Alþýðublaðið - 01.08.1987, Síða 7
Laugardagur 1. ágúst 1987
7
hvers fólk ætlar að verja peningun-
um, hvort það ætlar að kaupa íbúð,
kaupa bíl eða hvað það kann að
vera. Reglan er einfaldlega þessi:
Þeim mun hærri tekjur þeim mun
hærri skattur. Með staðgreiðslu-
kerfi skatta og flötum og einfaldari
prósentu hlutfallstölu sem tekin er
af launum, þá má segja að skattur-
inn sé ekki eins réttlátur í þeim
skilningi að þú aflar meiri tekna, en
þú borgar alltaf sömu prósentuna,
þannig að staðgreiðslukerfi skatta
kemur til móts við þetta sjónarmið
sem þú ert að lýsa.“
— Kom aldrei til greina að leggja
sérstakan skatt á stóreignamenn og
hátekjufólk við samningu mátefna-
samnings?
„Að leggja skatt á hátekjufólk
hefði verið að leggja skatt á laun-
þega sem leggur nótt við dag, —
dæmið sem þú varst að taka áðan.
Og við höfðum engan sérstakan
áhuga á þvi á meðan að skattur sem
byggist á framtölum skattgreiðend-
anna sjálfra sem hafa mjög mis-
munandi aðstöðu til þess að telja
þessar tekjur fram, eða jafnvel að
láta það ógert, þá er skattur á há-
tekjur aðeins skattur á þá sem eru
að leggja hart að sér.
En að því er varðar stóreigna-
skatt, þá varð ekki um það sam-
komulag á milli þessara flokka
vegna eindreginnar andstöðu Sjálf-
stæðisflokksins við því.“
— Nú er það blindur maður sem
ekki sér að í hverju horni þjóðfé-
lagsins viðgengst alls kyns brask og
baktjaldamakk með peninga. Er
meiningin að reyna að koma í veg
fyrir slíkt í framtíðinni?
„Meginverkefni ríkisstjórnarinn-
ar, eins og fram kemur í hennar
málefnasamningi, er að taka allt
skattakerfið til heildarendurskoð-
unar, að koma á einfaldri fram-
kvæntd á staðgreiðslukerfi skatta,
að endurskoða frá grunni skatt-
lagningu fyrirtækja þar sem megin-
reglan er sú að fækka frádráttarlið-
um og undanþágum og fylla upp í
skattagöt, breikka skattstofninn en
lækka skattprósentu. í þriðja lagi
að taka ákvörðun um skattmeðferð
á tekjum og fjármagni til samræmis
við tekjur fyrir vinnuna. 1 fjórða
lagi að koma á einföldu og undan-
þágulausu neysluskattakerfi sem að
lokum verður virðisaukaskattur og
þar sem að hægt er að koma við eft-
irliti og viðurlögum ef útaf ber. í
heild sinni á þetta skattakerfi að
vera einfalt, og auðskilið og ódýrt í
framkvæmd og þar með að verða til
þess að auka virðingu manna fyrir
og traust á skattkerfinu og koma í
veg fyrir skjóttekinn gróða í formi
skattsvika á kostnað samfélags-
ins.“
— Brask með fasteignir er nokk-
uð sem þjóðin hefur þurft að horfa
uppá í áratugi. Er meiningin að
reyna að sporna á einhvern hátt við
fótum þar?
„Það er ekkert að finna í mál-
efnasamningi ríkisstjórnarinnar
sem kveður á um ríkiseftirlit með
fasteignasölum sem slíkum.“
— Nú hefur öll verslun, hverju
nafnisem hún nefnist, verið heilagt
mál í allri umrœðu um peningahag-
stjórn á íslandi. Er ekki kominn
tími til að fara ofan í saumana á
þeim málaflokki í heild þannig að
það liggi sannanlega fyrir hverju
verslunin skilar bœði þjóðarbúi og
einstaklingum?
„Yfirstjórn þeirra mála sem
varða innlenda verslun og viðskipti
eru í viðskiptaráðuneytinu og þar
með talið eftirlit með verðmyndun
og verðlagi. Það hefur vakið athygli
á þeim samanburðarkönnunum
sem hafa verið gerðar á innflutn-
ingsverðlagi, annars vegar til ann-
arra landa eins og Noregs — í Berg-
en — og hins vegar til íslands. Og
þessar kannanir benda til þess að
verðlag hér sér óeðlilega hátt. Það
mun verða hlutverk opinberra
stjórnvalda að stuðla að lægra
vöruverði. Það á samkvæmt stjórn-
arsáttmála fyrst og fremst að gerast
með því móti að framfylgja svona
samanburðarkönnunum reglulega
og beita aðhaldi almenningsálits og
bæta verðskyn. Ef að hins vegar
þessar kannanir leiða til einhverra
óeðlilegra hluta þá kalla þeir auð-
vitað á aðgerðir eftir því sem að þar
gefur tilefni til.“
Talað um söluskattssvik
og undanþágufargan —
upphæðir sem skipta
milljónum —
undanþágur og óbeina
niðurgreiðslu —
sviptingu verslunarleyfis
— greiðslur til þeirra sem
þurfandi eru — auknar
barnabœtur — um flata
og einfalda prósentu —
andstöðu Sjálfstœðis-
flokks gagnvart stór-
eignaskatti og um
óeðlilega hátt verðlag á
vörum á Islandi.
