Lesbók Morgunblaðsins - 01.11.1997, Síða 2
TÓNLISTARDAGAR DÓMKIRKJUNNAR 1. TIL 15. NÓVEMBER
FRUMFLUTNINGUR
Á LOFSÖNGI MISTAR
DÓMKÓRINN í Hallgrímskirkju. Frá Kirkjulistahátfð ísumar.
TÓNLISTARDAGAR Dómkirkjunnar
verða haldnir í sextánda sinn dagana
1. til 15. nóvember. Að vanda frum-
flytur kórinn tónverk sem samið er í tilefni
tónlistardaganna. Höfundur er Mist Þorkels-
dóttir og verkið verður frumflutt við setn-
ingu Tónlistardaganna í dag, laugardaginn
1. nóvember, kl. 17. Gestur hátíðarinnar er
dr. Orthulf Prunner, orgelleikari frá Austur-
ríki, sem leikur verk eftir Bach á tónleikum
annan laugardag.
Verk Mistar nefnist Laudate, pueri, Dom-
inum og texti þess er sóttur í 113. Davíðs-
sálm. Mist nam tónlist í Bandaríkjunum og
lauk prófi frá Háskólanum í Boston þar sem
hún hefur búið undanfarin 8 ár. Lofsönginn
samdi hún fyrir Dómkórinn á þessu ári og
Marteinn segir að þar hafi enn eitt yndis-
lega verkið bæst í safn verka sem samin
hafa verið fyrir Dómkórinn frá því að Dóm-
kirkjan hóf að efna til Tónlistardaga fyrir
16 árum. Mist gleðst yfir því að kórinn skyldi
hafa farið þess á leit við hana að semja
verk fyrir Tónlistardaganna. Davíðssálmar
eru í miklu uppáhaldi hjá henni og hefur
Mist notað þá áður í einu hljómsveitarverka
sinna. „Ég kýs að hafa textann á latínu því
þá liggur áhersla í lykilorðunum sem áheyr-
andinn þekkir," segir Mist. „Þegar ég sem
kirkjulega tónlist vil ég að verkið sé sterkt
og skýrt svo boðskapurinn nái örugglega til
áheyrandans.“
Við setningu hátíðarinnar flytur Dómkór-
inn einnig eldra verk Mistar, Magnificat, sem
frumflutt var af Hamrahlíðakórnum í Skál-
holti fyrir 4 árum. Þá leikur Marteinn H.
Friðriksson, dómorganisti, Orgelmusik eftir
Jón Þórarinsson, sem varð áttræður á þessu
ári. „Jón hefur samið falleg tónverk fyrir
kór og orgel og við viljum senda honum
kveðju á þennan hátt,“ segir Marteinn. í
tilefni af 200 ára afmæli Dómkirkjunnar í
fyrra stóð séra Þórir Stephensen fýrir söfn-
un fjár til kaupa á nýju sembalhljóðfæri
kirkjunnar. Helga Ing-
ólfsdóttir vígir hljóð-
færið við setningu há-
tíðarinnar í dag og
leikur svítu í G-dúr eft-
ir Henry Purcell.
Hljóðfærið kemur frá
einum af bestu sembal-
smiðum Evrópu, fyrir-
tækinu Joop Klinkha-
mer í Amsterdam. Nýi
semballinn gerir Dóm-
kirkjunni kleift að
sinna barokktónlist
mun meira.
Á morgun, sunnu-
dag, kl. 11 verður hátíðarmessa í Dómkirkj-
unni. Dómkórinn endurtekur flutning á Lof-
söng Mistar, auk þess sem messusvör og
önnur tónlist eftir Jón Þórarinsson verða
ríkjandi í messunni. Prestur verður séra
Jakob Ágúst Hjálmarsson og verður mess-
unni útvarpað beint.
Um næstu helgi verða orgeltónleikar dr.
