Alþýðublaðið - 11.04.1987, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 11.04.1987, Blaðsíða 10
10 Hörmungarástand í góðærinu hans Steingríms — Elín Alma Arthúrsdóttir, þingmannsefni Alþýðuflokksins í Suðurlandskjördæmi, stillir afrekaskrá ríkisstjórnarinnar upp gegn framtíðarsýn Alþýðuflokksins Fljótt skipast veður í lofti. Fyrir örfáum dögum, á augnablik- um í sögunni, klofn- aði stærsti flokkur þjóðarinnar að minnsta kosti í tvennt. Enginn veit ennþá hvað klofning- urinn er stór og hverjar afleiðingarnar verða. Það er upp- reisnarandi í fólki. En uppreisn gegn hverju? Gegn skattsvikum? Nei, gegn siðleysi í stjórnmálum? Nei, gegn stjórnarstefn- unni? Nei. Gegn hverju þá? Sá sem kynni skýringuna á því væri skarpskyggn. Það sem helst kemur upp í hugann þegar horft er á atburði síðustu vikna er að fólk sé að mótmæla aðferðinni við brott- vikningu Alberts Guðmundssonar, hvítu perlunnar úr fótboltanum, úr ráðherrastól. En við verðum öll að gera okkur grein fyrir því að það verður að gerast á annan hátt en við kjörborðið. Við kjörborðið eiga verk þeirra sem stjórnað hafa að dæmast. Við kiörborðið Þar sem allir geta sýnt hug sinn til þess sem búið er. Og hvernig hefur stjórnarstefna undangenginna fjögurra ára verið? Finnst ykkur þið hafa fundið mikið fyrir góðærinu? Finnst ykkur þið ráða ferðinni í eigin málum? Finnst ykkur staðan í skattamálum góð, í heilbrigðismálum, skólamálum eða landbúnaðarmálum? Mér finnst það ekki. Góðœri eða hörmungarástand Við heyrum mikið talað um góð- ærið, og forsætisráðherra Stein- grímur Hermannsson lét hafa það eftir sér í viðtali að ef til góðæris hefði ekki komið þá væri hér hörm- ungarástand. Þetta segir allt sem segja þarf, batinn í efnahagslífinu stafar af utanaðkomandi áhrifum. Þjóðarsáttin hans Þorsteins er til- komin fyrir atbeina aðila vinnu- markaðarins, og hvur veit hvað undir kraumar? Skyldi þjóðarsátt- in vera til nema í munni fámennra hagsmunaaðila? Hvað með verð- bólguna? Hún er sögð hafa farið úr 130% í 13%, við skulum vera minn- ug þess hverjir voru við stjónvölinn þegar verðbólgan var sem hæst, við skulum líka muna að verðbólgan mælist nú í kringum 20% á árs- grundvelli og mér segir svo hugur um að stefnan sé uppávið. Framsóknarflokkurinn hefur frá upphafi talið sig verndara þeirra sem á landsbyggðinni búa og boða nú „nýja öfluga byggðastefnu sem miðar að því að íbúar dreifbýlisins njóti hliðstæðra lífskjara og þjón- ustu og aðrir íbúar landsins“. Þetta lýstir því best í hvurslags fílabeins- turni Framsóknarflokkurinn er lokaður. Þeir hafa verið í u.þ.b. 16 ár í ríkisstjórn — og fólksflóttinn frá landsbyggðinni er staðreynd sem ekki verður hrakin. Lands- byggðarbúar eru orðnir langþreytt- ir á því að „skaffa“, en bera lítið úr býtum í staðinn. Svo leyfir Fram- sóknarflokkurinn sér að halda því fram að hann beri hag okkar fyrir brjósti. Af hverju í ósköpunum er staðan þá eins og hún er nú? Af hverju vöknuðu þeir ekki fyrr af þyrnirósarsvefni síðustu 16 ára? Staðgreiðslukerfið aðeins fyrsta skrefið Um fátt var meira rætt og ritað í upphafi þessa árs en staðgreiðslu- kerfi skatta. Stjórnarliðar fóru frjálslega með staðreyndir og vændu Alþýðuflokkinn um það að vera á móti slíku greiðslukerfi. Það sem Alþýðuflokkurinn hafði á móti voru vinnubrögðin — sem ekki samræmdust svo viðamiklu máli. Ég tel að staðgreiðslukerfið hafi aðeins vegið eitt skref af ótal- mörgum skrefum sem taka þarf í skattamálum. Hvað var