— Nú er að heyra á hinum al-
mennu borgurum að þeim lítist illa
áaukinn söluskatt á matvöru. Kem-
ur það til með að hafa áhrif á fyrir-
hugaða ákvörðun fjármálaráð-
herra í því máli?
„Nei, það iiggur ákveðin hug-
mynd þarna að baki, sem sagt sú að
lækka, þegar til lengdar lætur, sölu-
skattinn í heild sinni og útrýma
söluskattsundandrætti, söluskatts-
svikum og undanþágum. Og hér er
um að ræða upphæðir sem skiptir
mörgum milljónum.
Þessi afstaða fólks á móti skatt-
lagningu á matvælum, hún er
ósköp skiljanleg, en hún breytist oft
þegar fólk fer að hugsa málið betur.
Viðskipti með matvæli er uppá 22
milljarða króna og það hefur verið
lagður skattur á þriðjung af þessum
viðskiptum. En tveir þriðju, mjólk-
in, fiskurinn, kjötið, grænmetið og
ávextirnir eru undanþegnir, eða
þær vörur sem eru uppistaðan í
matvælainnkaupum fólksins. Hitt
er auðvitað í mörgum tilvikum inn-
flutt matvæli og ef menn vilja kalla
það svo, — lúxusmatvæli. Undan-
þága frá skatti er auðvitað óbein
niðurgreiðsla. Hún breytir neyslu-
venjum, hún breytir samkeppnisað-
stöðu og hvaða rök eru fyrir því að
ríkið eigi að taka sér það vald að
ætla að styðja einn en útiloka ann-
an, ýta undir einn en letja annan,
styrkja einn en refsa öðrum við
matvælaf ramleiðslu?
Æskilegast væri, enda höfum við
boðað það í tvö og hálft ár að af-
nema allar undanþágur, hverju
nafni sem þær nefnast og að skatt-
urinn sé eitt prósentustig, lagður á
alla vöru og alla þjónustu, sem þýð-
ir að það er einfalt verk og auðvelt
að fylgja honum eftir, — uppræta
undandráttinn og taka upp viður-
lög ef verslanir svindla og þá er
ósköp einfaldlega hægt að svipta
menn verslunarleyfi eða loka búð-
inni. En nota hins vegar auknar
tekjur til þess þá að mæta tekju-
jöfnunaráhrifunum með því að
greiða beint út til þeirra sem þurf-
andi eru.
En ég vil taka fram í sambandi
við þennan sérstaka söluskatt, þ. e.
verðlagsáhrifunum af honum sem
er eitt og hálft prósent, að þau verð-
hækkunaráhrif hafa þegar verið
bætt með útborgun 200 milljóna til
„Reglan er einfaldlega þessi: Þeim mun hærri tekjur, þeim mun hærri skattur," segir Jón Baldvin Hannibalsson
fjármálaráöherra.
þess að hækka lágmarkslífeyri ann-
ars vegar upp í 28000,00 úr 25000,00
og hins vegar með því að verja 100
milljónum króna í barnabótaauka
sem kemur þá fyrst og fremst barn-
mörgum fjölskyldum sem hafa háa
matarreikninga að notum.“
— Fjölmargt lágtekjufólk, eða
fólk sem hefur orðið að taka á sig
mikla yfirvinnu til þess eins að eign-
ast þak yfir höfuðið, hefur verið
skattlagt mjög grimmilega. Finnst
fjármálaráðherra þetta eðlilegt
ástand?
„Það er til gömul hugmynd um
réttlæti í tekjuskatti: Þeim mun
hærri sem tekjurnar verða, þeim
mun meira eigi viðkomandi að
greiða í skatt. Þess vegna var skatt-
urinn þrepaður. Þess vegna var
hærri jaðarskattur geiddur af hærri
tekjum. Launþegar sem eru að
leggja út í gífurlega fjárfestingu við
kaup á húsnæði og hafa tekið á sig
miklar skuldbindingar, brugðust
gjarna við með þeim hætti að vinna
meira, — taka að sér aukavinnu,
þeir hækkuðu í tekjum og borguðu
hærri skatta. Hugmyndin um þrep í
tekjuskatti byggist ekki á því til
Jón Baldvin Hannibalsson, fjármálaráðherra:
„FORGANGSVERKEFNIÐ
ER RÉTTLÁTARA
SKATTAKERFI"