Orthulfs Prunners á laugardag, 8. nóvem-
ber, kl. 17 þar sem leikinn verða verk eftir
Bach. Dr. Prunner var orgelleikari við Há-
teigskirkju í rúman áratug og hélt á þeim
tíma marga tónleika hér á landi og erlend-
is. Hann hefur leikið inn á hljómplötur og
fyrir Ríkisútvarpið lék hann m.a. sex sónöt-
ur Bachs sem taldar eru það erfiðasta sem
Bach samdi fyrir orgel.
Sunnudaginn 9. nóvember kl. 17 verða
barokktónleikar í Dómkirkjunni. Flutt verða
verk eftir Handel, Bach, Vivaldi og Pachel-
bel. Flytjendur eru Marta Guðrún Halldórs-
dóttir, sópran, Hildigunnur Halldórsdóttir,
fiðluleikari, Sigurður Halldórsson, sellóleik-
ari og Marteinn H. Friðriksson, sem leikur
á sembal.
Lokatónleikar Tónlistardaganna verða
Iaugardaginn 15. nóvember kl. 17 í Dóm-
kirkjunni. Þeir eru helgaðir Brahms sem
lést fyrir hundrað árum. Dómkórinn flytur
þijú kórverk undir stjórn Marteins H. Frið-
rikssonar. Undirleik í einu verkanna, Örlaga-
ljóð opus 54,-annast Anna Guðný Guðmunds-
dóttir. Loftur Erlingsson baritonsöngvari
syngur Fjóra alvarlega söngva, opus 121,
við undirleik Önnu Guðnýjar og Marteinn
H. Friðriksson leikur tvo sálmaforleiki.
Mist Þorkelsdóttir
Ein tunga - margar raddir
Gautaborg. Morgunblaðið.
Margrét Rún
Guðmundsdóttir
Kvikmynd um
Sólon Islandus
KVIKMYNDALEIKSTJÓRINN Margrét Rún
Guðmundsdóttir hefur fengið þýzka kvik-
myndaleikstjórann Edgar Reitz, sem með-
framleiðanda að kvikmynd sinni um Sólon
íslandus, byggðri á skáldsögu Davíðs Stefáns-
sonar frá Fagraskógi.
Margrét Rún hefur búið og starfað í
Múnchen í Þýskalandi um árabil og hefur
undanfarið unnið að því að skrifa handrit að
kvikmynd um Sölva Helgason. Áætlað er að
tökur hefjist á íslandi sumarið, 1999. Sam-
starf við kvikmyndaleikstjórann Edgar Reitz
opnar Margréti Rún leiðir til fjármögnunar
myndarinnar í Þýskalandi.
Þekktustu verk Edgars Reitzs eru sögulegu
kvikmyndimar Heimat og Die zweite Heimat,
fjölskyldusögur frá Þýskalandi sem eru miklar
að lengd. Seinni myndin tekur 26 klukkustund-
ir í flutningi og var sýnd í kvikmyndahúsum
víðs vegar um Evrópu í 13 hlutum. Báðar
unnu myndirnar til ýmissa verðlauna, m.a. á
kvikmyndahátíðinni í Feneyjum. Síðasta kvik-
mynd leikstjórans heitir Die Nacht der Reg-
isseure og er frá árinu 1994.
BÓKASTEFNAN hófst í Gautaborg
fimmtudaginn 30. nóvember sl., með setn-
ingu kl. 10 árdegis, á sýningarsvæði Hol-
lendinga og Flæmingja, eða hinna holl-
enskumælandi Belga, sem vinna saman
undir mottóinu „Ein tunga margar raddir“.
Framkvæmdastjóri stefnunnar Bertil Falck
setti hátíðina og minnti meðal annars á að
raunar voru það Hollendingar sem byggðu
upp Gautaborg á sínum tíma, og því sér-
stök ástæða til að bjóða þá velkomna, að
þessu sinni með bókmenntalega uppbygg-
ingu. Einnig tóku til máls Hugo Wecky,
fyrrverandi menntamálaráðherra í Flandur,
og Aaad Nuis, menntamálaráðherra Hol-
lands, svo og Arie Pais, formaður hollensk-
flæmsku menningarstofnunarinnar.