t.d. gert við niðurstöður úr skattsvikaskýrsl- unni? Þær voru settar undir stól. Það sem hefur breyst nú er greiðslu- fyrirkomulagið. Meira að segja er búið að fella út þá reglu sem í gildi var um niðurfellingu á gjöldum þeirra sem voru að ljúka störfum vegna aldurs, Alþýðuflokkurinn kom með tillögu um að þeim yrðu endurgreiddir skattar af tekjum að 700.000 krónum, sú tillaga var felld — líka af Albert sem nú kallar sig sverð og skjöld sjúkra og aldraðra. Fyrir utan það að í heilbrigðis- kerfinu logar allt í vinnudeilum er ástandið víða út um land hrikalegt. Það er ekki boðlegt á því herrans ári 1987 að fólk þurfi alltaf að fara til Reykjavíkur ef eitthvað bjátar á, vera fjarri ættingjum og vinum á erfiðum stundum, fyrir utan þann kostnað sem af slíkum ferðum hlýst. Og hvernig er tannlækna- þjónustan? Svo dýr að venjulegt fólk veigrar sér við að fara til tann- læknis. Það sagði starfsmaður í verksmiðju út á landi að hann hefði gerst svo bjartur að fara til tann- læknis — 4.000 krónur fyrir hvert skipti — en viðkomandi hafði sjálf- ur u.þ.b. 40.000 krónur á mánuði! Sjá ekki allir hvurslags misræmi þetta er — er það þetta sem fólki líkar vel við í heilbrigðiskerfinu? Við íslendingar viljum láta líta á okkur sem vel upplýsta þjóð. Við hælum okkur af því á hátíðum og tyllidögum. Við köllum okkur „bókaþjóð“. En hvernig er ástandið í skólakerfinu? Þjónar það öllum jafnt eins og þó kveður á í grunn- skólalögunum? Við þurfum ekki að hugsa lengi til að svara því. Allir muna upphlaupið í kringum fræðslustjórann á Norðurlandi eystra. Þá kom vel í ljós mismunuÞ' inn á því sem í grunnskólalögunum stendur og raunveruleikanum. Það er illt til þess að vita að allur niður- skurður í menntakerfinu skuli fyrst koma niður á þeim sem minnst mega sín, þeim sem þurfa sér- kennslu og sérstaka aðhlynningu. Af því ætti enginn að stæra sig. Að brjótast úr ánauð Atvinnumál eru sá málaflokkur sem mér finnst brenna einna heitast á landbyggðarbúum. Það er ekki lengur nóg að hafa næga atvinnu, heldur eru sífellt gerðar fullkom- lega eðlilegar kröfur um meiri fjöl- breytni í atvinnulífinu. Þó að löngu sé ljóst að auðlindir okkar eru ekki óþrjótandi hefur ótrúlega lítið gerst í uppbyggingu atvinnulífsins. Það verður að leggja áherslu á nýjar greinar, líftækni og rafeindatækni — við getum framleitt gæðavörur bæði til sjávar og sveita og eigum að nýta okkur það. Þess vegna þarf að brjótast út úr ánauð einokunar og stöðnunar. Við eigum einnig að nýta okkur náttúrufegurð landsins og það hve laus við erum við meng- un, sem hrjáir margan útlendinginn — þess vegna þarf að koma skipu- lagi á alla ferðamannaþjónustu og hlúa að þeirri grein sem friamtíðar- atvinnuvegi. Breytum misrétti í réttlœti Ég er stundum spurð hvers vegna í óskssöpunum ég hafi farið að blanda mér í pólitík. Svarið við því er einfalt. Vegna þess að ég var búin að taka afstöðu, vegna þess að mér finnst stefna Alþýðuflokksins höfða til mín og vera það sem getur breytt misrétti í réttlæti. Og þegar maður hefur tekið afstöðu — þá er nauðsynlegt að starfa með, reyna að koma skoðunum sínum og flokks- bræðra sinna á framfæri — reyna að fá styrk til að hrinda þeim í framkvæmd. Völdin í hendur fólksins Mér eru málefni landsbyggðar- innar einkar hugleikin, enda alltaf búið fjarri glysi og glaumi höfuð- borgarinnar. Allar tillögur Alþýðu- flokksins ganga í sömu átt — að færa völdin í hendur fólksins. Við leggjum áherslu á einn Iífeyrissjóð