Alþýðublaðið - 07.02.1987, Side 10
Laugardagur 7. febrúar 1987
GYLFI Þ. GÍSLASON 70 ÁRA
Á 50 ára afmæli
Sové tríkj anna
Góðir hátíðargestir.
Fáir atburðir á þessari öld hafa verið
afdrifaríkari en októberbyltingin í
Rússlandi og stofnun Sovétríkjanna
fyrir réttum fimmtíu árum.
Áhrifa þessara miklu viðburða hefur
ekki aðeins gaett í sögu þeirra þjóða,
sem byggja Sovétríkin. Þeir hafa einnig
haft stórkostleg áhrif á hugmyndir
manna í öðrum hlutum heims, á þró-
un mála um víða veröld, á örlög þjóða
og einstaklinga. Þetta á við um alla
helztu atburði mannkynssögunnar,
ekki hvað sízt á siðari öldum, þegar all-
ar þjóðir og öll lönd höfðu tengzt meiri
eða minni böndum. í dag mundi at-
burður eins og október-byltingin hafa
enn víðtækari og enn skjótari áhrif um
víða veröld en hún hafði á sinum tíma.
Heimurinn er orðinn minni en hann
var, allt mannkyn býr í nánara nábýli
nú en þá.
Október-byltingin færði mönnum,
sem aðhylltust nýjar skoðanir á skipan
efnahagsmála og stjórnmála, svo að
segja alger völd í einu fjölmennasta og
hráefnaauðugasta riki veraldar. Skoð-
anir hinna nýju leiðtoga voru gerólíkar
þeim, sem mótuðu efnahagslíf og
stjórnarhætti í Vestur-Evrópu og Am-
eríku. Áratugum saman virtist þróun-
in stefna i þá átt, að iðnaðarþjóðir
byggju við tvenns konar þjóðfélag, ger-
ólíkt að flestu leyti. Og þessi þróun var
á góðri leið að skipta þessum þjóðum,
og raunar heiminum öllum, í tvær
fylkingar, svo ólíkar, að þær virtust lít-
ið eða ekkért eiga sameiginlegt. Sam-
bandið var lítið, kynnin takmörkuð.
Við slíkar aðstæður kemur tortryggnin
til skjalanna, og þegar hún fær að leika
lausum hala, er fjandskapurinn venju-
lega á næsta leiti.
Á síðustu árum og áratugum hefur
manninum með aðstoð vísinda tekizt
að beizla öfl náttúrunnar í svo ríkum
mæli, að hann er nú ekki aðeins herra
jarðarinnar, heldur er hann einnig að
verðaherra himingeimsins. En jafn-
framt því sem vísindin hafa búið
mannkyni betri skilyrði til hagsældar
en það hefur átt kost á nokkru sinni
fyrr, hafa þau fengið valdhöfum verald-
Þessa rœðuflutti
Gylfi Þ. Gíslason í
tilefni 50 ára af-
mœlis Sovétríkj-
anna 6. nóvember
1967.
ar svo máttug vopn í hönd, að auðvelt
er að eyða heimsbyggðinni í skjótri
svipan. Við slíkar aðstæður má mann-
kyn ekki skiptast í fjandsamlegar fylk-
ingar, i þjóðir, sem hvorki þekkja né
skilja hver aðra, sem haldnar eru tor-
tryggni og jafnvel óvináttu hver í garð
annarrar. Það er þess vegna óblandið
ánægjuefni öllum góðviljuðum mönn-
um að bilið, sem um langt skeið virtist
vaxandi milli sósíalísku ríkjanna i Evr-
ópu annars vegar og lýðræðisríkjanna
í Vestur-Evrópu og Ameríku hins veg-
ar, er nú tvímælalaust minnkandi. Þeir
kapitalísku þjóðfélagshættir, sem mót-
uðu lýðræðisríkin fyrir fimmtíu árum,
hafa síðan tekið miklum breytingum.
