Lesbók Morgunblaðsins - 30.11.1996, Blaðsíða 9
Morgunblaðió/Kristinn
GRIÐKVENNAFLOKKUR séra Snorra á Húsafelli leikles Sperðil í Leikhúskjallaranum á mánudagskvöld. Þær eru Rósa Guöný Þórs-
dóttir, Ingrid Jónsdóttir, Hanna María Karlsdóttir og Guðrún Gísladóttir.
• •
I RAGNA ROKKRIA DEGI
EINSKIS MÁNAÐAR
Speróill heitir elsta varóveitta leikrit ritaó á íslensku
og er gleóileikur í einum þætti eftir séra Snorra
Björnsson á Húsafelli. Leikritió veróur leiklesió
á sviói í fyrsta skipti í Listaklúbbi Leikhúskiallarans
á mánudagskvöld. ÞRÖSTUR HELGASON kynnti
sér verkió og ræddi vió Þórunni Valdimarsdóttur
sagnfræóing sem er manna fróóust um
Snorra og verk hans.
ITILEFNI þess að elsta varðveitta
leikrit ritað á íslensku verður gefið
út í 150 árituðum og tölusettum
viðhafnareintökum fyrir jólin af
Jóhanni Péturssyni skáldi og fyrr-
verandi vitaverði á Horni verður
leikritið, sem heitir Sperðill og er
eftir séra Snorra Björnsson á Húsa-
felli, í fyrsta skipti leiklesið á sviði í Lista-
klúbbi Leikhúskjallarans. Með sýningunni
lýkur afmælishaldi Listaklúbbsins vegna
200 ára afmælis íslenskrar leikritunar. Það
er Griðkvennaflokkur séra Snorra á Húsa-
felli sem leikles verkið. Hér eru það sem
sé ekki karlmenn heldur konur sem leika
öll hlutverk. Þær eru Guðrún Gísladóttir,
Hanna María Karlsdóttir, Ingrid Jónsdótt-
ir og Rósa Guðný Þórsdóttir.
Persónur verksins eru Sperðill (Enra)
póstur, Músikant (Rukeri), flakkari,
Strokkur og Endakólfur, þjónar Sperðils,
bóndi, Salka kona hans og Úfa vinnukona
þeirra. Ennfremur segir eftir persónulist-
ann: „Komædia, saman skrifuð af Hrafna-
Flóka, en að nýju prentuð af Hrappi í
Hrappsey í miðju ragna rökkri á degi
einskis mánaðar."
í bók sinni um höfund verksins, Snorra
á Húsafelli (1989), segir Þórunn Valdi-
marsdóttir að leikritið virðist skrifað fyrir
fólk sem þekkir fyrirmyndir tveggja helstu
persónanna. Nöfn jieirra eru gefin upp
öfug, Enra fyrir Arna og Rukere fyrir
Eiríkur. Segir Þórunn að fyrirmyndin að
Árna Sperðli sé að öllum líkindum póstur
nokkur, að nafni Árni, sem Snorri átti
einhver viðskipti við og að fyrirmyndin að
Eiríki Músikant hafi verið Eiríkur nokkur
Helgason sem Snorri minnist á í kvæði
um hljóð ýmissa dýra.
Hæðst aó grimmilegri
kvenfyrirlitningu
Hugmyndina að því að láta konur leika
hlutverk karlrembusvínanna Sperðils og
Músikants og hinna ágætu þénara Sperð-
ils, Strokks og Endakólds, á Þórunn Sig-
urðardóttir, umsjónarmaður Listaklúbbs-
ins, að sögn Þórunnar Valdimarsdóttur.
„Rétt eins og leikritið Sperðill hvolfir við
gildum síns samfélags snúum við nú þeirri
gömlu hefð við að konur þegðu í kirkjum
og á öðrum opinberum stöðum. Það kemur
fram í leiknum að Sperðill og Músikantinn
þola ekki að konur setji sig klofvega á
háan hest. Konur máttu ekki lesa né syngja
í kirkjunum eftir siðskipti þegar fleiri en
prestarnir tóku að syngja fyrir altarinu
var að sjálfsögðu aðeins karlkynsverum
úthlutað þeim útvíkkaða prestdómi að
mega sitja í kórnum og fá að syngja eins
og prestar höfðu áður einir gert. Konur
tóku ekki að syngja í íslenskum kirkjum
fyrr en með kirkjukórum um og upp úr
aldamótunum 1900.“
Þórunn segir að það hafi þó verið til
að konur hafi sungið heima hjá sér. „En
Sperðill, hinn ó-graði spjátrungur, hefur
sett þann artikúla í lögbók sína að konur
megi ekki syngja né lesa í húsinu ef til
sé karl í kör eða læs drengur eða staut-
andi vinnumannsdrusla, þá eiga þeir frek-
ar að lesa en húsfreyjan.