fyrir alla landsmenn. Sá sjóður á að vera deildskiptur eftir landshlutum þannig að fjármagnið renni ekki viðstöðulaust í eina stóra hít í Reykjavík eins og nú er, í gegnum Húsnæðislánakerfið, heldur stöðv- ist þar sem það á heima. Þannig geta eigendurnir haft eitthvað um ráðstöfun þess að segja. Við leggj- um áherslu á Iandshlutaskiptan fjárfestingarlánasjóð sem gagnist öllum atvinnugreinum í stað þeirra 12 sjóða sem nú starfa, allir í Reykjavík. Við leggjum áherslu á kaupleiguíbúðir sem gefa fólki kost á vali í húsnæðismálum — frelsi til að eyða bestu árum ævinnar í ann- að en steinsteypupuð og eilífar fjár- hagsáhyggjur. Við leggjum áherslu á að heildarlengd vinnutíma fólks verði svipuð og í nágrannalöndun- um. Það er athyglisvert að í yfir- vinnubanninu 1977 var gerð könn- un á áhrifum þess á afköst í fyrir- tækjum, sem leiddi í ljós að 85% fyrirtækjanna náði að halda sömu afköstum og áður eða auka þau. Þetta sýnir að hægt er að greiða hærra fyrir dagvinnuna, sem aftur myndi leiða til meira og betra fjöl- skyldulífs — sem víða er orðið harla bágborið sökum vinnuþræl- dóms. Þriðja hver skattakróna til Reykjavíkur Á Suðurlandi eru blómlegar byggðir og góðar verstöðvar. Þetta á því að geta verið svæði þar sem fólk vill búa. Samt er það svo að Suðurland er láglaunasvæði, þrátt fyrir að við fiskveiðar séu meðal- tekjur háar. Þetta tel ég vera mjög stórt vandamál á Suðurlandi þar sem margir borga mjög háar upp- hæðir í orkukostnað. Það Iauna- skrið sem átt hefur sér stað á höfuð- borgarsvæðinu hefur ekki náð út á landsbyggðina. Vöruverð er yfir- leitt hærra og fasteignaverð hefur hríðfallið. Meginverkefni næstu ríkisstjórn- ar verður að kveða þess öfugþróun í kútinn. Landsbyggðin leggur til u.þ.b. 60% af tekjum ríkisins en fær til baka u.þ.b. 40% — miðstýringin er að drepa niður allan fjölbreyti- leika og frumkvæði heimamanna. Miðstýringin er fjarlæg verkefnun- um og einkennist af þungu skrif- ræði. Sveitarfélög eru alltof háð duttlungum ríkisvaldsins — og ákvarðanir eru oft teknar hjá em- bættismönnum sem bera enga ábyrgð. Ef ekkert verður að gert verður ísland borgríki innan fárra ára — fólkið allt flutt „suður“ — á eftir fjármagninu. Hvaða tík er það? „Hvað tík er það,“ sagði karlinn þegar hann heyrði fyrst minnst á rómantik. Það er á svipaðan veg farið fyrir mörgum þessa dagana. „Hvurs lags tík er þessi pólitík eig- inlega að verða,“ spyr fólk og veit ekki sitt rjúkandi ráð. Hvernig á annað að vera þegar allt í einu er búið að stofna nýjan flokk um ekki neitt. Einn frambjóðandi þessa nýja flokks lýsti þessu „nýja afli“ sem bylgju — mér datt þá í hug að það eru örlög flóðbylgja að skemma út frá sér og deyja síðan út! Alþýðuflokkurinn á möguleika á að verða sú kjölfesta sem þarf i ís- lenska pólitík. Hann á möguleika á að verða afl sem getur breytt þjóð- félaginu. Hann gengur samhentur til kosninga — við erum lið sem spilum saman, og við ætlum okkur að gera stóra hluti. Með þessu liði vil ég spila, þar sem liðsheildin er látin sitja í fyrirrúmi — þar sem málefni vega meira en flokksræði, þar sem fingurnir fléttast saman í sterkri stöðu, hugsjónum sem meta manninn og mannúðina ofar stund- arhagsmunum. Það er ekki boðlegt á því herrans ári 1987 að fólk þurfi alltaf að fara til Reykjavíkur ef eitthvað bjátar á... ... —frelsi til að eyða bestu árum œvinnar í annað en steinsteypupuð og eilífar fjárhagsáhyggjur.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.