Alþýðublaðið - 01.08.1987, Side 18
18
Laugardagur1. ágúst 1987
Stjóm FHI. Aftari röðt.v. Hallur Kristvinsson, Kristln Sætran, OddgeirÞórðarson. Fremri röð t.v. Ellsabet V. Ingvars
dóttir, ÞórdisZoega, Heiða Elln Jóhannsdóttir. Ljósmynd/Bjarni Eirlksson.
Húsgagna- og innanhúss-
hönnuðir lögverndaðir
Aðalfundur Félags húsgagna- og
innanhússarkitekta var haldinn fyr-
ir skömmu. Á fundinum var kjörin
ný stjórn félagsins og skipa hana,
Þórdís Zoega formaður, Heiða Elín
Johannsdóttir gjaldkeri og Elísabet
V. Ingvarsdóttir ritari. í varastjórn
eru Hallur Kristvinsson, Kristín
Sætran og Oddgeir Þórðarson.
Félagsmenn í Félagi húsgagna-
og innahússarkitekta eru nú 59 tals-
ins og fjölgaði um tvo á árinu.
Félagið var stofnað árið 1956 og
er því liðlega 30 ára gamalt. Á aðal-
fundinum var ákveðið að láta skrifa
sögu félagsins sem samhliða yrði
úttekt á hlut félagsmanna í hönnun
húsgagna og innréttinga á tímabil-
inu.
Þann 30. apríl 1986 voru sam-
þykkt lög á Alþingi um lögverndun
starfsheitis húsgagna og innanhúss-
hönnuður, sem hefur verið mikið
baráttumál félagsins um árabil.
Ákveðið hefur verið að gera tæm-
andi félagaskrá, með nöfnum allra
þeirra sem hafa fengið lögverndun
starfsheitisins, en það eru allir fé-
lagsmenn FHI.
c§3Húsnæðisstofnun ríkisins
TÆKNIDEILD
Simi 696900
ÚTBOÐ
Blönduóshreppur
Stjórn verkamannabústaða Blönduóshrepps,
óskar eftir tilboðum i byggingu tveggja íbúða í
parhúsi, byggðu úr steinsteypu. Verk nr. U 20.05 úr
teikningasafni tæknideildar Húsnæðisstofnunar
ríkisins.
Brúttóflatarmál húss 194 m2
Brúttórúmmál húss 695 m3
Húsið verður byggt við götuna Mýrarbraut
26—28, Blönduósi og skal skila fullfrágengnu,
sbr útboðsgögn.
Afhending útboðsgagna er á sveitastjórnarskrif-
stofu Blönduóshrepps Hnjúkabyggð 33, 540
Blönduós, og hjátæknideild Húsnæðisstofnunar
ríkisins frá fimmtudeginum 6. ágúst 1987 gegn kr.
5.000,-skilatryggingu.Tilboðum skal skilaásömu
staði eigi síðar en föstudaginn 21. ágúst 1987 kl.
11.00 og verða þau opnuð að viðstöddum
bjóðendum.
F.h. stjórnar verkamannabústaða
Tæknideild Húsnæðismálastofnunar ríkisins
^Húsnæðisstofnun ríkisins
Börn í beltum fá
viðurkenningu
Umferðarráö og lögreglan um
alit land veita nú þeim börnum er
sitja í bílbeltum eða barnabílstól
viðurkenningu. Er þetta starf þegar
hafið og verður unnið að því um
verslunarmannahelgina og næstu
daga þar á eftir.
Um er að ræða lítinn glaðning,
kort með ferðaleikjum og hollráð-
um, og poka með nokkrum góm-
sætum harðfiskbitum í, sem Tann-
verndarráð lagði sérstaklega til í
þessu skyni. Er með því verið að
Íeggja áherslu á ágæti harðfisks fyr-
ir tennur. Þá fylgir og límmerki
með lögreglustjörnu sem jafnframt
er happdrættismiði, og er það
íþróttasamband lögreglumanna
sem stendur fyrir því happdrætti.
Umferðarráð væntir þess að sem
flestir foreldrar setji öryggisbúnað
fyrir börn í bíla sína, og láti þau
nota hann. Ekki aðeins til þess að
þau fái viðurkenningu, heldur
miklu heldur til að auka öryggi
þeirra í bílnum. „Börn í bílum
þurfa vörn.“ Og vert er að minna á
að þörf fyrir notkun öryggisbúnað-
ar, fyrir börn og fullorðna í bílum,
er ætíð fyrir hendi — óháð árstím-
um.
við blindhæðir og brýr.
GÓÐAFERÐ!
Blaðamann
vantar íbúð
Blaðamaöur á Alþýðublaðinu, óskar eftir
íbúð á góðum stað í Reykjavík sem fyrst.
Snyrtimennsku og skilvísi heitið. Vinnusími:
68-18-66. Heimasími: 2-65-36.
Elínborg K.
St. Jósefsspítali
Landakoti
Laus staða
Aöstaöa sérfræðings í barnalækningum viö
barnadeild Landakostsspítalaer laus til umsókn-
ar frá 1. janúar 1988. Umsóknarfrestur er til 31.
ágúst 1987.
Frekari upplýsingar veitir yfirlæknir barnadeildar
í síma 19600.
Reykjavlk 31.07.1987.
Framkvæmdastjóri.
Frá menntamálaráðuneytinu:
Lausar stöður við framhaldsskóla:
Viö Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki eru lausar stöður
kennara I þýsku og stæröfræði.
Viö Menntaskólann á Egilsstöðum er laus staða kennara I
stærðfræði.
Við Fjölbrautaskólann á Selfossi er laus staða kennara I raf-
iönaöargreinum.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykja-
vlk fyrir 10. ágúst n.k.
Menntamálaráðuneytið
Útboð
Óskað er eftir tilboðum I smíði húss fyrir sýslu-
skrifstofu, lögreglustöð og bókabúð að Suður-
götu 1, Sauðárkróki, fuilfrágengiö að utan og ein-
angraö þak. Útboðsgögn veröa afhent gegn 5.000
kr. skilatryggingu á teiknistofu Árna Ragnarsson-
ar, Aðalgötu 14, Sauðárkróki og hjá Innkaupa-
stofnun ríkisins, Borgartúni 7, Reykjavík.
Tilboóum skal skilað á teiknistofu Árna Ragnars-
sonar, Aðalgötu 14, Sauðárkróki, í lokuðu
umslagi, merktu „Suðurgata 1 — tilboð" eigi síð-
aren kl. 11 þann 14. ágúst n.k. Þar veröa tilboðin
þá opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess
óska.
Byggingarnefnd hússins.
Verkakvennafélagið Framsókn
minnir á ferðalagið 8. ágúst.
Ferðanefnd
Útboð
Styrking í Mjóafirði 1987
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofan-
greint verk.
Lengd vegarkafla 6,0 km, neðra burðarlag
11.000 m3, skurðir og rásir 500 m og malarslitlag
2.400 m3.
Verki skal lokið 20. október 1987.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð rlkisins á
ísafirði og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með
4. ágúst n.k.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00
þann 17. ágúst 1987.
Vegamálastjóri