Lesbók Morgunblaðsins - 30.11.1996, Side 2
LISTASAFN Hallgrímskirkju og List-
vinafélag kirkjunnar hafa boðið
Helga Þorgils Friðjónssyni myndlist-
armanni að sýna verk sín í Hallgríms-
kirkju nú um jólin, og verður sýning-
in opnuð á morgun, fyrsta sunnudag
í aðventu, 1. desember. Á sýningunni
SUNNUDAGINN 1. desember hefst fimmt-
ánda starfsár Listvinafélags Hallgrímskirkju.
Félagið miðar tímatal sitt við kirkjuárið þann-
ig að aðventan markar upphaf hvers starfsárs.
Sigríður Jóhannsdóttir, sem situr í stjórn
félagsins, sagði í samtali við Morgunblaðið,
að dagskrá næsta starfsárs yrði mikil og fjöl-
breytt. „Við munum gera myndlistinni hátt
undir höfði. Á morgun, 1. desember, hefst
starfsárið með opnun sýningar á málverkum
eftir Helga Þorgils Friðjónsson. Á pálma-
sunnudag hefst sýning Magnúsar Tómassonar
og sumarsýning verður svo á verkum Bene-
dikts Gunnarssonar. Á þessum sýningum verð-
ur leitast við að draga fram hinn trúarlega tón
í verkum þessara myndlistarmanna, tón sem
annars hefur ekki verið mjög áberandi á sýn-
ingum þeirra. Á Kirkjulistahátíðinni sem hefst
18. maí verður svo lögð mikil áhersla á mynd-
list.“
Jólaóratória Bachs
Annars segir Sigríður að tónlistin verði að
sjálfsögðu áberandi í starfi félagsins á næsta
starfsári eins og áður. „Á morgun verða haldn-
ir fyrstu tónleikar starfsársins. Þar mun ný-
stofnaður kammerkór Hallgrímskirkju, Schola
cantorum, syngja. Á tónleikunum verður aðal-
lega flutt tónlist eftir enska endurreisnartón-
ÚT ER komin geislaplata með úrvali af
ljóðaflutningi Andrésar Björnssonar.
í kynningu segir m.a.: „Efnið á þessum
hljómdiski er afar
fjölbreytilegt.
Hljóðritanir eru frá
ýmsum tímum, hin
elsta frá árinu
1946, en nýjustu
lestramir teknir
upp 1981. Ljóðun-
um er hvorki raðað
eftir aldri skáld-
anna né heldur eldri
hljóðritana, heldur
með það í huga að
æskilegrar til-
breytni gæti þegar
hlustað er á diskinn
í samfellu.
Fremst fara fjögur kvæði eftir kjörskáld
Andrésar, Grím Thomsen. Þá koma tvö
Söngur Helga Þorgils
verður m.a. málverkið Heilaga fjöl-
skyidan, meðvitað valið með stund og
stað í huga, og stóra málverkið Söng-
ur jarðarinnar - Kór alheimsins,
skáldið William Byrd, messa í fjórum röddum
og mótettur, auk aðventusálma og mótetta
eftir Tomkins og Purcell. Stjórnandi er Hörður
Áskelsson.
Stærsti viðburðurinn á tónlistarsviðinu í
desember er svo flutningur á Jólaóratóríu
Bachs, kantötur I-III og V, flutt af mótettu-
kór Hallgrímskirkju, ásamt einsöngvurunum
Þóru Einarsdóttur, Rannveigu Fríðu Braga-
dóttur, Gunnari Guðbjörnssyni og Lofti Erl-
ingssyni. Hljómsveitin verður að hluta skipuð
hljóðfæraieikurum sem stunda nám í tónlist-
arháskólum erlendis og dvelja heima um jólin.
Tónleikarnir verða 29. desember og endurtekn-
ir mánudagskvöldið 30. desember. Á gamlárs-
dag verða svo árlegir hátíðartónleikar með
vinsælli tónlist fyrir orgel og trompeta. Þeir
heíjast kl. 17.“
I maí á næsta ári verður tekið í notkun
nýtt rafstýrt hljómborð við orgelið í kirkjunni
og gerir það alla aðstöðu til hljómleika- og
helgihalds enn betri en áður. Af því tilefni eru
mörg atriði Kirkjulistahátíðar, 18. maí til 1.
júní, tengd komu hljómborðsins. Þá verður
meðal annars frumflutt verk eftir Hróðmar
Inga Sigurbjörnsson og nýr orgelkonsert eftir
Hjálmar H. Ragnarsson. Hróður orgelsins
hefur borist víða, að sögn Sigríðar, og ekkert
lát er á ásókn erlendra organista eftir að leika
LJOÐALESTUR
höfuðskáld fjórða og fimmta áratugarins,
þess tíma þegar kynslóð Andrésar var ung,
Steinn Steinarr og Tómas Guðmundsson. Á
milli þeirra stendur bragðsterkt minningar-
kvæði eftir Guðmund Friðjónsson á Sandi
sem vísast er mörgum ókunnugt nú á dög-
um. Lengsta kvæðið sem hér er að finna
er hin skáldlega og heimspekilega íhugun
Einars Benediktssonar um uppgang og
hrun Rómaveldis, Kvöld í Róm.
