Lesbók Morgunblaðsins - 30.11.1996, Side 8
SAFNAÐARHEIMILI og tónlistarskóli í Hafnarfirði. Arkitektar: Hans-Olav Andersen og Sigrrður Magnúsdóttir.
ISLENSK BYGGINGARLIST
Á ALÞJÓÐLEGRI
SÝNINGU í FENEYJUM
EFTIR PÉTUR
H. ÁRMANNSSON
*
Þótttaka Islendingg meó
hinum Noróurlanda-
þjóðunum í sýningu ó
alþjóólegri byggingarlist
í Feneyjum hefur ekki fgr-
ió hótt. Mörgum leikur
þó efalaust hugur ó aó
vita hvaó valió hefur
verió héðan.
DÓMHÚS Hæstaréttar. Arkitektar: Margrét Harðardóttir og
Steve Christer. (Studio Granda)
N ýlokið er í Feneyjum
sjöttu alþjóðlegu bygg-
ingarlistarsýningunni
sem efnt er til í tengsl-
um við hinn fræga li-
statvíæring (biennale)
sem við þá borg er
kenndur. Fyrsta sýn-
ing af þessu tagi var haldin árið 1980 og
var hún liður í dagskrá myndlistartvíær-
ingsins. Þar var tuttugu þekktum arkitekt-
um boðið að teikna framhliðar bygginga
meðfram eins konar götu inn í sýningarská-
lanum. Að baki hverri hlið var hliðarrými
með sýningu á verkum viðkomandi. Meðal
þátttakendanna voru Robert Venturi frá
Bandaríkjunum, Aldo Rossi frá Ítalíu og
Hans Hollein frá Austurríki. Þessi fyrsta
sýning í Feneyjum vakti mikla athygli og
hún átti sinn þátt í því að póst-módemism-
inn svonefndi varð að breiðri, alþjóðlegri
hreyfíngu í byggingarlist á níunda áratugn-
um. Síðan þá hefur byggingarlistar-tvíær-
ingurinn þróast yfir í að verða sjálfstæður
viðburður sem að þessu sinni er haldinn í
sýningarskálum Feneyja-bíennalsins það ár
ÁFENGISVERZLUN ríkisins f Austurstræti.
Arkitekt: Pálmar Kristmundsson.
DÆLUSTÖÐ við Faxaskjól. Arkitektar:
Björn L. Hallsson og Jón Þór Þorvaldsson.
sem myndlistarsýningin er ekki. Sýningin
í ár er ein viðamesta sýning á byggingar-
list sem haldin hefur verið. Auk smærri
sérsýninga á byggingarlist einstakra landa
er ein aðalsýning með verkum frá ýmsum
löndum sem valin höfðu verið af austurríska
arkitektinum Hans Hollein. Yfírskrift henn-
ar var: „Sensing the Future - Architecture
as Seismograph“ (Horft til framtíðar -
byggingarlistin sem skynfæri nýrra hrær-
inga). Eins og nafnið gefur til kynna gaf
þar að líta yfírsýn yfír þá margslungnu
hugmyndastrauma sem einkenna bygging-
arlist samtímans, allt frá rómantískum
draumaborgum Leon Kriers í nýklassískum
stíl til ískaldrar naumhyggju og hátækni-
bygginga í anda módernisma eftirstríðsár-
anna.
Framlag Norðurlanda var samsýningin
„The New Generation of the North“ (Nýja
kynslóðin í Norrænni byggingarlist) sem
unnin var af Byggingarlistarsafni Finnlands
í Helsinki í samráði við systurstofnanir þess
í hinum löndunum. Fyrir íslands hönd tók
Byggingarlistardeild Listasafns Reykjavík-
ur á Kjarvalsstöðum þátt í undirbúningnum.
Á sýningunni var sjónum sérstaklega beint
að vaxtarbroddinum í húsagerð hinna fímm
norrænu þjóða. Leitast var við að draga
fram sérnorræn sameinkenni: söguleg
tengsl og skyldleika tungumála, áherslu
samfélagsins á jafnrétti og félagslega sam-
hjálp, hina margbreytilegu norrænu birtu,
hliðstæður í stílþróun, form- og efniskennd;
- og á hvern hátt þau birtast á mismun-
andi hátt í húsagerð hvers lands. Þátttak-
endur voru valdir úr hópi yngstu kynslóðar
starfandi arkitekta, alls fjórar teiknistofur
frá hveiju landi, sem hver um sig sýndi
eitt verk. Stjómendur sýningarinnar lögðu
áherslu á að sýna fremur raunverulegar
byggingar en tillögur og hugmyndaverk.
Það skilyrði var sett að þátttakendur hefðu,
þrátt fyrir stuttan starfsaldur, náð að full-
gera a.m.k. eina byggingu, þar sem slíkt
væri raunhæfasti mælikvarðinn á hæfni
hönnuða til að móta umhverfi sitt á listræn-
an hátt.
Eftirtalin fjögur verk voru valin sem full-
trúar íslands á sýningunni: hús Hæstarétt-
ar íslands, teiknað af Margréti Harðardótt-
ur og Steve Christer (Studio Granda); dælu-
stöð við Faxaskjól, teiknuð af Baldri Ó.
Svavarssyni, Birni S. Hallssyni og Jóni Þór
Þorvaldssyni á teiknistofunni Úti og Inni;
innrétting verslunar ATVR í Austurstræti
eftir Pálmar Kristmundsson og safnaðar-
heirnili og tónlistarskóli í Hafnarfirði eftir
Hans-Olav Andersen og Sigríði Magnús-
dóttur. Sem fyrr segir er hinni alþjóðlegu
sýningu í Feneyjum nýlokið en norræna
sýningin mun á næstu mánuðum ferðast
milli borga á Norðurlöndum og víðar.
Höfundur er arkitekt og deildarst|óri Bygging-
arlistardeildar við Listasafn Reykjavíkur.
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 30. NÓVEMBER 1996