Lesbók Morgunblaðsins - 01.11.1997, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 01.11.1997, Blaðsíða 16
Myndlist eyþjóóa er í brennidepli á sýningunni Islas/islands í samtímaiistasafninu í Las Palmas á Kanarí- eyjum. HULDA STEFANSDOTTIR fjallar um sýninguna og ræóir vió sýningarstjórann, Orlando Britto Jinorio. SAMSÝNING á myndlist ey- þjóða, Islas/Islands, var opn- uð í Las Palmas á Kanaríeyj- um 16. september sl. Fulltrú- ar íslands eru myndlistar- mennirnir Anna Eyjólfsdóttir og Sigurður Örlygsson. Sýn- ingin er haldin fyrir tilstuðl- an menningarráðuneytis og nútímalista- safns Kanaríeyja og samtímalistasafns Andalúsíu. Sýningin ferðast til menning- armiðstöðvarinnar La Granja í Santa Cruz á Tenerife og samtímalistasafns Andalúsíu, La Cartuja, í Sevilla á Spáni, þar sem heims- sýningin var haldin árið 1992. Þátttakendur eru 28 frá 20 löndum, allt frá Japan til Manhattan-eyju í New York. Vegleg_ sýningarskrá fýlgir verkefninu úr hlaði. í aðfararorðum sýningarstjórans, Orlando Britto Jinorio frá Kanaríeyjum, er greint frá tildrögum sýningarinnar sem verið hefur í undirbúningi sl. 6 ár. Sýning- unni er ætlað að varpa ljósi á sameiginleg einkenni listamanna frá eyríkjum en jafn- framt sýna fram á ólík höfundareinkenni, verkin skyldu vera einkennandi fyrir hveija þjóð. Orlando rekur í grein sinni þróun myndlistar á Kanaríeyjum allt frá því að eyjarnar heilluðu til sín hóp framúrstefnu- listamanna upp úr 1930. Ólíkt íslandi varð súrrealisminn mjög ríkjandi í menningu eyja á suðurslóðum og Breton lýsti því yfir að Tenerife eyja væri paradís súrrealis- mans. Einkenni samtímalista er umhverfís- listin; höggmyndir og innsetningar, Ijós- myndir og jafnvel málverk þar sem málað er með mold og sandi. Um Sigurð Örlygs- son segir Orlando að verk hans gætu kom- ið úr einni vísindaskáldsögu Jules Vemes. Verk hans spretti sem af töfrum fram úr ögrandi og kraftmikilli náttúru landsins í kyngimagnaðri framsetningu þar sem mað- urinn og vélin eru í forgrunn. Um Önnu Eyjólfsdóttur segir Orlando að hún draga áhorfandann inn í táknheim þar sem fram fari samræður íslendings við hefðir og sjálfsmynd sína sem varpi ljósi á öra þróun menningar. öll ntenniitg er sprottin frá einangruóum stödum Orlando segir að sýningunni Islas/Islands sé ætlað að varpa fram þeirri spumingu í hveiju munurinn á menningu eylanda samanborið við meginlönd sé fólgin. „Eg fullyrði ekkert í því sambandi og legg jafna áherslu á það sem greinir að menningu ólíkra eylanda. Sýningunni er fyrst og fremst ætlað að vekja athygli á og skapa umræður um eyjamenningu í víðu sam- hengi.“ Hann segir að líta megi á öll eylönd sem eitt svæði, menning landanna sé að sjálfsögðu mjög ólík en sameiginleg tilfinn- ing fyrir landsvæði einangruðu af hafí tengi íbúa þessara landa. „íbúar eyja hvort sem er í suðri eða norðri skynja umhverfíð á svipaðan hátt. Það vefst ekki fyrir íslend- ingi og Kanaríbúa að ræða um sérkenni eyjamenningar en íbúar á meginlandi gætu aldrei sett sig inn í þennan hugarheim," segir Orlando. Eyjan er algengt tákn í skáld- skap sem óræður heimur þar sem náttúran ríkir öllu ofar. „í gegnum söguna hefur fólk sest að á þessum dularfullu og einangr- uðu stöðum og byggt upp sína eigin menn- ingu sem síðan hefur smitað út frá sér til annarra samfélaga. Öll samfélög má rekja með einum eða öðrum hætti til þróunar sem hófst á einangruðum stað og breiddist svo út.“ Manhattan lítur Orlando á sem tákn- ræna eyju. Þar sameinist ólíkir menningar- heimar í ólgandi suðupotti og margir lista- mannanna sem taki þátt í sýningunni fyrir hönd sinnar eyju búi og starfi í New York. „Manhattan er í senn eyja og meginland, eyja og heill heimur, upphaf og endir. En þó að Manhattan sé alger miðpunktur þá á öll menning sér rætur á einangruðum stöðum og á hveijum degi verður til nýr menningarheimur sem getur af sér ný und- ANNA Eyjólfsdottir synir Rosir a Islas/lslands. Verkin eru fra syningu hennar i Geroarsafni i Kopavogi. Hafió lykill eyþjéóar aó heiminum Aðalsteinn Ingólfsson skrifar um ísland í grein sem hann nefnir Opin eyja, eirðar- leysi eyjarskeggja. Hann segir útþrána eitt megineinkenni íslendinga. Þeim hafi aldrei staðið ógn af hafinu heldur hafi þeir miklu fremur litið á hafið sem lykil að heiminum, framlengingu landsvæðis til þess næsta. Eirðarleysi okkar leiði af sér löngun til að drekka í sig allt það sem heimurinn hefur upp á að bjóða, bæði er- lendan varning sem strauma og stefnur. Útþráin hefur komið menningu þjóðarinnar til góða, því eins og Aðalsteinn bendir á, er skilningur á öðrum heimum nauðsynleg undirstaða listsköpunar. Hann tengir þetta vissu óöryggi þjóðarsálarinnar, löngun til að vera öðruvísi og annars staðar. Aðal- steinn rekur landkönnunarferðir þeirra Eiríks og Leifs og segir að enn í dag fari meira en helmingur þjóðarinnar utan ár hvert í leit að Vínlöndum og grænum lend- um, - og til að sitja á sólríkum ströndum eins og á Kanaríeyjum. Stofn íslenska orðs- ins heimskur sé enda að finna í orðinu heima. Þrátt fyrir öll ferðalögin og búsetu í öðrum löndum snúa íslendingar alltaf aftur heim. „Þeim hugnast fremur að vera stórir fiskar í lítilli tjörn en öfugt.“ Leslur á náttúrunni ur! Fulltrúa íslands á sýningu eyþjóðanna segir Aðalsteinn á margan hátt dæmigerða fyrir íslenska samtímamyndlist. í verkum Sigurðar Örlygssonar megi merkja erlend áhrif frá listamönnum eins og Robert Rauschenberg og Anselm Kiefer en einnig ÞETTA risavaxna 340x700 cm málverk Sigurðar Örlygssonar, Vitund þjóðarinnar EIRÐARLEYSI OG UT 16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 1. NÓVEMBER 1997

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.