Alþýðublaðið - 30.05.1985, Síða 4

Alþýðublaðið - 30.05.1985, Síða 4
Arið 1934 tók við völdum „ stjórn hinna vinnandi stétta“ samstjórn Alþýðuflokks og Framsóknarflokks. Eitt af meginmarkmiðum stjórnarinnar var að setja löggjöf um alþýðutryggingar og fátœkrahjálp. Lög um þetta voru samþykkt 1936 og reyndist þar vera á ferðinni „alger bylting“. Menn þurftu ekki lengur að krjúpa á kné og biðja náðarsamlegast um aðstoð þegar slys eða sjúkdóma bar að garði Hinn 1. febrúar á næsta ári verða merk tímamót í sögu alþýðutrygg- inga á íslandi. Þá verða 50 ár liðin frá samþykkt löggjafar um almenn- ar alþýðutryggingar 1936. Alþýðuflokkurinn hafði verið sigurvegari kosninganna 1934 og staða hans í stjórnmálunum styrkt- ist mjög. Við tóku stjórnarmynd- unarviðræður við Framsóknar- flokkinn og eftir nokkurt þref um ráðherrafjölda og mannaval mynd- uðu flokkarnir stjórn, sem í sátu Hermann Jónasson forsætisi dóms- og kirkjumálaráðherra, Ey- steinn Jónsson fjármálaráðherra og frá Alþýðuflokknum Haraldur Guðmundsson atvinnu- og sam- göngumálaráðherra. Flokkarnir komu sér saman um málefnasamn- ing, sem var fyrsti stjórnarsamning- urinn sem gerður var hér á landi. Var samningurinn í 14 liðum og hljóðaði áttundi liðurinn svo: Alger bylting „Að ljúka nú þegar undirbúningi löggjafar um almennar alþýðu- tryggingar, svo og undirbúningi endurbóta á framfærslulöggjöf- inni, er hvorttveggja komi til fram- kvæmda eigi síðar en í ársbyrjun 1936“. „Stjórn hinna vinnandi stétta“ brást ekki í þessari fyrirætlan sinni og löggjöfin var sett. Um þessa lög- gjöf segir Jón Blöndal meðal ann- ars í „Félagsmál á íslandi": „Segja má, að með lögum um al- þýðutryggingar 1. febrúar 1936, er gengu í gildi 1. apríl sama ár, verði alger bylting í íslenskri alþýðutrygg- ingalöggjöf og framkvæmd henn- ar. Markar þessi löggjöf án efa eitt- hvert stærsta sporið í íslenskri fé- lagsmálalöggjöf fyrr og siðar“ (bls. 80). Fyrir setningu þessara laga 1936 höfðu verið stigin nokkur mikilvæg spor. Má þar nefna stofnun „Styrktarsjóðs handa heilsubiluðu og ellihrumu alþýðufólki“ árið 1890, sem líta má á sem fyrsta spor- ið. Sjúkrasamlög voru stofnuð um og eftir aldamótin og 1903 voru dánarbætur greiddar til fjölskyldna drukknaðra sjómanna, sjóður sem sjómenn greiddu í að tveimur þriðju en útgerðarmenn að einum þriðja. 1911 voru sett lög um sjúkra- samlög með styrk úr ríkissjóði og 1925 lög um almennar slysatrygg- ingar. En það var sem sagt í lok árs 1934 að Haraldur Guðmundsson, ráð- herra Alþýðuflokksins, skipaði nefnd til að semja frumvörp að lög- um um almannatryggingar og svo fátækramál. TVö frumvörp voru lögð fyrir þingið 1935. Litið til nágranna- landa í greinargerð með frumvarpinu um alþýðutryggingar sagði meðal annars: „Nágrannaþjóðir vorar hafa allar síðustu áratugina verið að koma skipulagi á þessa löggjöf, hver hjá sér, og er langt frá því, að hægt sé að segja, að sú löggjöf hafi orðið til í einni svipan . . . þykir því rétt að gefa all ítarlegt