Þar á eftir stendur eitt þeirra skálda sem
Andrés hefur sérstaklega fjallað um, Stefán
Ólafsson, prestur í Vallanesi, og svo Bjarni
Thorarensen, höfuðskáld rómantísku stefn-
unnar. Kennari Andrésar, Sigurður Nor-
dal, kemur næstur og má hér heyra snjaila
þýðingu hans á Atlantis, kvæði sænska
skáldsins Frödings.
þriggja metra langt verk sem hann
málaði 1994, og er óður til umhverfis-
ins. Þar syngjast á íslensk náttúra og
englakór himinsins. „Himinninn er
eins og sálmur sem við horfum biðj-
andi til...“ lét Helgi Þorgils hafa
eftir sér fyrir mörgum árum.
á hljóðfærið og hljórita tónlist í kirkjunni.
Jafnframt vex aðsókn á sumartónleika jafnt
og þétt.
Hallgrimsslefna
Eitt af stærstu verkefnum starfsársins seg-
ir Sigríður að sé Hallgrímsstefna sem haldin
verður í mars á næsta ári í samvinnu við Stofn-
un Sigurðar Nordals. „Þar munu lærðir og
leikir ræða líf, list og trú passíusálmaskálds-
ins. Síðan hefur skapast hefð um að Passíu-
sálmarnir eru lesnir í kirkjunni á föstudaginn
langa. Umsjón með lestrinum að þessu sinni
hefur Ingibjörg Haraldsdóttir, skáld, en marg-
ir munu verða fengnir til að lesa úr sálmun-
um.“
Á dagskrá næsta starfsárs Listvinafélagsins
verða einnig tónleikar sem við köllum Frönsk
jól við orgelið, 15. desember. 26. janúar verða
tónleikar þar sem leikið verður á óbó, horn
og orgel, í janúar og febrúar verða sýnd vegg-
teppi úr fórum Listasafns Hallgrímskirkju, 18.
febrúar verður fluttur fyrirlestur um útsaumuð
kirkjuklæði á íslandi, 16. mars verður dagskrá
sem heitir Kórtónlist á boðunardegi Maríu, á
pálmasunnudegi verða orgeltónleikar með Jer-
emy Filsell frá Englandi og 27. apríl verða
tónleikar þar sem Einar Jónsson og Douglas
Brotchie leika á trompet og orgel.
Eftir Davíð Stefánsson eru tvö ljóð:
Kvæðið um fuglana, ákall skáldsins til
dísar sinnar og hún gefi orðum þess líf
og hin ljóðræna perla Skógarhind. Síðan
kemur gott og sérkennilegt skáld sem að
ófyrirsynju hefur horfið í skugga annarra
samtíðarmanna, hestamaðurinn og ferða-
garpurinn Sigurður Jónsson frá Brún.
Elsta skáldið á diski þessum er Hall-
grímur Pétursson og má hér heyra litla
syrpu úr kvæðum hans og sálmum en
henni fylgir minningarljóð Matthíasar Joc-
humssonar um séra Hallgrím, kveðið á
200. ártíð hans. Að lokum standa svo þrjú
kvæði eftir eitt af helstu ljóðrænum skáld-
um þessarar aldar, Guðmund Böðvarsson,
og endað á hinu máttuga lífsuppgjöri hans,
Kvöld í smiðju.
Upptökurnar eru úrval úr segulbanda-
safni Ríkisútvarpsins. Utgefandi er Af-
mælissjóður Ríkisútvarpsins. Dreifingu
annast Japis. Verð 1.999 kr.
MENNING/
LISTIR
í NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn - Sigtúni
Mótunarárin í list Ásmundar Sveinssonar.
Kjarvalsstaðir - Flókagötu
Sýn. á aðföngum safnsins sl. 5 ár. Sýn. á
verkum Kjarvals til 22. desember.
Listasafn Islands
„Ljósbrigði“. Úr safni Ásgríms Jónss. til 8. des.,
„Á vængjum vinnunnar" til 19. jan.
Gallerí List - Skipholt 50b
Guðrún Indriðad. sýnir út mán.
Ingólfsstræti 8 - Ingólfsstræti 8
Pekka Niskanen sýnir til 1. des.
Hafnarborg - Strandg. 34, Hf.
Jón Óskar og Eggert Magnússon sýna.
Norræna húsið - Hringbraut
Gunnar Örn sýnir til 1. des. og Roger Wester-
holm sýnir til 1. des.
