Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 23.05.1998, Qupperneq 2

Lesbók Morgunblaðsins - 23.05.1998, Qupperneq 2
Ljósmynd: Kong Qing Jiang FRÁ opnun sýningar á fslenskri málaralist 20. aldarinnar í Þjóðlistasafninu f Peking. F.v: Ólafur Egilsson, sendiherra íslands í Kfna, Knútur Bruun, formaður safnráðs Listasafns fslands, Meng Xiaosi, aðstoðarmenntamáiaráðherra Kína, og Ragna Ragnars, eiginkona Ólafs. Marilyn- mynd á rúman milljarð HIN þekkta mynd bandaríska popplista- mannsins Andys Warhols „Orange Marilyn" af kvikmyndastjömunni Marilyn Monroe frá 1964 sló sölumet á uppboði Sotheby’s fyrir skemmstu. Seldist myndin á 17,3 miHjónir Bandaríkja- dala, rúma 1,2 millj- arða ísl. kr., en það er fjórfalt hærra verð en áður hefur fengist fyrir mynd efir Warhol, að því er fram kemur í The New York Times. Þeir sem hæst buðu í myndina buðu báðir í gegnum síma og tókust hart á. Á meðal þeirra sem sóttust eftir appelsínugulu Marilyn voru Museum of Modern Art í New York, Tate-gall- eríið í London og Andy Warhol-safnið í Pitts- burgh, auk fjölda safnara. Sotheby’s hefur ekki gefíð upp hver keypti verkið en sagt að það hafi verið safnari. Listfræðingar Sotheby’s bjuggust við að verkið myndi seljast á 4-6 milljónir dala og kom kaupverðið mjög á óvart. Hluti skýringar þess er talinn liggja í eigendasögu verksins, en það var m.a. í eigu Þjóðverjans Karls Ströhers, sem var einn fyrsti evrópski safnarinn sem hóf að kaupa bandaríska popplist. Að sögn list- fræðinga gerði kaupandi appelsínugulu Mari- lyn-myndarinnar skynsamlega fjárfestingu. Telja þeir að þess sé skammt að bíða að mynd- ir Warhols seljist á svipuðu verði og verk eftir Pablo Picasso. ! ,'Cs-fal i 1 R B Y MÍIiS3 Laugardagur NORRÆNA húsið: Skjáir veruleikans, fígúratíf list. Kl. 14. Ásmundarsalur: Tilraun með tilgerðar- leysi, mannamyndir Ágústs Petersen og portrett úr listasmiðju barna. Kl. 16. Stöðlakot: Akvarellur 1988-1998, Haf- steinn Austmann. Kl. 17. Klúbbur Lista- hátíðar, Iðnó Laugardagur Dagskrá fyrir börn. Hermes (Guðni Franzson). Gestur Hermes er Atli Heimir Sveinsson. Kl. 15. Suzanne Osten leikstjóri Nýja lífsins hennar Irenu er gestur klúbbsins. Kl. 17. Kynning á Carmen Negra. Söngkonan Caron syngur titilhlutverkið og Garðar Thor Cortes syngur José. Kl. 21.15. Skárr’ en ekkert flytur tónlist kl. 22.30. Ragnar Kjartansson og Markús Þór Andrésson kynna kvölddagskrána. Sýninq á íslenskri málaralist opnar í Pekinq ERRÓ VAR OF DJARFUR FYRIR KÍNVERJA Peking. Morgunblaðið. SÝNING á íslenskri málaralist tuttugustu aldarinnar frá Listasafni íslands, sem áður var sett upp í Nútímalistasafninu í Hong Kong, var opnuð í Þjóðlistasafninu í Peking um síðustu helgi. Sú breyting var gerð á vali verka fyrir sýninguna í Kína að tveimur mál- verkum Errós, úr hinni erótísku seríu Jap- ansmynda, sem höfðu verið á sýningunni í Hong Kong var skipt út fyrir önnur tvö verk listamannasins, þar sem myndefnið þótti of djarft fyrir þarlenda gesti. Er þetta í fyrsta sinn sem íslensk málaralist eru á sýningu í höfuðborg Kína og vakti hún mikla athygli listunnenda þar í borg. Sýningin stendur yfir til 2. júní. Fjöldi gesta við opnun sýningarinnar í Peking var þrefalt meiri en þeir sem safnið hafði boðið til viðburðarins og ljóst að fregn- ir um fyrirhugaða sýningu hafði borist eins og eldur í sinu meðal forvitinna listunnenda sem gátu þess vart beðið að sjá hvað það væri sem þessi litla þjóð í Norður Atlants- hafi hefði fram að færi til málaralistarinnar. „Sýningin veitir kínversku þjóðinni góða innsýn í íslenska menningu, lífstíl og náttúru," sagði aðstoðarmenntamál- aráðherra Kína, Meng Xiaosi, við opnun sýn- ingarinnar. Þar voru einnig viðstaddir ný- Graduale- kórinn syng- ur fyrir Port- úgalsferð GRADUALEKÓR Langholtskirkju heldur í tónleikaferð til Portúgals í næstu viku þar sem hann mun m.a. halda tónleika á Heimssýningunni „EXPO 98“. Kórinn kemur fram níu sinnum í ferðinni sem stendur í tvær vikur. Næstkomandi sunnudag kl. 17 heldur kórinn fjáröflun- artónleika til ferðarinnar í Langholts- kirkju með hluta efnisskrárinnar. Einsöngvari í ferðinni verður Ólöf Kol- brún Harðardóttir og undirleikari Lára Bryndís Eggertsdóttir en hún er fyrrver- andi Grallari og lauk áttunda stigi í píanóleik frá Tónlistarskólanum í Reykjavík nú í vor þar sem kennari henn- ar er Halldór Haraldsson. Kórfélagar í ferðinni verða 49 og sfjórnandi kórsins er Jón Stefánsson. Efnisskráin spannar kirkjuleg og ver- skipaður sendiherra íslands í Kína, Ólafur Egilsson, og formaður safnráðs Listasafns- ins, Knútur Bruun, sem flutti stutta tölu um sögu íslenskrar málaralistar. Meng Xiaosi sagðist þess fullviss að sýningin myndi hljóta góðar viðtökur kínverskra gesta og efla tengsl þjóðanna tveggja. Ólafur Egilsson gat þess í ræðu sinni að þó að um 6.600 km skildu þjóðimar tvær að væru slíkar fjarlægðir ekki fyrir hendi í mál- verkunum sem vafalítið færðu þessa tvo menningarheima nær hvor öðrum. Ólafur gat þess jafnframt að framkvæmd sýningar- innar bæri ekki síst að þakka fyrrrennara sínum í embættinu, Hjálmari W. Hann- essyni, sendiherra. í umfjöllun sinni um verkin á sýningunni undirstrikaði Knútur Bruun tengsl íslenskrar málaralistar við er- lendar listastefnur jafnt sem náttúru lands- ins, allt frá tímum fyrstu landslagsmálar- anna, um expressionismann og abstraktmál- verkið til svokallaðs Nýja-málverks síðasta áratugs. Til sýningarinnar var efnt í samstarfi Listasafiis Islands og kínverska menntamál- aráðuneytisins og í framhaldinu er fyrirhug- uð sýning á kínverskri myndlist í Listasafni íslands á næsta ári. Morgunblaðiö/Þorkell Á æfingu aldleg verk, gömul og ný, innlend og er- lend. M.a. eru verk eftir flnnska tónskáld- ið Rautavara en annað þeirra, „Lapsi- messu“ eða „Barnamessa", er samið við hina hefðbundnu messuþætti en á milli eru hugleiðingar fyrir strengjasveit sem kórfélagar flytja. I kórnum eru tíu strengjahþ'óðfæraleikarar. MENNING/ LISTIR í NÆSTU VIKU MYNDLIST Ásmundarsafn - Sigtúni Yfirlitss. á verkum Ásmundar Sveinssonar. Listasafn Einars Jónssonar, Skólavörðuholti Opið laug. og sun. kl. 13.30-16. Höggmyndagarð- urinn er opinn alla daga. Listasafn ASÍ Ásmundarsalur og Arinstofa: Mannamyndir Ágústs Petersen. Gryfia: Portrett barna. Til 5. júlí. Gallerf Listakot, Laugavegi 70 Sigurrós Stefánsdóttir sýnir. Gallerí 20 fm, Vesturgötu 10 Hreinn Friðfinnsson. Til 7. júní. Gallerí Gangur, Rekagranda 8 Robert Devriendt. Ut júní. Gallerí Hornið, Hafnarstræti Elín Magnúsdóttir. Til 24. maí. Gallerí Sævars Karls Vasamyndir e. Erró og Skúiptúrar e. Guðjón Bjarnason. Iugólfsstræti 8 Grænmetisleikur: Inga Svala Þórsdóttir og Wu Shan Zhuan. Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg Helga Magnúsd. Til 27. maí. Menningarmiðstöðin Gerðubergi Ljósmyndasýning: Maya-indíána frá Chipas í Mexíkó, Tilvera - daglegt líf unglinga og nunn- unnar Carlota Duarte. Til 20. maí. Listasafn Sigutjóns Ólafssonar, Laugarnestanga Sýn. „Ur málmi“. Öm Þorsteinsson myndhöggv- ari. Til 1. júlí. Listasafn Reykjavlkur, Hafnarhúsinu Konur, úrval úr Errósafni Reykjavíkurborgar Hallgrímskirkja Málverk eftir Eirík Smith. Jómfrúin, Lækjargötu Greipar Ægis. Sandskúlptúrar. Til 4. júní Gallerí Nema hvað, Þingholtsstræti 6 Sýn. á örverkum nemenda Myndlista- og handíðaskóla fslands. Til 30. maí. Hafnarborg, Hafnarfirði Jónína Guðnadóttír. Til 25. maí. Gallerí Fold við Rauðarárstíg Þorbjörg Höskuldsd. Til 1. júní. Listasafn fslands, Fríkirkjuvegi 7 Sýning á höggmyndum Max EmsL Norræna húsið Fígúratíf list frá Norðurl. og Þýskalandi. Nýlistasafnið Flögð og fögur skinn. Stöðlakot Akvarellur. Hafsteinn Austmann. SPRON, Álfabakka 14, Mjódd Bragi Ásgeirsson. Til 5. júnf. Sparisjóður vólstjóra, Borgartúni Sandskúlptúrar. Til 4. júní. Gallerí Smfðar & skart, Skólav.stíg 16a Charlotta R. Magnúsd. Til 4. júní. Þjóðmhyasafnið Margrét II Danadrottning. Kirkjuklæði. Til 7. júní. ____________ TÓNLIST Norræna húsið Davíð Art Sigurðsson barítónsöngvari. Kl. 16. Sunnudagur 24. maf Langholtskirkja: Fjáröflunartónl. Gradualekórs Langholtskirkju kl. 17. Iðnó: Straumar. Tríó Reykjavíkur og Martíal Nardeu og félagar Kl. 17. Mánudagur 25. maf Hallgrímskirkja: Jordi Savall, Montserrat Figu- eras og Rolf Lislevand. Kl. 20. Miðvikudagur 27. maí íslenska óperan: Chilingirian-strengjakvartett- inn og Einar Jóhannesson. Kl. 20. Föstudagur 29. maí (slenska óperan: Carmen Negra, rokk-, salsa-, poppópera. Kl. 20. Kirkjuhvolur, Garðabæ. Tónlistarsk. Garðabæjar frums. Brúðkaup Fígarós kl. 20. LEIKHÚS Þjóðleikhúsið Óskastjaman, lau. 23., mið. 27. maí. Grandavegur 7, sun. 24. maí. Meiri gauragangur, fim. 28. maí. Poppkom, lau. 23., fim. 28. maí. Gamansami harmleikurinn lau. 23., mið. 27. maí. Borgarleikhúsið Sex í sveit, Iau. 21., fös. 22. maí. Irinas nya liv, sun. 24., mán. 25., þrið. 26. maí. Unga Klara, sun. 24., mán. 24., þrið, 26. maf. Loftkastalinn Bugsy Malone, sun. 24. maí. Á sama tíma að ári, sun. 17. maí. Leikhúsvagninn: Nóttin skömmu fyrir skógana, lau. 23. maí. Renniverkstæðið, Akureyri, lau. 23., sun. 24. maí. Iðnó Unglíngurinn í skóginum, sun. 24. maí. fslenska óperan Carmen Negra, rokk-, salsa-, poppsöngleikur, frums. fös. 29. maí. Hafnarfiarðarleikhúsið Síðastí bærinn f dalnum, sun. 24. maí. Leikfólag Akureyrar Söngvaseiður, lau. 23., sun. 24. maí. Nemendaleikhúsið Uppstoppaður hundur, sun. 24., mið 27. maí. DANS Borgarleikhúsið Nederlands Dans Theater II og III, frums. fim. 28. maí. Fös. 29. maí. Upplýsingar um Iistviðburði sem óskað er eftir að birtar verði í þessum dálki verða að hafa borist bréflega eða á netfangi fyrir kl. 16 á miðvikudögum merktar: Morgunblaðið, Menn- ing/listir, Kringlunni 1, 103 Rvfk. Myndsendir: 5691222. Netfang: menning@mbl.is. 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/USTIR 23. MAÍ 1998

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.