yfirlit yfir al- þýðulöggjöfina í nágrannalöndum þeim, sem lengst eru komin, Sví- þjóð, Danmörku, Englandi, Þýska- landi og Hollandi“. Síðan segir: „Hér á landi er lög- gjöfin mjög skammt á veg komin. Eini vísirinn að alþýðutryggingum er slysatryggingin, en um sjúkra- tryggingar, elli- og örorkutrygging- ar og atvinnuleysistryggingar vant- ar alla löggjöf". Þá segir í greinargerðinni: „í stjórnarskránni er svo fyrir mælt, að hver sá, sem eigi er fær að sjá fyr- ir sér og sínum, skuli eiga rétt á sæmilegum framfærslulífeyri. Framkvæmdin á þessu fyrirkomu- lagi stjórnarskrárinnar hafi þó lengst af verið á þann veg, að neyð- arúrræði hefur verið að þurfa að nota sér þennan rétt“. Haraldur Guðmundsson Frumvarpið tók til eftirfarandi þátta: 1. Slysatryggingar. 2. Sjúkratryggingar. 3. Elli- og örorkutryggingar. 4. Atvinnuleysistryggingar og stofnun Tryggingastofnunar ríkisins. Dagpeningar voru greiddir vegna vinnumissis af völdum slysa og ef þau ollu örorku, kom til bóta- greiðslna. Sjúkratryggingar voru á vegum sjúkrasamlaga og ríkið gat stofnað til jöfnunarsjóðs íslands, sem öllum Iandsmönnum bar að greiða iðgjöld til. Fyrirmælin um atvinnuleyistryggingar komu ekki til framkvæmda, en Trygginga- stofnun ríkisins var stofnuð. Fyrsti forstjóri stofnunarinnar varð Brynjólfur Stefánsson. Önnur bylting Á hálfrar aldar ferli alþýðutrygg- inganna hefur umfangið vaxið mjög og margir nýir liðir bæst við. Tala má um önnur tímamót — eða aðra byltingu — árin 1946—1947. Árið 1946 breyttust alþýðutrygging- arnar í almannatryggingar. I upp- hafi árs 1947 tók við völdum ríkis- stjórn Stefáns Jóhanns Stefánsson- ar, þ. e. samstjórn Alþýðuflokks, Framsóknarflokks og Sjálfstæðis- flokks. Fyrir þann tíma fólst í al- þýðutryggingum aðallega elli- og örorkulífeyrir og útgjöld sjúkra- samlaga, en „Stefánía“ bætti á fyrsta ári sínu við mörgum nýjum liðum. Má þar nefna örorkustyrki, fjölskyldubætur, barnalífeyri, fæð- ingarstyrk, ekkjubætur og sjúkra- bætur og árið eftir komu makabæt- urnar. í einu. vet angi fóru út- gjöld almannatryggingakerfisins úr því að vera 1,55% af þjóðarfram- leiðslu í 3,14% af þjóðarfram- leiðslu 1947, en miðað við skatt- tekjur hins opinbera fór hlutfallið úr 7,8% árið 1946 í 14,3% árið 1947. Með öðrum orðum tvöföld- uðust útgjöld almannatrygginga- kerfisins að raungildi til. Næstu ár hækkaði hlutfall gjalda almannatryggingakerfisins af skatttekjum hins opinbera nokkuð stöðugt og fór úr 14,3% árið 1947 í tæplega 18% árið 1953, þegar mæðralaunin bættust við. En síðan lækkaði hlutfallið nokkuð næstu árin og fór allt niður í um 13% og það á dögum vinstri stjórnarinnar. Sú stjórn bætti þó við atvinnuleys- istryggingabótum eftir kjarasamn- inga, sem og sjúkradagpeningum. Þriðja bylting En þá kom til kasta Viðreisnar- stjórnarinnar og á tveimur árum fór áðurnefnt hlutfall úr 13% í um 22%. Miðað við þjóðarframleiðslu fór hlutfallið úr um það bil 3,5% i tæplega 6%. Bætur lífeyristrygg- inga hækkuðu úr 154 milljónum