Alþýðublaðið - 14.03.1987, Síða 8

Alþýðublaðið - 14.03.1987, Síða 8
8 Laugardagur 14. mars 1987 Víma óuar _ _ a Guðmundsson og fangelsi s;:;; Tilgangur fangelsisvistar Á íslandi eru rekin tvö aðalfang- elsi fyrir refsivistarfanga, Litla- Hraun og Kvíabryggja. Auk þess sitja menn um lengri eða skemmri tíma í gæslu á Skólavörðustígnum eða í Síðumúlanum og nokkrir fangar eru í fangelsinu á Akureyri. Tíðni afbrota og dóma hefur aukist á seinni árum og þá sérstaklega málum sem á einhvern hátt tengjast ávana og fíkniefnabrotum. Á þess- ari stundu munu 90 manns gista fangelsi landsmanna, sumir um skamman tíma en aðrir eiga eftir að vera í fangelsum um nokkurra ára skeið. Tilgangur refsivistar er eink- um tvenns konar, þ.e. fangelsunum er annars vegar ætlað að vernda þjóðfélagið og skattborgarana fyrir þeim einstaklingum sem aðhafast refsivert athæfi og hins vegar að gera fangana að betri mönnum, sem eru hæfari en áður að lifa í nú- tímaþjóðfélagi á heiðvirðan hátt. Mörg brot framin í ölœöi Mikill meirihluti íslenskra refsi- fanga er háður áfengi og öðrum vímuefnum og margir hafa verið í áfengismeðferðum en ekki tekist að fóta sig á hálum vegum eðlilegs lífs. Það er ekki vitað hversu stór þessi hluti er, en nefndar hafa verið tölur eins og 75—90% í þessu sambandi. íslenskir brotamenn lenda yfirleitt á glapstigum í sambandi við neyslu áfengis eða annarra vímuefna, fjár- magna neyslu með innbrotum eða ávísanafölsunum, lenda í líkams- meiðingum eða morðum ölvaðir, stela bílum á fylleríum og svona mætti lengi telja. Aðalatriðið er, að harðsvíraðir glæpamenn, sem fremja afbrot sín annaðhvort ein- ungis í auðgunarskyni eða af hreinni fúlmennsku eru sem betur fer sjaldséðir I þessu landi. Flestir þeirra sem á seinni árum hafa feng- ið dóma í ávana og fíkniefnamálum fyrir annaðhvort innflutning eða sölu og dreifingu eru háðir efnun- um sem þeir hafa verið að fást við. Vítahringur brotamanna Stór hluti brotanna er tengdur neyslu áfengis eða annarra vímu- efna og menn sitja af sér mislangan fangelsisdóm vegna þeirra. Þegar út er komið er áframhaldandi neysla áfengis og annarra vímuefna aðal- vandamál þessara einstaklinga. Oftar en ekki koma þessir menn úr fangelsunum fullir af góðum áformum en lenda fljótlega á fylleríi og eru þá áður en auga á þeim festir komnir útí innbrot og ávísanafals á nýjan leik og aftur austur fyrir fjall fyrr en þá óraði fyrir. Þegar út er komið á nýjan leik endurtekur sig sama saga og þannig verða menn oft síbrotamenn í ís- lensku þjóðfélagi. Ef þeir sem setið hafa í fangelsum vegna ávana- og fíkniefnabrota hætta ekki allri neyslu fara þeir fljótlega aftur á stúfana og taka til við innflutning og sölu á nýjan leik, því að þeir vita að þar eru peningar, sem á þarf að halda til að fjármagna neysluna. Aðalvandi refsifangans Það er gífurlega þýðingarmikið að gera sér grein fyrir þessu aðal- vandamáli íslenskra refsifanga og í raun verða engin vandamál þeirra leyst af einhverju viti, nema það takist að halda þeim frá áfengi og öðrum vímuefnum. Það má leysa húsnæðisvanda þessara manna, út- vega þeim vinnu, leysa ósköpin öll af félagslegum vanda en haldi þeir áfram að drekka er þetta allt unnið fyrir gýg og til lítils. Gengi þeirra í þjóðfélaginu utan múranna er und- ir því komið hvernig tekst að halda sér frá áfengi og öðrum vímuefn- um. Neysla í fangelsunum Það er því mjög mikilvægt að nota refsivistina til að fást við þetta aðalvandamál þeirra þ.e. alkóhól- ismann og á sama tíma sjá til þess að engin neysla ávana- eða fíkni- efna fari fram í fangelsunum. Ef slík neysla fær að blómstra innan