Lesbók Morgunblaðsins - 11.01.1997, Síða 16
NÚ ÞEGAR aldarafmæli
Leikfélags Reykjavíkur
er hátíðlegt haldið, er
vert að minnast þeirra
tímamóta hjá félaginu
sem urðu við stofnun
Þjóðleikhússins 1950.
Nú er það mestan part
gleymt og grafið nema í hinni skráðu sögu,
svo og í minningu elztu leikaranna, sem voru
einmitt að hefja leikferil sinn um sama leyti.
Einn þeirra er Steindór Hjörleifsson, sem á
mikið og gott starf að baki með Leikfélaginu.
Ástæða þess að hann var valinn til þess að
fræða lesendur um „upprisu" Leikfélagsins
eftir 1950 er sú, að hann varð sjötugur á
síðasta ári og lét þá af störfum sem fastráð-
inn leikari. Því má segja, að Steindór hafi
góða yfírsýn yfir það sem gerst hefur hjá
Leikfélaginu síðari 50 árin á ferli þess.
Steindór er Vestfirðingur að uppruna;
fæddur og uppalinn í Hnífsdal, en hóf nám
í Leiklistarskóla Lárusar Pálssonar 1946 og
lauk prófi þaðan 1949, þegar undirbúningur-
inn að stofnun Þjóðleikhússins stóð sem hæst.
Nemendur skólans voru strax settir í statista-
hlutverk eða smáhlutverk í Iðnó og fyrst sté
Steindór á svið í hlutverki klukkusveinsins í
Skálholti eftir Guðmund Kamban; það var
veturinn 1947.
„Á þessum tímamótum þegar Leikfélag
Reykjavíkur var 50 ára, var ný kynslóð leik-
ara að koma úr námi og hefja leikferil sinn“,
segir Steindór. „Samtímis mér í skólanum
voru til dæmis þau Árni Tryggvason, Rúrik
Haraldsson, Soffía Karlsdóttir og Bryndís
Pétursdóttir og Ragnhildur Steingrímsdóttir
en á eftir okkur voru Gísli Halldórsson og
Margrét Ólafsdóttir. En eftir 1950 var Leik-
listarskóli Þjóðleikhússins settur á laggirnar
og þá hætti Lárus með sinn skóla. Hann var
geysilega góður kennari og mikils metinn“.
Rœtl um aó leggja Leikfélagió nióur
„Ákveðið var að gera hlé á starfsemi Leik-
félagsins vegna undirbúningsins að opnun
Þjóðleikhússins. Leikárið 1949-50 voru bara
tvö verk á skránni: Hringurínn eftir Somerset
Maugham og óperettan Bláa Kápan. Sýningar
voru fram að áramótum og kannski örfáar
síðar, en eftir þessi áramót var ekkert nýtt
leikrit tekið til æfínga. Allir sem vettlingi
gátu valdið fóru upp í Þjóðleikhús til þess að
taka þátt í hátíðasýningunum þremur í tilefni
af vígslu hússins. Ég var var með í öllum
sýningunum og það var mikið ævintýri."
Steindór segir að um þetta leyti hafi átt
sér stað umræður innan Leikfélagsins um að
leggja það niður. Starfið þar og löng reynsla
sem leikarar höfðu áunnið sér, hafði í raun-
inni skapað grundvöll fyrir Þjóðleikhúsið og
þá fannst sumum að eðlilegst væri að setja
punktinn aftan við starfsemina í Iðnó.
Þjóðleikhúsið hafði nú tekið við hiutverki
Leikfélagsins og alls ekki þörf fyrir tvö leikhús
í borginni. Nú höfðu ráðizt til Þjóðleikhússins
14 af helztu leikurum félagsins og þar á með-
al voru allir þrír leikstjóramir, þeir Haraldur
Bjömsson, Lárus Pálsson og Indriði Waage;
einnig aðal leikmyndateiknarinn, Lárus Ing-
ólfsson, Hallgrímur Bachmann Ijósameistari
og flestir helztu starfsmenn Leikfélagsins.
Þann 28. ágúst var átakafundur í félaginu;
þar var þá flutt tillaga um að leggja skyldi
niður Leikfélag Reykjavíkur. En góðu heilli
var hún felld með 22 atkvæðum gegn 11.
Fomstan var í höndum Þorsteins Ö. Stephen-
sen, Lárusar Sigurbjömssonar, Wilhelms
Norðfjörð og Brynj-
ólfs Jóhannessonar,
í lok fundarins
gengu síðan í félagið
14 ungir leikarar.
Steindór var einn af
þeim og segir svo
um þennan atburð:
„Við sem höfðum
beðið frammi í lang-
an tíma, spenntir
mjög, fengum nú að
koma inn á fundinn.
Um haustið var svo
haldinn frmhaldsað-
1897
Leikfélag Reykjavíkur
1§®
úra - ll.janúar
I99i;
OG ÁRATUGIRNIR
ÞAR Á EFTIR
Þegar Þjóðleikhúsið tók til starfa vildu sumir í Leikfé-
lagi Reykjavíkur leggja það niður og að starfsemin
flyttist í Þjóóleikhúsið. Sú skoðun varð þó undir. A
þessum tímamótum hóf hópur ungra leikara feril
sinn í lónó. STEINDÓR HJÖRLEIFSSON var einn gf
þeim. GISLI SIGURÐSSON hitti hann að móli.
l.R./Borgarskjalasafn
SKÓLI fyrir skattgreiðendur eftir Verneuil og Berr var sýndur 1953. Alfreð Andrésson
er hér í síðasta hlutverki sínu. Hann er hér með Brynjólfi Jóhannessyni.
, \
, ■ X : S ,■•::
ÚR BROWNING-þýðingunni eftir Terence Rattig;
verk Crocker-Harris í þessari sýningu og aftur f
Myndasafn L.R.
MARGRÉT Helga Jóhannsdóttir, Sigurður Karlsson og
Sofffa Jakobsdóttir í Atómstöðinni 1972.
DELERIUM búbónis eftir Jónas Árnason og Jói
Brynjólfur Jóhannesson og Karl Sii
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 11. JANÚAR 1997