínar (Philharmonia Quartett Berlin) heldur tónleika í íslensku óperunni sunnudaginn 9.júní kl. 16. Fílharmóníukvartett Berlínar var stofn- aður árið 1980 og er skipaður hljóðfæra- leikurum úr Fílharmóníusveit Berlínar. Fílharmóníukvartett Berlínar kemur reglulega fram á listahátíðum víða um heim og er fastur gestur á árlegum lista- hátíðum í Berlín, Salzburg og Bath á Englandi. Auk þess kemur kvartettinn á hverju ári fram á tónleikaröð sem haldin er í Eigmore Hall í London, leikur fyrir þýska þjóðþingið og ferðast um Japan. í nóvember 1992 hélt kvartettinn sína fyrstu tónleika í Norður-Ameríku og var hápunktur þeirrar ferðar fádæmagóðar viðtökur í „Yale“ háskóla og í „Kennedy Center“ í Washington. Eftir kvartettinn liggur fjöldi hljóðrit- ana m.a. eru nýlegar hljóðritanir á verk- um eftir Beethoven, Mendelssohn og Reg- er fyrir „Thorofon Classies" útgáfufyrir- tækið. Hljóðfæraleikarar Fílharmóníukvart- ettsins eru Daníel Srabawa 1. fiðla, Christ- ian Stadelmann 2. fiðla, Neithard Resa víóla og Jan Diesselhorst selló. Á tónleikunum í íslensku óperunni mun Fílharmóníukvartett Berlínar leika Haydn: op. 74,3 „Reiterquartett", Bartok: Strengjakvartett nr. 6, Beethoven: Strengjakvartett op. 130. FÍLHARMÓNÍUKVARTETT Berlínar. 16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/USTIR 8. JÚNÍ 1996

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.