Lesbók Morgunblaðsins - 25.09.1999, Side 16
HANNAÐI
EINU SINNI
GERVITUNGL
Listin, trúin og vísindin mætast í hugarheir ni og verkum
Benedikts Gunnarssonar listmálara. Ljc Ssið er | þó
rauði þráðurinn í myndverkum hans á n ýrri sýningu
í Gerðarsafni; Listasafni Kópavogs. ÞÓRODDUR
BJARNASON ræddi við Benedikt.
AÐ býr sannkallaður frumkraft-
ur í Benedikt Gunnarssyni list-
málara. Þessi kraftur endur-
speglast í verkum hans og því
hvernig hann talar um myndlist.
Um leið og blaðamaður og Bene-
dikt heilsast fer Benedikt á flug
og talar vítt og breitt um tengsl
lista og vísinda, um tengsl vísinda og trúar,
um ljósið, lífið og kennsluna. Það er ekki ann-
að hægt en að hrífast með.
Það hefur ekki farið mikið fyrir Benedikt á
sýningarsviðinu síðustu ár þótt hann hafi ekki
setið auðum höndum. Hann á að baki langan
feril í myndlist og alls 24 einkasýningar en
undanfarið hefur hann verið atkvæðameiri í
kirkjuskreytingum en raunverulegu sýning-
arhaldi. I kirkjulistinni leggur Benedikt
metnað sinn í að finna nýjar leiðir í mynd-
sköpun og er hugmyndavinnan þar grunnur
að góðu verki, að hans sögn.
„Listin er eins og lifandi jörð, hún er í
stöðugri mótun eins og landið. Ekkert stend-
ur í stað, ekkert er eilíft og þannig er listin
einmitt líka,“ segir Benedikt.
„Eg hef alltaf heillast af vísindum, hugviti
og hátækni. Ég lít svo á að öll tæki og vopn
sem fundin eru upp séu vitnisburður um
mannvit og menningu hverrar þjóðar. Þrátt
fyrir að fyrsta atómsprengjan t.d. hafi verið
hræðileg er hún vitnisburður um mikið mann-
vit og háþróaða tækni. Svona tekst þetta á,“
segir Benedikt og heldur út höndunum til út-
skýringar.
Maður kemst ekki hjá því að hugsa til end-
urreisnarmannsins Leonardos da Vincis þeg-
ar Benedikt talar um áhuga sinn á tækjum og
vísindum. Ég spyr Benedikt hvort hann hafi
aldrei smíðað vopn eða flókin tæki líkt og
meistarinn gerði.
„Ég hannaði einu sinni gervitungl,“ svarar
Benedikt, „þó það hafi aldrei farið lengra en í
skissuform. Það átti að verða eins konar
skúlptúr, eða bara kringlótt heimasmíðað
gervitungl. En annars hef ég verið í ýmsu og
auk þess að mála og teikna með flestum þess-
um hefðbundnu efnum sem sjást hér á sýnin-
unni, hef ég gert bæði steinda glugga í kirkj-
um og altarismynd úr mósaík."
Þar á Benedikt við altarismyndina í Há-
teigskirkju sem margir þekkja. Hann segir að
það að þurfa að fella verk sitt að hugverki
annars manns, þ.e. arkitektsins, fæli marga
listamenn frá slíkri myndgerð en honum sjálf-
um hafi líkað það vel. „Margir hafa andúð á
útreikningum í tengslum við svona verk og
það fælir þá frá.“
Eins og áður sagði hefur Benedikt einnig
Ljósið er tvíþætt, bæði trúarlegt og eðlisfræðilegt, segir Benedikt Gunnarsson.
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/USTIR 25. SEPTEMBER 1999