Listasafn Kóp. - Hamraborg 4
Afmælissýn. Ljósmyndaraf. Isl./Guðbjörg
Pálsd./Alistair Maclntyre/til 1. des.
Gallerí Úmbra - Amtmannsstíg
Samsýning. Síðasta sýning salarins.
Gallerí Fold - Laugavegi 118
Samsýning 48 listamaima til 8. des.
Gallerí Hornið - Hafnarstræti 15
Elínrós Eyjólfsd. sýnir til 11. des.
Nýlistasafnið - Vatnsstíg 3b
Finnur Amar, Ingileif Thorlacius og Guðrún
Halldóra Sigurðard. sýna til 8. des.
Undir pari - Smiðjustíg 3
Sólveig Þorbergsd. sýnir til 14. des.
Gallerí Smíðar & Skart - Skólavörðustíg
Englaveisla, samsýning til 20. des.
Sólon íslandus - við Bankastræti
Guðmunda Andrésd. sýnir til 8. des.
Gallerí Sævars Karls - Bankastræti 9
Harpa Kristjánsd. sýnir til 12. des.
Onnur hæð - Laugavegi 37
Lawrenee Weiner sýnir til áramóta.
Gallerí Stöðlakot - Bókhlöðustíg 6
Verk eftir Gunnlaug Scheving til 1. des.
Listhús 39 - Strandgötu 39, Hf.
Jean Posocco sýnir til 2. des.
Gallerí Listakot - Laugavegi 70
Hugrún Reynisd. og Þórdís Sveinsd. sýna
til 5. des.
Galleríkeðjan - Sýnirými
Sýn. í nóv.: í sýniboxi: Victor G. Cilia. I barmi:
Haraldur Jónss. Berandi: Valgerður Matthíasd.
Hlust: 5514348: Margrét Lóa Jónsd.
Gallerí Míró - Fákafeni 9
Ingó sýnir til 30. nóv.
Laugardagur 30. nóvember
Karlakórinn Þrestir, Karlakór Selfoss og
Karlakór Rangæinga halda sameiginlega
hausttónleika í Hvolnum Hvolsvelli kl. 16.
Skálholtskórinn heldur hátíðartónleika í
Dómkirkjunni kl. 17.
Sunnudagur 1. desember
Aðventutónleikar í Skálholtsdómkirkju kl.
20.30. Schola Cantorum í Hallgrímskirkju
kl. 17.
Mánudagur 2. desember
Tónleikar með lögum Sigvalda Kaldalóns
„Við slaghörpuna“ verða í Listasafni Kópa-
vogs kl. 20.30.
Þriðjudagur 3. desember
Tónleikar með lögum Sigvalda Kaldalóns
„Við slaghörpuna" verða í Listasafni Kópa-
vogs kl. 20.30.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Kennarar óskast sun. 1. des., fös.
Nanna systir lau. 7. des.
í hvítu myrkri lau. 30. nóv., fim., Iau.
Kardimommubærinn lau. 30. nóv., sun.
Þrek og tár lau. 1. des., fim.
Leitt hún skyldi vera skækja sun. 1. des., fös.
Borgarleikhúsið
Largo desolato fös. 6. des.
BarPar á Leynibarnum lau. 30. nóv., fös., lau.
Stone Free lau. 30. nóv., lau.
Svanurinn sun. 1. des., fim.
Trúðaskólinn lau. 30. nóv.
Loftkastalinn
Áfram Latibær lau. 30. nóv., sun.
Á sama tíma að ári lau. 30. nóv.
Sirkus Skara Skrípó fös. 6. des.
Deleríum Búbónis sun. 1. des.
Hermóður og Háðvör
Birtingur lau. 30. nóv., fös., lau.
Kaffileikbúsið
Spænsk kvöld lau. 30. nóv.
Hinar kýmar sun. 1. des., lau.
101 Reykjavík frums. mið. 4. des.
Tónleikar Bubba Morthens fim. 5. des. kl. 21.
Skemmtihúsið
Ormstunga sun. 1. des.
Hátún 12
Hala-leikhópurinn sýnir Gullna hliðið lau. 30.
nóv., sun.
Höfðaborgin
Rúi og Stúi lau. 30. nóv.
Leikbrúðuland
Hvað er á seyði? sun. 1. des. kl. 15.
Upplýsingar um listviðburði sem óskað er
eftir að birtar verði í þessum dálki verða að
hafa borist bréflega fyrir kl. 16 á miðviku-
dögum merktar: Morgunblaðið, Menning/list-
ir, Kringlunni 1, 103 Rvík. Myndsendir:
5691181.
Nýtt starfsár Listvinafélags Hallgrímskirkju
JÓLAÓRATÓRÍA BACHS
OG HALLGRÍMSSTEFNA
Andrés Björnsson
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 30. NÓVEMBER 1996