Alþýðublaðið - 03.10.1987, Blaðsíða 3
Laugardagur 3. október 1987
3
Ölfusborgir:
Skólinn að byrja
Ferdaskrifstofa FÍB
verður framvegis rekin á veg-
um Samvinnuferða-Landsýn-
ar, sem gerst hefur hluthafi. í
frétt frá FÍB segir að rekstur
ferðaskrifstofunnar hafi und-
anfarin ár staðið í járnum og
hafi þótt sýnt að gera yrði
átak til að koma rekstri henn-
ar á breiðari grundvöll.
Samvinnuferðir-Landsýn
munu framvegis annast
reksturinn í náinni samvinnu
viö FÍB.
Bolvíkingafélagið
( Reykjavík heldur hinn árlega
kaffidag sinn í Domus
Medica við Egilsgötu á morg-
un, sunnudag 4. október kl.
15—18.
Veitingahúsið
Hrafninn
verður rekið með öðrum
hætti í vetur en verið hefur,
að þvf er segir í fréttatilkynn-
ingu sem blaðinu hefur bor-
ist. Tónlistin verður látin sitja
í fyrirrúmi og lofa aðstand-
endur sveitaballsstemmingu
á neðri hæðinni á föstudög-
um og laugardögum. Á
mánudögum og þriðjudögum
verða „tönlistaruppákomur"
og á fimmtudögum og
sunnudögum spilar „bandið
hennar Helgu“.
Fyrirlestrar
Geöhjálpar
Geðhjálp gengst í vetur fyrir
fyrirlestrahaldi á Geðdeild
Landspltalans. Fyrirlestrar
þessir verða haldnir á
fimmtudagskvöldum einu
sinni í mánuði, og hefjast kl.
20.30. Sá fyrsti verður
fimmtudagskvöldið 22. októ-
ber og þá fjallar Sigrún Júll-
usdóttir fjölskyIduráðgjafi
um skilnað.
Nú er komið að því. Vetrar-
starf Félagsmálaskóla alþýðu
er að hefjast. Um sextlu þús-
und félagsmenn stéttarfélag-
anna í ASÍ eiga rétt á skóla-
vist. Og einnig félagsmanna í
Sjálfsbjörgu.
Hver námsönn er hálfur mán-
uður. í skólanum öðlast
menn þekkingu á hagsmuna-
málum verkafólks. Undir það
falla kjaramál, samningagerð,
félags- og fundarstörf, fram-
koma i sjónvarpi, greinaskrif,
vinnuréttur og hagfræði, svo
að nokkuð sé nefnt.
Skólinn er vettvangur
skoðanaskipta um markmið
og leiðir í baráttu verkafólks
fyrir bættum hag. Á dagskrá
skólans eru líka menningar-
og skemmtikvöld, auk heim-
sókna í fyrirtæki og stofnan-
ir.
Námsönn hefst 11. október
og ætti áhugafólk að drlfa
sig í opinn skóla, sem er laus
við próf og stress.
Allarfrekari upplýsingar eru
gefnar á skrifstofu Menning-
ar- og fræðslusambands al-
þýðu, Grensásvegi 16, 108
Reykjavík.
Áth. Ferðir, vinnutap og
skólagjöld greiðir verkalýðs-
félag hlutaðeigandi þátttak-
anda oftast nær.
Lára V. Júliusdóttir leiðbeinir I
þátttakendum í Félagsmálaskóla j
alþýðu í vinnurétti.
Lyfjamál
verða til athugunar hjá nefnd
sem Guðmundur Bjarnason,
heilbrigðisráðherra hefur
skipað og á að gera úttekt á
álagningu og verðmyndun
lyfja, bera saman innkaups-
verð til íslands og annarra
landa, draga upp heildar-
mynd af fjármagnsstreymi í
þjóðfélaginu af þessum sök-
um og bera saman lyfjanotk-
un hér og erlendis svo nokk-
uð sé nefnt af öllu þvl sem
nefndin á að taka sér fyrir
hendur. Brynjólfur Sigurðs-
son, prófessor er formaður
nefndarinnar.
Kjörbók Landsbankans-Góð bók
fvrii' lijarta framtlð L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna