Lesbók Morgunblaðsins - 24.10.1998, Side 2
VERK ÞORKELS í BERLÍN
ÞÝSKA sinfóníuhljómsveitin í Berlín undir
stjóm Vladimir Ashkenazy flytur tvö verk
eftir Þorkel Sigurbjömsson á tónleikum í Fíl-
harmoníusalnum í Berlín í dag, laugardag, og
er um frumflutning að ræða í öðm tilvikinu.
Aðrir tónleikar verða svo haldnir á morgun.
Þorkell Sigurbjörnsson sagði í samtali við
Morgunblaðið, að upphafíð mætti rekja til
komu hljómsveitarinnar; „Das Deutsche Syn-
phonie-Orchester Berlin“, og Ashkenazys á
Listahátíð 1996. Þá hefði Ashkenazy verið bú-
inn að velja verk Þorkels, Mistur, til fiutnings
og beðið um annað í viðbót og þá nýtt. Þorkell
sagði að nýja verkið væri lítið hljómsveitar-
verk, „Næturljóð"
Vladimir Ashkenazy hefur stjórnað hljóm-
sveitinni frá 1989.
Þorkell Vladimir
Sigurbjörnsson. Ashkenazy
HEIÐURSORÐA
AFHENT
FÉLAG leikmynda- og búningahöfunda
sæma í fyrsta sinn leikmyndahöfund
heiðursorðu félagsins við athöfn á Hótel
Borg í dag, laugardag kl. 15.
Fyrstur leikmyndahöfunda sem
sæmdur er orðunni er Snorri Sveinn
Friðriksson, sem í rúman aldarfjórðung
hefur starfað sem forstöðumaður leik-
myndadeildar Sjónvarpsins.
Tilgangur orðuveitingarinnar er að
minna á listræn afrek á sviði leikmynda-
hönnunar. Jafnframt verða veittir höf-
undastyrkir við þetta tækifæri, segir í
fréttatilkynningu.
TRYGGVI
TRYGGVA-
SON HLÝTUR
GRAMO
PHONE-
VERÐLAUN
í NÝJASTA tölublaði tónlistartímaritsins
Gramophone hlýtur diskur með verkum tón-
skáldsins Thomas Adés sérstök verðlaun fyrir
flutning og hljóm. Upptökustjóri og tækni-
maður á diskinum er Tryggvi Tryggvason.
Þetta er í annað sinn sem Gramophone
verðlaunar disk sem Tryggvi Tryggvason
stýrir upptökum á, en Tryggvi vann til
Gramophone-verðlauna fyrir disk með flutn-
ingi Borodin-kvartettsins á strengjakvartett-
um nr. 1-3 eftir Tsjaíkovskíj og flutning sin-
fóníuhljómsveitar BBC á konsert fyrir hljóm-
sveit nr. 2 eftir Robin Holloway fyrir þremur
árum.
Tryggvi Tryggvason er sonur Jóhanns
Tryggvasonar tónlistarkennara og Klöru
Bertinu Simonsen og hefur verið búsettur í
Bretlandi frá þriggja ára aldri. Tryggvi rekur
upptökufyrirtækið Modus Music og hljóm-
plötuútgáfuna Merlin Classics í Bretlandi.
Gramophone er virtasta tímarit sinnar teg-
undar í tónlistarheiminum og veitir árlega
verðlaun fyrir útgáfu á sígildri tónlist.
PAVAROni
GENGST UNDIR
HNÉAÐGERÐ
PAVAROTTI hefur hætt við að syngja
hlutverk Cavaradossi í Tosca á sviði
Metropolitan-óperunnar í New York í
næsta mánuði. Ástæðan er sú, að söngv-
arinn er enn að jafna sig eftir aðgerð á
hné. Hann stefnir samt ótrauður á að
syngja á sviði óperunnar 22. nóvember, en
þá eru 30 ár síðan hann fyrst söng þar.
Pavarotti hefur átt í erfíðleikum vegna
hnésins og lítið getað hreyft sig á svið-
inu. Læknar hafa fyrir löngu mælt með
skurðaðgerð, sem loks var framkvæmd í
júlí sl., en til þess að flýta fyrir batanum
þarf söngvarinn líka að léttast. Að sögn
umboðsmannsins, Herbert Breslin, hefur
Pavarotti nú tekist á við þyngdina af full-
um krafti. Pavarotti kom fram á tónleik-
um í síðustu viku, en læknar telja hann
enn þurfa einhverjar vikur til þess að
geta hreyft sig vandræðalaust á óperu-
sviðinu.
Sýningamar á Toscu eru 7., 12. og 16.
nóvember og mun Riehard Leech syngja
hlutverk Cavaradossi. Á hátíðartónleik-
unum 22. nóvember mun Pavarotti
syngja í þremur óperuþáttum; úr La
Boheme, Astardrykknum og Aidu á móti
sópransöngkonunum Daniela Dessi,
Ruth Ann Swenson og Aprile Millo.
DÓMKÓRINN í Reykjavík.
TÓNLISTARDAGUR DÓMKIRKJUNNAR
NÝTT KÓRAVERK
FYRIR DÓMKÓRINN
DÓMKÓRINN efnir til sinna árlegu Tónlist-
ardaga í Dómkirkjunni dagana 24. október til
8. nóvember. Þetta hefur verið árlegur við-
burður í kirkjunni undanfarin sautján ár. Á
dagskránni verða bæði flutt innlend og erlend
verk.
Tónlistardagamir hefjast með tónleikum í
Dómkirkjunni í dag, laugardag, kl. 17. Þar flyt-
ur Dómkórinn, undir stjóm Marteins H. Frið-
rikssonar, kórverkið „Hugleiðing um fyrirgefn-
inguna“ eftir Jón Ásgeirsson, sem hann samdi
sérstaklega fyrir Dómkórinn í tilefni Tónlistar-
daganna. Hörður Áskelsson leikur orgeltónlist
eftir Þorkel Sigurbjömsson og Signý Sæ-
mundsdóttir syngur lög eftir Atla Heimi
Sveinsson við undirleik Marteins. Á morgun,
sunnudag, syngur kórinn í messu kl. 11.
Tónleikar verða í Listasafni Islands mánu-
dagskvöldið 26. október kl 20.30. Þá flytur
kórinn kórverk eftir Jón Ásgeirsson, Þorkel
Sigurbjömsson, Jómnni Viðar og Atla Heimi
Sveinsson. Dómkórinn syngur einnig lög eftir
Brahms við nýja þýðingu Heimis Pálssonar. Á
tónleikunum syngur Olafur Kjartan Sigurðs-
son einsöng við undirleik Önnu Guðnýjar Guð-
mundsdóttur. Ólafur Kjartan er búsettur í
London og hefur nýlokið mastersnámi, segir í
fréttatilkynningu.
Laugardaginn 31. október verða orgeltón-
leikar kl. 12 í Dómkirkjunni. Marteinn H.
Jón
Sigurðsson Ásgeirsson
Friðriksson leikur verk eftir J.S. Bach, F.
Mendelssohn, Leif Þórarinsson, Þorkel Sigur-
björnsson og C. Franck.
Barokktónleikar í umsjá Þórannar Guð-
mundsdóttur verða í kirkjunni sunnudaginn 1.
nóvember kl._ 17. Auk Þórunnai- koma fram
Brynhildur Ásgeirsdóttir, Hallfriður Ólafs-
dóttir og Sigurður Halldórsson.
Tónlistardögum lýkur að þessu sinni með
messu sunnudaginn 8. nóvember þar sem Kór
Menntaskólans í Reykjavík syngur undir
stjóm Marteins H. Friðrikssonar.
RAFRÆN BÓK KEPPIR UM
BOOKER-VERÐLAUNIN
Ein bókanna sem tilnefndar eru til Booker-
verðlaunanna að þessu sinni er aðeins til á
Netinu. Höfundurinn er David Gettman og
bókin heitir Angels of Russia, hefur fengið
góða dóma og verið tilnefnd til fjölmargra
verðlauna. Höfundurinn rekur fyrirtæki með
rafrænar bækur sem aðeins era tiltækar á
Netinu.
Hinn kunni bandaríski gagnrýnandi, Ric-
hard Eder, hefur lýst því yfir að rafræn bók
sé ekki bók. Engu að síður hefur dómnefnd
Booker-verðlaunanna tekið skáldsögu Gett-
mans gilda eftir að hann fékk á hana alþjóð-
legt bókanúmer eins og gildir um aðrar bæk-
ur.
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
Ásmundarsafn - Sigtúni
Yfírlitss. á verkum Ásmundar Sveinssonar.
Fálkahúsið, Hafnarstræti 1
Greipar Ægis: Sandskúlptúrar. Til áramóta.
Gallerí 20 fermetrar, Vesturgata lOa
Helgi Hjaltalín Eyjólfsson.
Gallerí Fold, Kringlan
Guðbjörg Káradóttir.
Gallerí Fold, Rauðarárstfg
Kjartan Guðjónsson. Til 1. nóv.
Gallerí Horn
Gerður Gunnarsdóttir. Til 8. nóv.
Gallerí Sævars Karls
Haraldar Jónssonar. Til 28. okt.
Hafnarborg
Terje Risbergs. Ætingar í aðal- og Sverrissal. Til
27. okt.
Yfirlitssýning á verkum Sigurjóns Ólafssonar.
Hallgrímskirkja
Benedikt Gunnarsson.
Kjarvalsstaðir
-30 / 60+, samsýning tveggja kynslóða. Til 25.
okt.
Listasafn ASÍ
GryQan: Ólöf Erla Bjarndóttir. Ásmundarsalur:
Inga Þórey Jóhannsdóttir. Til 25. okt.
