Lesbók Morgunblaðsins - 11.01.1997, Page 8
Úr fórum Árna Eiríkssonar.
ÁLFHÓLL, jólaleikrit Leikfélagsins 1912. Meðal leikara eru: Helgi Helgason, Árni Eiríksson, Ingibjörg Indriðadóttir Thors, Stefanía Guðmundsdóttir, Andrés Björnsson, Ásmund
ur Árnason, Þóra Magnúsdóttir, Behrens Stefánsson, Dagný Árnadóttir og Anna Borg.
féll frá 1904, en
Sigurður Magnús-
son braut reglur og
varð að hætta. I
fáein ár voru
íinnsta hring Jón
J. Aðils, síðar
sagnfræðiprófess-
or, og Guðmundur
T. Hallgrímsson
læknir. Helgi E.
Helgason var þar
einnig og sama
máli gegnir um
Jens Waage og
Guðrúnu Indriðadóttur.
Næstu árin varð furðu lítil breyting á
verkefnavali og nú á dögum mundi hinn
almenni leikhúsgestur alls ekki kannast við
þessi leikrit. Veturinn 1897-98 eru verkefn-
in aðeins færri, eða 5 talsins. Þar á meðal
var Drengurínn minn, sem fékk mesta að-
sókn, 8 sýningar. Leikárið 1899-1900 var
aukið við framboðið; 9 verkefni á skránni.
Þar á meðal var Ævintýrí á gönguför og
SkríII (Pak), sem var nú flutt í annað sinn
í Reykjavík. Fimm þessara leikrita voru
aðeins flutt einu sinni.
Ibsen á svió 1902
Leikárið 1900-01 er Skríll aftur á
skránni, (2 sýningar), en Heimkoman er
sýnd 8 sinnum og GuIIdrósimar 5 sinnum.
Leikárið 1901-02 gátu leikhúsgestir valið
um 7 stykki. Bezt gekk Heimilið (5 sýning-
ar) en fjögur verkanna voru aðeins sýnd
1-3 sinnum.
Það er síðan leikárið 1902-03 að Ibsen
kemst í fyrsta sinn á íslenzkt leiksvið með
sýningu Leikfélagsins á Víkingunum á Há-
logalandi. Sýningar á því urðu þó ekki nema
5. Næstu árin eru ekki leikrit á skránni sem
fólk mundi almennt kannast við núna; þó
má nefna Gjaldþrotið eftir Björnstjerne
Björnsson, Afturgöngur Ibsens 1904-05 og
Jeppa á Fjalli sama ár.
Kamelíufrúin virðist hafa slegið að-
sóknarmet 1906-07 með 10 sýningum, en
Þjóðníðingur Ibsens er færður upp 1907-08.
Á 12. leikári félagsins 1908-09 er röðin
komin að Skugga-Sveini (8 sýningar) og
þá einnig fluttur Bóndinn á Hrauni eftir
Jóhann Sigurjónsson og fær eitthvað meiri
aðsókn; sýningar urðu 9.
ímyndunarveikin eftir Moliére er á
skránni 1909-10 (8 sýningar) og aftur var
verkið flutt árið eftir. Þá var Nýársnóttin
einnig flutt, en Kinnarhvolssystur urðu vin-
sælli, sýndar 14 sinnum sem þá var met.
Það met stóð þó ekki lengi, því á 15. leik-
ári félagsins, 1911-12, var fluttur Fjalla-
Eyvindur Jóhanns Siguijónssonar, alls 23
'1897
Leikfélag Reykjavíkur
1®®
úra - ll.janúur
1997_i
\
r
Úr fórum Árna Eiríkssonar.
Úr fórum Árna Eiríkssonar.
STEFANÍA Guðmundsdóttir í hlutverki sínu í Kamelíufrúnni 1906.
BORGÞÓR Jósefsson, eiginmaður Stefaníu, var stofnfélagi L.R.
Úr fórum Árna Eiríkssonar.
BEINT samband við Kaupmannahöfn skipti miklu máli. Hér eru þau Stefanía Guðmunds-
dóttir og Árni Eiríksson í heimsókn hjá fjölskyldunni Ache, sem var áhugafólk um leiklist.
Úr fórum Árna Eiríkssonar.
DAGNÝ Kr. Árnadóttir lék fyrst í Fjalla-
Eyvindi 1910, hér í ókunnu hlutverki.
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR ll. JANÚAR 1997