Alþýðublaðið - 14.03.1987, Side 19

Alþýðublaðið - 14.03.1987, Side 19
Laugardagur 14. mars 1987 19 Rætt við stýrimanninn, alheimshornaflakkarann, ævintýramanninn, Vestmannaeyinginn og þó sér í lagi fslendinginn Jón „Bondó“ Pálsson. ísland er besta land í heimi, — Sögumaðurinn: Jón „Bondó“ Pdlsson. og Vestmannaeyjar besti heimur á „Bondó“ ekki skírnarnaf n „Það er ekki rétt að ég hafi verið skírður „Bondó“. Hins vegar hefur þetta loðað við mig frá því ég var smábarn. Síðan fór þetta uppnefni að detta út um fermingu, en þá fór ég sjálfur að skrifa mig þetta, — og geri það enn þann dag í dag. Þetta nafn er þannig til komið að það var kunningi minn sem passaði mig mikið þegar ég var lítill og honum fannst þetta orð hrökkva út úr mér eitthvað líkt þessu. Hann fór sem sagt að kalla mig þetta og þetta fest- ist síðan við mig. Svo fór þetta að þykja hálfgerð hneisa, svona þegar búið var að ferma mig, að vera að uppnefna mig þetta, en þá fór ég að skrifa mig þetta sjálfurþ sagði Jón „Bondó“ Pálsson, sjómaður og al- heimsflakkari í Vestmannaeyjum. Af elstu ætt I Eyjum „Ég er fæddur og uppalinn í Vest- mannaeyjum og á héðan ættir að rekja. Móðurætt mín var búin að búa hér í eitthundrað og fimmtíu ár þegar gaus hér sem heimsfrægt varð. Og mun það vera elsta ætt hér í Vestmannaeyjum, en móðir mín heitir Fanney Guðjónsdóttir, og er frá Oddsstöðum. Faðir minn hét Páll Eyjólfsson og var ættaður sunnan úr Höfnum. Þegar ég fæðist þá bjuggum við á Bolsastöðum, i húsi sem ísleifur heitinn Högnason byggði á sínum tíma. Þar Ieigðu foreldrar mínir í nokkur ár. Og þar elst ég upp fyrstu árin. Þegar við flytjum frá Bolsa- stöðum þá er ég líklega tíu ára gam- all og þá flytjum við í annað leigu- húsnæði og bjuggum þar í þrjú ár, en þá festu foreldrar mínir kaup í verkamannabústað. Faðir minn, Páll Eyjólfsson var forstjóri fyrir sjúkrasamlaginu hér í Eyjum, alveg frá stofnun þess og þangað til að hann hætti fyrir ald- urs sakir. Ungur til sjós Ég var fjórtán ára gamall þegar ég byrja til sjós. Er þá til sjós í tvö sumur, en vann við fiskaðgerð á vertíðunum. Og fimmtán ára byrja ég alfarið að róa og þá á smærri bátum, fyrst á Kap VE 272 sem var 27 tonna bátur. Hér var nefnilega útgerðarmaður í Vestmannaeyjum sem Jón í Hlíð var nefndur. Hann las bókina Kapítólu og varð svo hrifinn af bókinni að hann skírði dótturina Kapítólu og bátinn sem hann eignaðist þessu nafni líka! Sú útgerð gekk þó ekki allt of vel, eftir þvi sem mér hefur skilist og þá stytti hann nafnið niður í Kap og það virðist hafa dugað, því síðan hefur þetta verið mikið happanafn í Eyj- um. Þessi bátur er til enn þann dag í dag og gengur mjög vel. Með Guðjóni Valdasyni Mér hefur alltaf fundist ákaflega skemmtilegt að vera til sjós. Ég varð fyrir því láni að lenda með ákaflega góðum manni og skipstjóra þegar ég byrja á sjónum, en hann heitir Guðjón Valdason, sem er enn á lífi, — ég held að hann sé níutíu og fimm ára gamall. „Krati” mikill og fer allra sinna ferða og er ákaflega hress maður. Ég er viss um að það hefur verið ákaflega mikið lán fyrir mig að lenda með slíkum manni, Guðjóni Valdasyni, fyrir mig sem byrjanda. Hann var bæði góður kennari og virkilega góður félagi að öllu leyti. Sjálfur var ég sjóveikur fimm fyrstu árin sem ég var til sjós upp á hvern dag, en svo fór þetta loksins af manni. Móðir mín var nú alltaf að biðja mig að hætta þessari sjómennsku, en það var bara ekkert annað að gera í Éyjum en að stunda sjóinn, eða þá loka sig inn í frysti- húsi og það langaði mig ekki til að gera. Gámaútflutningur Það er náttúrlega ekkert spurs- mál í sambandi við þennan gámaút- flutning gagnvart sjómönnum því gámaútflutningurinn jafnar sig kannski upp með þrefalt verð mið- að við heimalandað.Síðan er það auðvitað spurningin hvort það sé alfarið rétt að senda svona mikinn fisk út í gámum eða á að deila þessu eitthvað niður, þannig að vinnan leggist nú ekki alveg af í landi? En það er nú svo skrýtið að mér finnst eins og þeir séu ekkert of ánægðir með að fá hráefni í húsin hérna. Og ég eiginlega skil það ekki, og ég held að það skilji enginn maður. Frystihúsin hér eiga sína eigin togara og ég veit ekki betur en að þeir séu að flytja út í gámum. Það getur þó stafað af því að þeir halda ekki fólkinu nema fiskurinn sé látinn í gáma. Sjálfur er ég á móti öllum boðum og bönnum. Ég er núna á bát hjá Sigurði