Lesbók Morgunblaðsins - 15.02.1997, Síða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 15.02.1997, Síða 6
LJOSMYNDIR OG LJOÐ I RAÐHUSINU Glugginn þinn er flottastur DROTTNING loftbólanna er sýning í Ráðhúsi Reykjavíkur á ljóðum og ljósmyndum eftir þrjúhundruð tólf ára nemend- ur í Reykjavík. Nemendurnir sóttu námskeið um ljósmynda- sögu, myndbyggingu og myndatöku ásamt kennurum sínum á vegum Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur í haust og er sýningin afrakstur þess. Marteinn Sigurgeirsson, fræðsluráðgjafi, segir að nám- skeiðið hafi verið í tilraunaskyni og ekki hafi verið stefnt að sýningu en útkoman hafi verið svo góð að ástæða þótti til að gefa fólki kost á að sjá verkin. „Krakkamir fengu það verkefni að ganga um ákveðið svæði í miðbæ Reykjavikur og taka myndir; þau áttu síðan að skila einni mynd sem var tekin frá víðu homi og aðra þrönga. Síðan fengum við þeim það verkefni að yrkja (jóð við aðra myndina. Og það er óhætt að segja að það hafi komið á óvart hver útkoman varð.“ Myndefnin sem krakkarnir völdu sér eru af ýmsu tagi. MW Þama virðist vera fundur. einnig er þama hundur þarna er líka kona þetta er bara svona SÖIVI DAVÍÐSSON, Grondoskólo Mjög áberandi em þó mynd- ir af gróðri í ísfjötmm en myndirnar vom, að sögn Marteins, teknar í miklum frostakafla í haust. Gömul hús em einnig áberandi myndefni og myndir úr gamla kirkjugarðinum við Suðurgötu og Tjömina em algengar. Að auki má sjá margar skemmtilegar myndir af smámunum eða smáatriðum sem yfirleitt vekja ekki mikla athygli fólks. í ljóðunum er svo lagt út af myndunum á ýmsan veg eins og dæmi era um hér á síðunni. Sýningin stendur til 17. febrúar. Skugginn þar skyggir á Ijóaið smátt það lýsir hátt. Ljósið það skerandi spyr: Er ég eina Ijósið? EYÞÓR, Grandaskólo Otugglnm þinn Það sést margt í gegnum gluggann þinn Myndir, flöskur, blóm. Glugginn þinn er Oottastur, flottari og að lokum flottastur og lang flottastur Hnoss! ARNAR FREYR EINARSSON, Solósskólo LEIKHÓPURINN sem tekur þátt íuppfærslu nýs íslensks leikrits, Ástandift, í Risinu ídag. orsun 0 ló/< STELPUR HRIFUST AF UNGUM OG FALLEGUM MÖNNUM LEIKFÉLAGIÐ Snúður og Snælda frum- sýnir í dag nýtt íslenskt leikrit, Ástand- ið, eftir Brynhildi Olgeirsdóttur og Sig- rúnu Valbergsdóttur. Leikritið segir frá íj'órum konum sem hittast á kaffihúsi hér í borg. Allar eiga þær það sameiginlegt að hafa orðið ástfangnar af hermönnum sem hér dvöldu á hemámsárunum og rifja þær ýmsar sögur upp frá þeim tímum sem þær hafa aldr- ei sagt nokkrum manni áður. í leikritinu koma ýmsir við sögu sem settu svip sinn á borgar- braginn á stríðsárunum, svo sem hermenn, sjoppueigendur, ástandsnefndarmenn, betri borgarar og bílstjórar. Beeói sorgar- og gleóisögur Brynhildur Olgeirsdóttur skrifaði þætti í Útvarpið fyrir nokkrum árum sem fjölluðu um ástandsárin svokölluðu og urðu þeir kveikjan að þessu verki. „Ég sem sögumar í verkinu en Sigrún býr til leikritið og leikstýrir. Það er ætlunin hjá okkur að fjalla um þessi mál sem við köllum oft ástandið og hefur ekki mátt tala um nema í hálfum hljóðum. Konur sem vom í „bransanum", eins og það var líka kallað, vom stimplaðar og sérstaklega ber á feimni hjá eldri karlmönnum um þessi mál, þeim er enn illa við þessa tíma þótt þetta væri ósköp saklaust hjá stelpunum, að minnsta kosti flestum. Ég myndi segja að þetta hafí verið heilbrigt; stelpur hrifust af ungum og fallegum mönnum og gera enn.“ Brynhildur segir að þau vilji gera hlut kvenna góðan á þessum tíma með leikritinu. „Jónas Arnason, rithöfundur, sagði einu sinni að það væri fjandakomið ekki stelpunum að kenna að stríðið braust út og við tökum undir með honum. En í leikritinu sjáum við bæði sorgar- og gleðisögur gerast, eins og gerðust hjá þessum konum.“ Brynhildur segir að hún hafi sjálf ekki kom- ið til Reykjavíkur fyrr en árið 1942 þegar Bretinn var farinn. „En ég kynntist mikið af stelpum sem höfðu farið í bransann og sjálfri langaði mig voðalega mikið. En ég var af- greiðslustúlka í búð og hafði eigandi hennar numið verslunarfræði sín í Þýskalandi og átti vini þar; við stelpurnar sem unnum hjá honum vissum að ef við myndum fara í dátana myndi hann reka okkur strax. Persónumar í leikrit- inu eru byggðar á hinum og þessum stúlkum sem ég þekkti og sumar þeirra eru alveg upp- diktaðar." Tíu leikarar Snúðs og Snældu koma fram í leikritinu. Að auki em nokkrir úr hópnum sem sjá um ýmislegt á bak við tjöldin. Nýir leikarar hafa bæst í hópinn. Þau Auður Guð- mundsdóttir og Karl Guðmundsson em þekkt úr atvinnustétt leikara. Aðalheiður Siguijóns- dóttir, Sigríður Helgadóttir og Hafsteinn Hansson em einnig ný í hópnum. Sigrún Pét- ursdóttir, Biynhildur Olgeirsdóttir, Anna Tryggvadóttir, Sigmar Hróbjartsson og Sigríð- ur Söebeck hafa öll leikið áður í sýningum Snúðs og Snældu. Að tjaldabaki em Oddný Þorvaldsdóttir, Sigurborg Hjaltadóttir, Sigur- björg Sveinsdóttir og Helga Guðbrandsdóttir. Kári Gíslason hannar lýsingu og leikmynd með hópnum. Magnús Randmp leikur á harm- onikku í sýningunni. Snúður og Snælda heldur upp á sjö ára afmælisdaginn sinn um þessar mundir og er þetta sjöunda stóra verkið sem leikfélagið set- ur upp. Sýningar verða í húsnæði Félags eldri borgara í Risinu, Hverfisgötu 105. 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 15. FEBRÚAR 1997

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.