veggja fangelsanna hefur sá hluti refsivistarinnar að reyna að gera fangana að betri þjóðfélagsþegnum mistekist hrapallega. Það er öruggt, að fangi sem er í neyslu meðan á vistuninni stendur heldur neyslunni áfram þegar útí lífið er komið og áður en varir hefur sama gamla af- brotasagan endurtekið sig einu sinni enn. Það er erfitt að meta, hversu mikil vímuefnaneysla fer fram í íslenskum fangelsum en sennilegast er hún þó nokkur, eða svo segja mér heimildarmenn minir úr hópi fyrrverandi fanga. Aðallega er smyglað inn fyrir veggina kanna- bisefnum og róandi lyfjum og hef- ur reynst erfitt að stemma stigu við því. I þessu sambandi má nefna, að fá efni eru eins skaðleg fyrir minni, ályktunargáfu og almennan áhuga og kannabis og róandi lyf. Neyt- endur þessara efna eru mjög áhuga- Iitlir um allt, nenna fáu og reyna Iít- ið að skoða það sem betur mætti fara. Það er mjög alvarlegt mál, að neysla vímuefna skuli geta viðgeng- ist inni í fangelsunum, en erfitt er við slíkt að fást. Þessi neysla og til- vist vímuefna innan veggja fangels- anna hefur mjög skaðleg áhrif á fangana og virkar niðurdrepandi á þá. AA-deildir í fangelsum Fangarnir hafa reynt að spyrna við fæti og berjast gegn vímuefna- neyslu innan fangelsanna og styrkja sig fyrir framtíðina og starfrækja AA-deildir, þar sem þeir ræða þessi mál og reyna að hjálpa hver öðrum. Það er ákaflega mismunandi hversu mikil þátttaka er í AA-starfinu inn- an fangelsanna. Yfirleitt er þó hægt að meta áhuga fanganna á veruleg- um breytingum í eigin lífi eftir því hversu mikið þeir starfa í AA-deild- unum. Þeir sem starfa í AA innan fangelsanna hafa mun betri grund- völl til að standa á þegar út í lífið er komið. Fyrirlestrar og fundir Ég tel, að leggja eigi mun meira uppúr því að styrkja fangana í þeirri viðleitni sinni að lifa edrú lífi en nú er gert. Sú fyrirbyggjandi starfsemi sem fram fer innan veggja fangelsanna núna ájsessu sviði er, að starfsmenn frá SÁÁ fara nokkr- um sinnum á ári í sjálfboðavinnu með fyrirlestra og auk þess fá fang- arnir utanaðkomandi aðstoð frá AA-mönnum til að halda AA- deildunum gangandi. Oft er reynt að taka fanga beint inná meðferðar- stofnanir annaðhvort eftir að þeir koma eða áður en þeir fara í úttekt til að aðstoða þá á því erfiða skeiði sem í hönd fer. En betur má ef duga skal. Deildaskipt fangelsi Það verður að taka þetta vanda- mál mjög föstum tökum í samráði við fangana sjálfa, en flestir þeirra gera sér grein fyrir þvi að áfengis- vandinn er aðalmálið þegar út er komið. Mín tillaga er sú, að fangels- in verði deildaskipt, þannig að komið verði upp deild innan t.d. Litla Hrauns sem rekin væri í sam- starfi við meðferðarstofnanir fyrir áfengissjúka. Á slikri deild yrði mikið lagt uppúr alls kyns fræðslu en jafnframt grúppuvinnu og um- ræðum um vímuefni og hvað varast verði þegar út er komið. Margir þessara einstaklinga hafa verið á meðferðarstofnunum en fallið aft- ur í neyslu og þá þróun þarf að skoða mjög náið með þessum mönnum svo koma megi í veg fyrir að sagan endurtaki sig. Á slíkri deild yrði mikil áhersla lögð á AA- fundi, sem yrðu á hverjum degi. Fangarnir yrðu að sækja um að komast á slíka deild en það ætti að verða eftirsóknarvert þar sem frammistaða manna i áfengispró- gramminu yrði Iögð til grundvallar þegar metið yrði hvort stytta ætti refsivistina. Slík deild yrði auðvitað algjörlega Iaus við öll vímulyf og mjög hart tekið á öllum brotum í því sambandi. Deildir sem þessar eru víða reknar á bandarískum fangelsum og þykja gefast vel, enda er reynt að tengja fangana þegar út er komið við AA-deildirnar og ýmsa