Einarssyni, stórútgerðar- manni. Hjá honum er það númer eitt að frystihúsið hafi hráefni. Hins vegar það sem umfram er, það fáum við að láta í gáma. Þetta hefur gefið mjög góða raun. Hans bátar afla reyndar yfir höfuð mjög vel og hann hefur haft yfirdrifið nóg hrá- efni fyrir frystihúsið, þannig að við fáum yfirleitt alltaf að láta eitthvað í gáma. Og núna til dæmis á meðan síldartíminn er, þá vinnur hann al- farið síld og þá fer allur fiskur frá okkur í gáma á meðan á því stend- ur. Þetta hefur komið mjög vel út og allir mjög ánægðir með þetta. Hins vegar nær það ekki nokk- urri átt ef gámafiskútflutningar valda atvinnuleysi í húsunum. Og við megum heldur alls ekki glata okkar útflutningsmarkaði. Það eru miklar hættur í þessu, en ég held þótt ég sé á móti öllum boðum og bönnum að það verði að setja ein- hvern kvóta á þetta, þannig að við töpum ekki þeim mörkuðum sem við þegar höfum. En ég er sammála því að setja einhverjar reglur sem væru þá sveigjanlegar, því það þýð- ir ekkert að setja einhverjar harð- svíraðar útpískunarreglur. Sumir bátar hér, sem frystihúsin eiga hlut í, eru með þetta þannig að þeir hafa fengið að setja í einn gám á viku. Það virðist vera nokkuð góð regla. Þetta lyftir hlut sjómannanna ákaf- lega mikið upp og ef að menn geta selt fjóra gáma á mánuði til viðbót- ar því sem þeir landa hérlendis, þá þurfa menn ekki að kvarta. Og það er aðalatriðið að finna út eitthvað svona kerfi sem allir geta sæst á. Þetta álít ég mjög góða reglu og með þessu móti, þá er ekki verið að taka of mikið frá frystiiðnaðinum. Bónusinn hátt hlutfall Annars í sambandi við þetta tal um kaupið hjá fólkinu í frystihús- unum, þótt ég viðurkenni að kaup- ið sé mjög lágt, þá heyrum við bara aldrei neitt annað en um tímakaup- ið. En hvað gefur bónusinn þessu fólki? Ég veit það reyndar ekki, en hann er vissulega orðinn hættulega hátt hlutfall af heildartekjum, — eftir því sem mér skilst. Þegar land- verkafólkið missir bónusinn, þá er tekjuöflun heimilisins stefnt í voða. Ég held að ég hafi heyrt það í út- varpi fyrir nokkru, að fólk sem er í góðum bónus, það getur komist í þrjú hundruð krónur á tímann og þá er náttúrlega stærsti hluti laun- anna orðinn bónusinn. Það er auð- vitað ekkert sniðugt, því grunnur- inn verður alltaf að vera það sterkur að heimilin hrynji ekki þegar bón- usinn er farinn. En þá vaknar sú spurning: Er ekki hægt að jafna þessum bónus niður og borga hærra timakaup? Þeir eru reyndar eitthvað að bauka við þetta í samn- ingunum núna, en maður er bara alveg hættur að treysta þessum mönnum. Einkahagsmunapotið í þessu er orðið þannig að það er ógeð hreint út sagt. Texti: Örn Bjarnason íslandi Verkalýðsforystan slöpp! Ég er á þeirri skoðun að ef að laun 'almennt í landinu yrðu jöfnuð út, þá þyrfti enginn að kvarta. Og mér finnst, því miður, að verkalýðs- forystan hún gangi upp í því að gera þá ríku ríkari og þá fátæku fátæk- ari. Mér finnst þetta óhuggulega satt. Ég hef reyndar ekki fylgst svo mjög með málum hér á landi, því ég var erlendis í tíu ár og ekki nema tvö ár síðan ég ég koma heim. En slæmt var það áður en ég fór út, en mér finnst ástandið vera helmingi verra í dag. Verkalýðsforystan er alltaf að verða linari og linari. Þú segir mér að Jón nafni minn Kjartansson hafi einhvern tímann sagt að það sé eins og að tala við steininn að nefna það við atvinnu- rekendur að fólk fái laun sem möguleiki sé að lifa af. Jafnvel að sumir verkalýðsforingjar virðist ekki kippa sér upp við þetta. Ég er alveg sammála Jóni nafna mínum í þessum efnum. Kíkti á þetta sjálfur Ég fór út með einum Fossinum sem var að fara með gámafisk frá okkur og fylgdi fiskinum alveg eft- ir, alveg frá því að ég veiddi hann og þangað til að búið var að selja hann. Þetta gerði ég til þess að vita það með fullri vissu hvað raunveru- lega væri að gerast í þessum málum og hvernig þessi gangur málsins fór fram. Skýringin á því að ég fór þessa ferð er sú að ég hef aldrei viljað spara ís í fisk, því að ég vil koma með ferskt og gott hráefni i land. Jóhannes Kristinsson, sem er höf- uðpaurinn hér i „gámavinafélag- inu”, hann var alltaf að skamma mig fyrir að ísa of mikið. Ég ansaði þessu aldrei, þar til að hann segir: „Það er best að senda þig út með Fossinum í nótt” Ég sagði að það væri í góðu lagi, ég skyldi fara út

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.