Lesbók Morgunblaðsins - 06.12.1997, Side 7
SKAMMDEGISSVEIFLA
„MEÐ þér...,“ syngur sjóarinn (Kjartan Guðjónsson) til stúlkunnar sinnar (Jóhanna Jónas) og
laganna vörður tekur undir (Bergþór Pálsson).
SÖNGDAGSKRÁ með lögum og
textum Jóns Múla og Jónasar
Ámasonar verður frumflutt á
Stóra sviði Borgarleikhússins í
kvöld, laugardaginn 6. desem-
ber, kl. 20.30. Dagskráin neíiiist
Augun þín blá og byggist á fjór-
um söngleikjum þeirra bræðra;
Deleríum búbónis, Allra meina bót, Járn-
hausnum og Rjúkandi ráði, en auk þess verða
frumflutt nokkur lög og textar úr nýju leik-
verki bræðranna sem enn er í smíðum.
Samantekt og stjóm dagskrárinnar er í
höndum Jóns H. Hjartarsonar leikara og rit-
höfundar og hann segir að gestum verði boðið
upp á rólega og hlýja skemmtun með smá
sveiflu í jólastressinu. „Pemað í verkum
þeirra Jónasar og Jóns Múla er í grófum
dráttum ástin og athafnaþráin og út frá þess-
um tveim meginstefum er dagskráin valin,“
segir Jón. Söngvarnir em tengdir með dans-
atriðum og stuttum brotum úr leikverkum
bræðranna. „Við viljum ylja fólki í skamm-
deginu og segja þá litlu sögu sem í atriðunum
felst. Auðvitað er þetta nostalgía og við leyf-
um okkur hispurslaust að vera væmin og
rómantísk, meira að segja talsvert væmin þar
sem okkur finnst það hæfa,“ segir Jón.
Listamennimir sem fram koma em söngv-
ararnir Andrea Gylfadóttir, Bergþór Pálsson
og Selma Björnsdóttir, dansarinn Víðir Stef-
ánsson og leikararnir Jóhanna Jónas, Kjartan
Guðjónsson og Theodór Júlíusson. Hljóm-
sveitin er skipuð Kjartani Valdemarssyni á pi-
anó og harmonikku, Gunnlaugi Briem á
trommur, Sigurði Flosasyni á blásturshljóð-
færi og Þórði Högnasyni á kontrabassa.
Hjómsveitarstjórn og útsetning var í hönd-
um Kjartans Valdemarssonar og danshöf-
undur er Ástrós Gunnarsdóttir. Búningar
eru eftir Stefaníu Adolfsdóttur, leikmynd
gerði Steinþór Sigurðsson og lýsingu Ög-
mundur Þór Jóhannesson. Hljóðstjórnandi
er Baldur Már Arngrímsson og Ingibjörg
Bjarnadóttir er sýningarstjóri.
Söng- og gamanleikimir sem dagskráin
byggist á era allir frá árunum um og eftir
1950 og útlit sýningarinnar vísar til þess
tíma. Jón segir ekki mikið hafa verið samið
af lögum sem henti í skemmtidagskrá sem
þessa og af þeirri tónlist beri verk Jóns Múla
og Jónasar vafalítið af.
„Tónlist þeirra er ein sú besta sem samið
hefur verið af íslenskri alþýðutónlist og ég
held að þeir bræður hefðu getað náð á topp-
inn úti í hinum stóra heimi hefðu þeir kært
sig um það. Og þá væra þeir ekki að þessu
puði hér,“ segir Jón og hlær. Þar sem dagskrá-
in byggist allt í senn á djasssveiflu, dansi, söng
og leik var leitað til breiðs hóps listamanna til
að koma fram í dagskránni. Söngvaramir
Andrea Gylfadóttir og Bergþór Pálsson eiga
mjög ólíkan söngferil að baki, þó bakgrunnur
beggja sé klassískur söngur. Andrea er þekkt
djass- og dægurlagasöngkona en Bergþór er
óperusöngvari sem hefur auk þess verið við
leiklistamám í Lundúnum. „Dagskráin gerir
kröfur til þess að söngvaramir geti leikið, að
leikaranir geti sungið og að dansaramir geti
Morgunblaðið/Ásdis
„MORG verkanna era þjóðinni álíka kær og jólalögin," segir f aðfararorðum að skemmtidagskrá Borgarleikhússins byggðri á lögum og text-
um Jóns Múla og Jónasar Ámasonar. F.v. Andrea Gytfadóttir, Víðir Stefánsson, Selma Bjömsdóttir, Bergþór Pálsson, Kjartan Guðjónsson,
Theodór Júlfusson og Jóhanna Jónas.
helst gert svolítið af hvora tveggja þó megin-
þungi hvers og eins liggi á sérsviði viðkom-
andi,“ segir Jón.
Jón Múli segist ekki hafa heyrt af fyrirhug-
aðri skemmtidagskrá Borgarleikhússins fyrr
en nýverið. Hann sat æfingu á dagskránni í
vikunni og er mjög sáttur við vinnu listamann-
anna. Nýju sönglögin eru viðbót við leikritdð
Dandalaveður sem Jónas samdi og sýnt var
hjá leikfélagi Húsavíkur árið 1991. „Við bræð-
umir gerðum svokallað demó með þessum lög-
um ásamt Eyþóri Gunnarssyni og KK og þau
komust svo í hendumar á Jóni Hjartarsyni
sem umsvifalaust vildi hafa þau með í dagskrá
sem hann var þá farinn að vinna að fyrir Borg-
arleikhúsið,“ segir Jón Múli.
„Eg lá á sjúkrahúsi og hafði ekki hugmynd
um að þetta stæði til fyrr en nýverið. Eg fór
hins vegar á æfingu hjá þeim í vikunni og sé
ekki eftir neinu því þetta er svo fallega gert hjá
þessu fólki að ég tel mig hafa náð albata!“
Ðrahms & Schubert
Kammertónleikar ó
Aðventu
Franz Schubert
(1797 -1828)
Jóhannes Brahms
(1833 -1897)
EFNISSKRA
Franz Schubert: Sónata I D-dúr fyrir fiðlu og píanó
D 384 - ópus posth. 137 nr. 1 (1816)
lóhannes Brahms: Sónata í A-dúr fyrir flðlu og píanó
ópus 100 (1886)
Franz Schubert: Sónata í a-moll fyrir klarinett og píanó
"Arpegglone” (1824)
Jóhannes Brahms: THó í Es-dúr fyrir horn, fiðlu og píanó,
ópus 40 (1865)
Flytjendur:
Nicholas Milton (fiðla), Einar Jóhannesson (klarinetta),
Jósef Ognibene (horn), Nína-Margrét Grímsdóttir (píanó).
Hóskólabíó
7. desember kl. 20:30. Salur 2.
Miðaverð 1.100 kr.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 6. DESEMBER 1997 7