gkr. árið 1959 í 314 milljónir gkr. ár- ið 1960 og í 420 milljónir kr. árið 1961 og munaði þar mest um rúm- lega sexföldun fjölskyldubóta og tvöföldun ellilífeyris. A tveimur ár- um hækkuðu útgjöld almanna- tryggingakerfisins um 113%. Arin 1968—1969 kom til mikill samdráttur í þjóðarframleiðslu, en Viðreisnarstjórnin lét það þó í engu bitna á almannatryggingakerfinu. Þvert á móti var sett á laggirnar sér- stök sjúkratryggingadeild og gjöld almannatryggingakerfisins sem hlutfall af skatttekjum hins opin- bera hækkaði úr um 18% árið 1967 í um 26% árið 1968 og hélst á því bili i nokkur ár. Sem hlutfall af þjóðarframleiðslu hækkaði hlut- fallið úr um 5,5% árið 1966 í um 7,8% árið 1969 og svo í rúmlega 9% árið 1972 og var tæplega 10% árið 1980. í dag er svo komið að um þriðj- ungur rikisútgjalda fer í heilbrigðis- og tryggingamál. T. d. má nefna að fjöldi ellilífeyrisþega á öllum land- inu í apríl var 19.476. Af þeim hafa 8.215 óskerta tekjutryggingu, en 5.591 skerta tekjutryggingu. Ein- staklingur getur haft tekjur á bilinu 3.473—18.626 kr. og hjón á bilinu 4.861—30.479 kr. án þess að tekju- tryggingin skerðist og er þá ellilíf- eyririnn sjálfur ekki nn í dæminu. Örorkulífeyri hafa 2.830 manns, þar af 1.880 með óskerta tekju- tryggingu, en 950 með skerta tekju- tryggingu. Báðir þessir hópar geta auk þess haft sérstaka uppbót vegna lyfjakostnaðar, hárrar húsa- leigu eða mikillar umönnunar. Erum enn á eftir Þótt útgjöld íslendinga til al- mannatrygginga hafi aukist veru- lega í gegnum árin og sé orðinn snar þáttur í útgjöldum ríkisins, þá blas- ir samt við að enn stöndum við hin- um Norðurlöndunum nokkuð að baki. í Norrænu tölfræðihandbók- inni kemur t. d. fram að árið 1982 hafi útgjöld almannatrygginga- kerfisins á íslandi sem hlutfall af brúttó þjóðarframleiðslu (önnur viðmiðun en áður kom fram) verið 18,7%. í Svíþjóð var þetta hlutfall hins vegar 33,1%, í Danmörku 30%, í Finnlandi 23,6% og í Noregi 21,7%. Við erum á svipuðu róli og Sviar og Danir voru fyrir 15 árum hvað þetta varðar. Afmælisrit í undirbúningi I tilefni af væntanlegu hálfrar aldar af- mæli Alþýðutrygginga á íslandi er nú starfandi ritnefnd á vegum Trygginga- ráðs, sem á að sjá um útgáfu á sér- stöku afmælisriti. Ritnefndin er skipuð þremur mönn- um, formaður hennar er Gylfi Þ. Gísla- son prófessor, og hinir í nefndinni eru Haraldur Ólafsson alþingismaður og dósent og Þor Whitehead sagnfræð- ingur. Forstjórar Dyggingastofnunar ríkisins frá upphafi 1. Brynjólfur Stefánsson, 20. maí 1936 til 31. des- ember 1936. 2. Jón Blöndal, 1. janúar 1937 til 6. apríl 1938. 3. Haraldur Guðmundsson, 7. apríl 1938 til 8. maí 1957. 4. Sverrir Þorbjörnsson, 9. maí 1957 til 15. febrúar 1970. 5. Gunnar J. Möller, 16. febrúar 1970 til 1. apríl 1970. 6. Sigurður Ingimundarsson, 1. maí 1970 til 1. ágúst 1978. 7. Gunnar J. Möller, 31. júlí 1978 til 19. janúar 1979. 8. Eggert G. Þorsteinsson, frá 20. janúar 1979.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.