áfangastaði sem reknir eru í samráði við meðferðarstofnanir. Margir fangar kvarta undan þeirri einangrun og tómarúmi sem þeir upplifa þegar hliðin að Litla Hrauni skellast í lás að baki þeim að aflokinni refsivist. Margir verða ofsahræddir við það sem bíður þeirra inni í Reykjavík og leita óðar í flöskuna þegar þangað er komið og inní gamla svallhópinn. Með því að tengja þessa menn meðferðar- stofnunum og áfangastöðunum og AA-deildunum þegar út er komið má koma í veg fyrir mikið af þessu. Fyrirbyggjandi aðgerðir Með því að taka af alefli á áfeng- is- og vímuefnavandanum á þennan hátt væri lagður grundvöllur að því að þessir menn gætu fótað sig betur þegar út væri komið. Reynslan er sú, að sé ekki tekið á þessu vanda- máli verða allar aðrar aðgerðir hálf- kák eitt og þeim fjármunum sem eytt er í fangelsisvist á glæ kastað. Besta vörn þjóðfélagsins gagnvart afbrotum þessara einstaklinga er sennilega að reyna af alefli að fást við vímuefnavanda þeirra. Ef tekst að leysa hann er mikið unnið í fyrir- byggjandi starfi. Þetta á ekki hvað síst við um þá einstaklinga sem leið- ast útí innHutning og sölu á ólög- legum vímuefnum. Ef ekki tekst að leysa vandamál þessara einstakl- inga hvað varðar eigin neyslu eru miklar líkur til þess að þeir fari beint útá afbrotabrautina á nýjan leik þegar útí lífið er komið. Þannig gegnir raunhæf meðferð á þessu fólki mun stærra þjóðfélagslegu hlutverki en margir gera sér grein fyrir sem fyrirbyggjandi aðgerð, hvað varðar innflutning og sölu vímuefna. Neysla þessara dreifing- araðila tengist beint öllum innflutn- ingi og sölu efnanna til annarra neytenda. Fangelsin eiga að vera fyrsta skref þessa fólks til nýs lífs án vímuefna, en það tekst einungis með því að tengja fangelsin áfengis- meðferð og AA-samtökunum. Deildaskipt fangelsi, þar sem fang- ar gætu verið í friði fyrir vímuefn- um og í alvöru gert eitthvað róttækt í sínu lífi hvað þetta varðar er frum- skilyrði þess að þessar stofnanir geti mögulega skilað frá sér betri og hæfari einstaklingum en þangað fóru inn. Óttar Guðmundsson er yfirlæknir SÁÁ að Vogi og skipar 10. sæti á lista Alþýðuflokksins í Reykjavík. Óttar Guðmundsson lœknir við Litla-Hraun en þar heldur hann reglulega fyrir- lestra um áfengis- og vímuefni: „Oftar en ekki koma menn úr fangelsum fullir af góðum áformum en lenda fljótlega á fylleríi og eru þá áður en auga á þeim festir komnir útíinnbrot og ávísanafals á nýjan leik og aftur austurfyrirfjall. Sagan end- urtekur sig og þannig verða menn oft síbrotamenn í íslensku þjóðfélagi.“ íslenskir afbrotamenn lenda yfirleitt á glapstigum í sambandi við neyslu áfengis eða annarra vímuefna., fjármagna neysl- una með innbrotum eða ávísanafölsun- um, lenda í líkamsmeiðingum eða morð- um ölvaðir... Margir fangar kvarta undan þeirri ein- angrun og tómarúmi sem þeir upplifa þegar hliðin á Litla-Hrauni skellast í lás að baki þeim að aflokinni refsivist. Marg- ir verða ofsahrœddir við það sem bíður þeirra í Reykjavík og leita óðar í flöskuna þegar þangað er komið og inn í gamla svallhópinn... Það er mjög mikilvœgt að nota refsivist- ina til að fást við aðalvandamál fang- anna, þ.e. alkóhólismann og sjá til þess að engin neysla ávana- eða fíkniefna fari fram í fangelsum. Þeir fangar sem stunda AA-prógrammið innan fangelsanna hafa mun betri grundvöll til að standa á þegar út í lífið er komið... Mín tillaga er sú að fangelsin verði deildaskipt, þannig að komið verði upp deild t.d. innan Litla-Hrauns sem rekin vœri í samstarfi við meðferðarstofnanir fyrir áfengissjúka...

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.