Á blaðamannafundi í kjölfar setningar-
KAMMER- og ljóðatónlistarhátíðinni Schu-
bert-Brahms 1797-1897 verður fram haldið
í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju á morg-
un, sunnudag, kl. 17. Munu ýmsir flytjend-
ur glíma við kammerverk og sönglög tón-
jöfranna tveggja.
Tónleikarnir hefjast á Sónötu í B-dúr
fyrir píanó eftir Schubert. Flytjandi verður
Valgerður Andrésdóttir. Guðrún Þórarins-
dóttir víóluleikari og Helga Bryndís Magn-
úsdóttir píanóleikari munu flytja Sónötu í
f-moll op. 120, nr. 1 fyrir píanó og víólu
eftir Brahms. Þá mun Sigríður Gröndal
sópransöngkona syngja nokkur lög eftir
innar í gær kom fram að þrátt fyrir að
stærstu Stokkhólmsútgefendurnir, svo sem
Bonniers, Wahlström & Widstrand o.fl.,
taki ekki þátt í ár hefur sýnendum fjölgað
frá 702 í fyrra í 715 í ár og sýningarsvæð-
ið teygt úr sér fremur en hitt, í þágu hinna
mörgu minni forlaga sem nú njóta sín því
betur.
Anna Einarsdóttir, sem á sæti í stjórn
Bókastefnunnar, hefur unnið ötullega í
þágu íslenskrar bókaútgáfu og stendur fyr-
ir kynningu á íslenskum bókum einnig í ár.
Undir merki íslandsfánans má því líta bæk-
ur frá Máli og menningu, Iðunni, Hinu ís-
lenska bókmenntafélagi, Sögufélaginu, Ice-
land Review, Háskólaútgáfunni, Hörpuút-
gáfunni, Ormstungu, Bjarti og Vöku-Helga-
felli.
Schubert. Daníel Þorsteinsson leikur með
á píanó í öllum lögunum og Guðni Franz-
son á klarinettu í laginu Der Hirt auf dem
Felsen.
Tónleikamir verða endurteknir í Gerðu-
bergi í Reykjavík Sunnudaginn 9. nóvember
kl. 17.
Fyrirhuguðum tónleikum Bryndísar
Höllu Gylfadóttur og _ Camerarctica, sem
halda átti í Listasafni Íslands undir merkj-
um Schubert-Brahms hátíðarinnar annað
kvöld, hefur aftur á móti verið frestað um
óákveðinn tíma af óviðráðanlegum orsök-
um.
Verk eftir Brahms og
Schubert á Akureyri
MENNING/
LISTIR
I NÆSTU VIKU
Listasafn Islands
í öllum sölum safnsins er sýning á verkum
Gunnlaugs Scheving og sýnd sjónvarpsmynd
daglega um Scheving. Leiðsögn um safnið
kl. 15 í dag.
Listasafn ASÍ, Freyjugötu 41
- Asmundarsalur
Ásmundarsalur og Gryfja: Samsýning 48
félaga í FÍM. Til 16. nóv. Arinstofa: Jóhann-
es S. Kjarval. Verk úr eigu safnsins. Til 7.
des.
Ásmundarsafn - Sigtúni
Yfírlitssýning á verkum Ásmundar Sveins-
sonar.
Kjarvalsstaðir - Flókagötu
Jóhannes Kjarval í austursal, ljósmyndir 30
erlendara listamanna í vestursal og miðsal.
Safn Ásgríms Jónssonar - Bergstaða-
stræti 74
Kyrralífs- og blómamyndir ásamt myndum
úr Reykjavík og nágrenni. Til febrúarloka.
Listasafn Siguijóns Ólafssonar
Sýning vetrarins, Svífandi form. Verk Sigur-
jóns Olafssonar.
Dada, Art Gallery, Kirkjutorgi 4
Sölusýning á nútímalist. Einnig antikmunir
frá Vestur-Afríku. Til 24. des.
Englaborg, Flókagötu 17
Sýning á teikningum og málverkum eftir Jón
Engilberts til 9. nóv.
Gallerí Borg
Tolli sýnir til. 3. nóv.