En Snorri var öðruvísi, hann var annað
vinsælasta rímnaskáld 18. aldar, eins kon-
ar Bubbi eða Megas, náttúrufræðingur og
leikritaskáld, hann sjálfur presturinn var
nógu fijálslyndur eða upplýstur til að láta
persónu í leikriti sínu setja lög um að
banna prestum allar lögmálspredikanir,
hann hæðist að grimmilegri kvenfyrirlitn-
ingu Sperðils eða Árna pósts og hins kjána-
lega umreisandi söngvara Eiríks og for-
dóma þeirra í garð kvenna. Leikritið sýnir
að Snorri hafði ímugust á manngreiningu,
kreddum og fordómum, hann leyfði konum
örugglega að lesa upphátt í húsinu, enda
kvæntur gáfaðri prestsdóttur af fræði-
mannaætt og margra dætra faðir.“
Rammíslenskt leikrit
í bók sinni um Snorra rekur Þórunn
hugsanleg áhrif á Sperðil. „Bent hefur
verið á skyldleika Sperðils við leikrit Hol-
bergs. Einnig hefur verið minnst á tengsl
Skraparotspredikunar skólapilta og leik-
rits Snorra, en þau tengsl eru óljós. Gam-
anleikurinn Sperðill ber svipmót erlendrar
leikritunar á þessum tíma. Hið broslega
er laðað fram með því að ýkja og hafa
endaskipti 'á gildum samfélagsins, og höf-
undur hefur skarpa sýn á samtímann. En
einmitt þessi atriði gera leikritið rammís-
lenskt."
Þórunn segir allar líkur á að Snorri
hafi lesið erlend leikrit og haft af þeim
spurn. „Þótt tengsl leikrits Snorra við er-
lenda leiklist hafi ekki verið rannsökuð
má merkja almenn einkenni í stílbrögðum
í gleðileik hans. Snorri beitir ýkjum, grófri
kímni og skrumskælingum til að skemmta
lesanda. Þessi stíll er á útlensku kallaður
„búrleskur" og er algengur í farsakennd-
um skopleikjum."
Þórunn segir ennfremur að leikurinn
kalli með málfari og merkingu fram átj-
ándu öldina. „Það rifjast upp fyrir lesanda
hvernig var að ferðast um héruð á skóm
úr skinni og roði sem slitnuðu jafnóðum,
troða í þeim for, festast í keldum og skorða
andstæðing milli þúfna. Og þar sem leikur-
inn rýnir gegn þjóðfélagið vekur hann
spurningar: Var verra að lifa á átjándu
öldinni en nú? Hefur mannamunur minnk-
að?“
Möguleikhúsið frumsýnir
„Hvar er Stekkjastaur?“
Á UNDANFÖRNUM árum hefur
skapast sú hefð hjá Möguleikhúsinu
að bjóða upp á sérstaka jólasýningu
fyrir börn í desember. í ár verður
frumsýnt nýtt íslenskt barnaleikrit,
„Hvar er Stekkjastaur?“ Sýningin
verður á sunnudaginn kl. 14.
í leikritinu segir frá því þegar það
gerist eitt sinn fyrir jólin að jóla-
sveinninn Stekkjastaur kemur ekki
til byggða á tilsettum tíma. Halla fer
út af örkinni til að kanna hveiju það
sæti og eftir nokkra leit finnur hún
Stekkjastaur í helli sínum á Esjunni.
Það kemur í Ijós að jólasveinunum
er orðið svo illa við allan ysinn og
þysinn í mannheimum að þeir hafa
ákveðið að hætta að fara til byggða
um jólin og halda þau þess í stað í
hellum sínum. Það verður því verk-
efni Höllu að sýna Stekkjastaur fram
á nauðsyn þess að jólasveinarnir haldi
áfram að koma til byggða.
Verkið verður frumsýnt sunnudag-
inn 1. desember en siðan verður það
sýnt í leikskólum og í grunnskólum á
höfuðborgarsvæðinu og er nú þegar
orðið fullbókað allan desembermán-
uð. Önnur opinber sýning verður í
Möguleikhúsinu sunnudaginn 8. des-
ember, en fleiri verða opinberar sýn-
ingar ekki.
Höfundur og leiksljóri er Pétur
Eggerz, leikarar eru Alda Arnardóttir
og Bjarni Ingvarsson og leikmynd og
búningar voru í höndum leikhópsins.
Morgunbloðið/Arni Sæberg
í LEIKRITINU Hvar er Stekkjastaur? segir frá því þegar það gerist eitt sinn fyrir jólin
að jólasveinninn Stekkjastaur kemur ekki til byggða á tilsettum tíma.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 30. NÓVEMBER 1996 9