Listasafn Einars Jónssonar, Skólavörðuholt i
Opið laugardaga og sunnudag 14-17.
Höggmyndagarðurinn opinn alla daga.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn
Magdalena Margrét Kjartansdóttir. Ólöf
Einarsdóttir. Amælissýning Myndlistarskóla
Kópavogs. Til 25. okt.
Listasafn íslands
íslensk abstraktlist 1950-60. Til 25. okt.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Siguijón Ólafsson _ Ævi og list. Opið alla daga
nema mánud. kl. 14-17. Til 1. des.
Listaskálinn í Hveragerði: Erotíka: Bragi
Ásgeirsson, Einar Hákonarson, Eva
Benjamínsdóttir, Gunnar Öm Gunnarsson,
Harpa Bjömsdóttir, Haukur Dór, Ragnhildur
Stefánsdóttir og Stefán Boulter.
Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg
Fríða Jónsdóttir sýnir Ijósmyndir. Til 25. okt.
Mokkakaffi, Skólavörðustíg
Rannveig Anna Jónsdóttir og Þorvaldur Halldór
Gunnarsson. Til 29. okt.
MÍR, Vatnsstíg 10
Svetlana Kalashnik, Júrí Ponomarjov og
Aleksandr Poplavsky. Til 1. nóv.
Norræna húsið, Hringbraut
Margrét Nordal. Til 8. nóv.
Nýlistasafnið
„Hvorki né“: Henry Bond, Juan Cmz, Graham
Gussin, Ritsuko Hidaka, Joao Penalva frá
London, Christina Dimitriadis frá Aþenu, Tracy
Mackenna & Edwin Janssen frá Rotterdam,
Felix Conzalez Torres frá New York og Hanna
Styrmisdóttir. Miðhæð: Bjargey Ólafdóttir, Ijós-
og kvikmyndir. Súmsal: Ánna Wilenius,
Ijósmyndir, skúlptúra og myndband. Nathalie
van de Burg, Ijósmyndaskúlptúra. Til. 8. nóv.
Safn Ásgríms Jónss., Bergstaðastræti 74
Sumarsýning á verkum Ásgríms.
Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði v.
Suðurgötu
Handritasýning. Þriðj., mið., fím. 14-16. Til 14.
maí.
SPRON, Mjódd
Harpa Bjömsdóttir sýnir til 24. okt.
TÓNLIST
Háskólabíó: SÍ. Charles Chaplin.
Hljómsveitarstjóri: Giinter Buchwalt.
Laugardagur
Dómkirkjan: Tónlistardagar. Dómkórinn,
Hörður Askelsson, Signý Sæmundsdóttir og
Marteinn H. Friðriksson. Kl. 17.
Sunnudagur
Hafnarborg: Tríó Reykjavíkur. Kl. 20.
Sigurjórissafn: Ingveldur G. Ólafsdóttír,
mezzosópran og Atli Heimir Sveinsson tónskáld.
Kl. 17.
Mánudagur
Listasafn Islands: Dómkórinn. Einsöngur Ólafur
Kjartan Sigurðsson við undirleik Önnu Guðnýjar
Guðmundsdóttur. Kl. 20.30.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Maður í mislitum sokkum, lau. 24., fim. 29., fos.
30. okt.
Solveig, lau. 24., fös. 30. okt.
Bróðir minn ljónshjarta, sun. 25. okt.
Gamansami harmleikurinn, lau. 24., fim. 29. okt.
Borgarleikhúsið
Mávahlátur, sun. 25., fím 29., fös. 30. okt.
Grease, lau. 24., fos. 31. okt.
Sex í sveit, lau. 24. okt.
Ofanljós, lau. 24. okt.
Iðnó
Dimmalimm, sun. 25. okt.
Þjónn í súpunni, fös. 30. okt.
Rommí, lau. 24. okt.
Brecht kabarett, frums. sun. 25. okt. Fim. 28. okt.
Islenska óperan
Ávaxtakarfan, sun. 25. okt.
Hellisbúinn lau. 24., fim. 29., fös. 30. okt.
Loftkastalinn
Bugsy Malone, lau. 24. okt.
Hafnarfíarðarlcikhúsið
Síðari bærinn í Dalnum, sun. 25. okt.
Við feðgamir, lau. 24., fös. 30. okt.
Sjónleikur, Tjarnarliíó
Svartklædda konan, mán. 26. okt.
Kaffileikhúsið
Svikamyllan, lau. 24., fös. 30. okt.
Skemmtihúsið, Laufásvegi 22
Ferðir Guðríðar, sun. 25. okt.
Möguicikhúsið við Hlomni
Snuðra og tuðra, Iau. 24. okt.
Einar Áskell, sun. 25. okt.
Leikfólag Akureyrar
Rummungur ræningi, lau. 24., sun. 25., fim. 29.
okt.l
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 24. OKTÓBER 1998