Lesbók Morgunblaðsins - 01.11.1997, Page 11

Lesbók Morgunblaðsins - 01.11.1997, Page 11
f- íldri hús hafa fengið andlitslyftingu og nýtt frambærilegt hús risið við Lækjargötu. En á öllu þessu er smábæjarbragur. Þetta er ekki það útlit sem höfuðborg ætti að hafa. ÐHÚSIÐ er að margra dómi bezt teiknaða byggingin sem risið hefur í Kvosinni í 67 ár, en þar sem húsið ar sett niður getur það ekki orðið sú lyftistöng fyrir miðbæinn sem orðið hefði með betri staðsetningu. og húsinu er vel við haldið að utanverðu. Gleð- in vegna þess verður hinsvegar blendin þegar við blasir hvað fyrirtækin í húsinu heita: Wunderbar og Café Romance. Svona nöfn eru alveg dæmigerð í krummaskuðum. Þar að auki er víst ekkert upprunalegt lengur til inn- an dyra í þessu húsi. Ytra byrði þess samsvar- ar þá einhverskonar leiktjöldum. Búið er að leggja stórfé í nýtt Ingólfstorg, sem alls ekki hefur þó náð að verða það mið- bæjartorg með iðandi lífi og allskonar fjöl- breytni, sem einkennir hliðstæð torg í borg- um erlendis. Stundum eru fáeinir strákar á hjólabrettum þeir einu á torginu, en oft er þar alls enginn. Á slíkum stað má ljótleikinn ekki skera í augu eins og hann gerir að sunnan- verðu, þar sem margra hæða, gluggalaus hús- gafl gnæfir og undir honum stendur gamalt bárujárnshús sem er eins og það hafi gleymst og orðið innlyksa í allri þessari steinsteypu. Breytingai- á Sjálfstæðishúsinu til hins upp- runalega eru ánægjulegar. En þvi miður eru fremur fá gömul hús í miðbæ Reykjavíkur, sem eru svo byggingarsögulega merkileg, eða fógur að þau verðskuldi að fá að standa þar um aldur og ævi. En þau eru sem betur fer til: Alþingishúsið og Dómkirkjan, Hótel Borg, Reykjavíkur Apótek, Pósthúsið, Eimskipafé- lagshúsið, Landsbankinn, Iðnó, Iðnaðar- mannahúsið og timburhúsin við Kirkjustræti þar á meðal. Elzta hús Reykjavíkur, Innrétt- ingahúsið við Aðalstræti, fær líka vonandi framhaldslíf á sínum stað. I næsta nágrenni við Kvosina eru einstök byggingarsögulega og fagurfræðilega verðmæt hús svo sem Safnahúsið, Þjóðleikhúsið, Menntaskólinn, Miðbæjarbarnaskólinn, Fríkirkjan og íbúðar- hús Thors Jensens. ► ENNINGARBORGINNI? f LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 1. NÓVEMBER 1997 1 1

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.