Norræna húsið - við Hringbraut
Anddyri: Auglýsingaspjöld eftir Tryggva
Magnússon og Jón Kristinsson - Jónda. Til
2. nóv. í ljósaskiptum til 23. nóv. Skartgripa-
sýning til 31. des. tarGet samsýning til 2.
nóv. Tryggvi Ólafsson málverk til 30. nóv.
Hafnarborg
Rebekka Rán Samper sýnir til 24. nóv.
Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði
v/Suðurgötu
Handritasýning til 19. des.
Nýlistasafnið - Vatnsstíg 3b
Valgerður Guðlaugsdóttir, Pasi Eerik Kaij-
ula, Antti Keitilá', Elva Dögg Kristinsdóttir,
Kalle Suomi og Þóra Þórisdóttir sýna til 2.
nóv. Gestur safnsins f setustofu er Þorbjörg
Höskuldsdóttir.
Gallerí List
Florence Helga Guerin sýnir tii 17. nóv.
Gallerí Hornið
Sigurveig Knútsdóttir sýnir til 12. nóvember.
Galleríkeðjan Sýnirými
Sýnibox: Birgir Ándrésson.
Gallerí Barmur: Jóhann L. Torfason.
Gallerí Hlust: Arnfinnur Róbert Einarsson.
Ingólfsstræti 8 - Ingólfsstræti 8
Daníel Þ. Magnússon sýnir til 16. nóvember.
Listasafn Kópavogs - Gerðarsafn
Eggert Pétursson, Helgi Þorgils Friðjónsson
og Kristinn G. Harðarson sýna til 2. nóvem-
ber.
Sjóminjasafn íslands við Vesturgötu í Hf.
Almenn sýning og sýning á olíumyndum
Bjama Jónssonar.
Listaskálinn í Hveragerði
Haustsýning til 23. nóvember.
Laugardagur 1. nóvember
Hafnarborg: Sigrún Hjálmtýsóttir og Tríó
Reykjavíkur halda tónl. kl. 20.
Dómkirkjan: Tónlistardagar Dómkirkjunnar
kl. 17.
Sunnudagur 2. nóvember
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju: Sigríður
Gröndal, Daníel Þorsteinsson, Valgerður
Andrésdóttir, Guðrún Þórarinsdóttir og
Helga B. Magnúsdóttir halda tónl. kl. 17.
Mánudagur 3. nóvember
Listaklúbbur Leikhúskjallarans: Sophie
Marie Schoonjans og Marion Herrera leika
á hörpur kl. 20.30.
Fimmtudagur 6. nóvember
Háskólabíó: SÍ. Gustav Mahler. Sinfónía nr.
9^!tíórnandkPetriSakari^^^^^^^^^
Þjóðleikhúsið
Þrjár systur, lau. 1. nóv.
Grandavegur 7, sun. 2., fös. 7. nóv.
Listaverkið, sun. 2.., fím. 6. nóv.
Krabbasvalir, sun. 2., fim. 6., fös. 7. nóv.
Borgarlcikhúsið
Galdrakarlinn í Oz, lau. 1., sun. 2. nóv.
Hár og hitt, lau. 1. nóv.
Ástarsaga, fös. 7. nóv.
Njála, frums. fim. 6. nóv.
íslenski dansflokkurinn: Trúlofun f St. Dóm-
íngó, frums. 7. nóv.
Loftkastalinn
Listaverkið, sun. 2., fim. 6. nóv.
Áfram Latibær, sun. 2. nóv.
Bein útsending, lau. 1., fös. 7. nóv.
Hafnarfjarðarleikhúsið
Draumsólir vekja mig, lau. 1., sun 2. nóv.
Skemmtihúsið
Ástarsaga, lau. nóv.
Kaffileikhúsið
Revían í den, lau. 1., fös. 7. nóv.
Leikfélag Akureyrar
Hart í bak, lau. 1., fös. 7. nóv.
íslenska óperan
Cosi fan tutte, lau. 1. nóv.
Möguleikhúsið
Snillingar í Snotraskógi, sun 2. nóv.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 1. NÓVEMBER 1997