Þar er nú alls ekki lengur sá kapital-
ismi, sem þar var fyrir hálfri öld. Á því
er enginn vafi, að hér er sumpart um
að ræða áhrif þeirra hugmynda, sem
október-byltingin bar fram til sigurs í
Sovétríkjunum. Og með hliðstæðum
hætti hefur orðið — og er einkum að
verða nú á síðustu árum — mikil breyt-
ing á skipum efnahagsmála í sósíalísk-
um löndum í Evrópu, og raunar á fleiri
sviðum. Breytingarnar í báðum þjóðfé-
lögunum stefna tvímælalaust í þá átt,
að draga úr mun þjóðfélagsháttanna,
minnka bilið, sem áður virtist vera að
vaxa. Auðvitað er munurinn enn mik-
ill. Við, sem erum lýðræðissinnar, telj-
um skorta á andlegt frelsi og stjórn-
málafrelsi í sósíölsku ríkjunum. Ég
veit, að málsvarar þeirra gagnrýna
einkaeignarrétt og áhrif atvinnurek-
enda í lýðræðisríkjunum. En við erum
ekki heldur allir sammála um allt í lýð-
ræðisríkjunum. Það er hvorki nauð-
synlegt né eðlilegt. Aðalatriðið er, að
menn geti rætt það í bróðerni og vin-
semd, sem menn eru ekki sammála
um. Og það geta menn nú í samskipt-
um lýðræðisríkjanna og sósíölsku ríkj-
anna. Meðal annars þess vegna hefur
munurinn á þjóðfélagsháttunum
minnkað og á eftir að halda áfram að
minnka. Og um leið og hann minnkar,
verður einnig auðveldara að ræðast við
í vinsemd og læra hver af öðrum.
í þessu sambandi verður mér oft
hugsað til frásagnar, sem ég las einu
sinni í æviminningabók frægs hers-
höfðingja í síðari heimsstyrjöldinni.
Hann var í stuttu orlofi heima hjá sér
og var að leika við sjö ára gamlan son
sinn. Þábarst honum skeyti, sem hann
þurfti að svara um hæl. Hann brá sér
inn í næsta herbergi til þess að semja
svarið, en til þess að láta drenginn hafa
eitthvað fyrir stafni á meðan, tók hann
landabréf af heiminum, sem lá á borði
í stofunni, klippti það í nokkra hluta og
fékk drengnum þá og bað hann um að
sýna sér, hvað hann kynni í landafræði
með þvi að raða hlutunum saman aft-
ur. Hershöfðinginn þóttist viss um, að
hann hefði fengið drengnum yfrið
verkefni, meðan hann væri að semja
svarskeytið. En eftir nokkur andartök
kallaði strákurinn: Pabbi, komdu, ég
er búinn. Hershöfðinginn kom forviða
inn í stofuna, og þegar hann sá, að
drengurinn hafði leyst verkefnið rétt,
sagði hann: Ekki grunaði mig, að þú
værir búinn að læra svona mikið í
landafræði. Ég er það heldur ekki,
sagði drengurinn. En þetta var enginn
vandi. Það var mynd af manni aftan á
landabréfinu.
Með einföldum hætti vekur þessi frá-
sögn athygli á þvi, að það er maður að
baki allra þjóðfélagsvandamála, öll
þjóðfélagsvandamál eru mannleg
vandamál. Ef við gerum okkur þetta
ljóst, ætti okkur einnig að verða auð-
veldara að gera okkur hitt ljóst, að þörf
er mannlegra sjónarmiða til þess að
leysa þau, og ekki síður, hversu mikla
þýðingu það hefur fyrir manninn, að
þau verði leyst af réttlæti og skynsemi.
Góðir hátíðargestir! Nú, þegar
minnzt er fimmtíu-ára-afmælis októ-
berbyltingarinnar og Sovétríkjanna.er
mér það sérstök ánægja að geta sagt,
að milli íslands og Sovétríkjanna hefur
í allan þenna tíma ríkt vinsamlegt
samband. Vegna fjarlægðar voru sam-
skipti þó lengi vel lítil, en á síðari árum
hafa samskiptin hins vegar orðið mikil
og vaxandi, bæði á sviði viðskipta og
menningar. Sovétríkin eru eitt af
helztu viðskiptalöndum íslendinga.
En jafnframt hafa tekizt náin og mjög
ánægjuleg samskipti á sviði lista og
vísinda. Og í kjölfar náinna og vaxandi
kynna milli sovézkra og íslenzkra
manna i öllum starfsgreinum og stétt-
um hefur siglt vinátta, sem ég vona, að
ekki megi aðeins haldast, heldur einn-
ig vaxa með hverju nýju ári.
Ég færi leiðtogum Sovétríkjanna og
þjóðum þeim, sem víðlent ríki þeirra
byggja hugheilar hamingjuóskir í til-
efni fimmtíu-ára afmælisins með ósk
um gæfu og gengi. Ég óska þess, að
vinátta Sovétþjóðanna og íslendinga
megi haldast um allan aldur.
Gyljl P Gislason fíytur rœöu á þingi Norðurlandaráös í Reykjavík.
Pegar Danir afhentu handritin. Gylfi P. Gíslason ásamt Jörgen
Jörgensen og Helge Larsen.