Alþýðublaðið - 03.10.1987, Síða 4
4
Laugardagur 3. október 1987
I saumastofu Hagkaups er þessa dagana veriö aö sauma upp efnislag-
erinn, þvi rekstri stofunnar veröur hætt í desember. A-mynd/Róbert.
Steingrímur flaug norður til friðarumleitana:
„Ekki nóg að stefna í
norður en fara suður“
— segir Stefán Valgeirsson.
A fimmtudagskvöld var
gerö tilraun til aö ná sam-
komulagi milli Framsóknar-
flokksins og Stefáns Val-
geirssonar og hans stuðn-
ingsmanna. Haldinn var sér-
stakur fundur á Akureyri þar
sem mættirvoru Steingrimur
Hermannsson formaöur
Framsóknarflokksins og Páll
Pétursson formaöur þing-
flokks, ásamt Stefáni og 10
stuðningsmönnum.
„Viö lögðum fyrir þá nokk-
urs konar úttekt á stjórnar-
sáttmála núverandi ríkis-
stjórnar, sem við erum mjög
ósátt meö,“ sagöi Stefán í
samtali viö Alþýöublaöiö í
gær. „Það var því engin nið-
urstaða önnur en sú að halda
áfram að ræða rnálin."
Strax eftir kosningar í vor
buöu framsóknarmenn
Stefáni inngöngu i þingflokk-
Fataiðnaður í andaslitrunum?
— Saumastofur draga saman seglin eða hætta rekstri.
Karnabær hefur sagt upp
öllu starfsfólki sínu á sauma-
stofu, um 50 manns. Aö sögn
Gudlaugs Bergmann for-
stjóra Karnabæjar á ekki aö
hætta rekstri, heldur breyta
til og endurskipuleggja. Fleiri
saumastofur hafa dregið
saman rekstur aö undanförnu
og nokkrar hafa hætt rekstri.
Þannig hefur fyrirtækiö Dúk-
ur hætt, og saumastofa Hag-
kaups hættir rekstri í desem-
ber. Ennfremur er Alþýöu-
blaðinu kunnugt um að
Henson muni draga verulega
saman seglin á næstunni.
„Þetta er aóför á stærsta
mælikvarða sem hægt er.
Það er verið að þakka okkur
Kröfur Alþýðusambands Austurlands
„Ræðum ekki rugl“
— M«ir Þór»rinn V. Þórarinsson
r pmt tavert
rn, «r tómt
rugf jM»*r menn eru að
raeða mm 40% «0* 70%
•rinn V. f«m-
stjóri VvmiMiI-
tali vfð Afþý
Alþý4
aði við Þórarinn hafði hann
enn ekki séð skriflegar
kröfur austanmanna, en
engu að síður heyrt um efni
þeirra í útvarpi. „Mér finnst
rugl ekki vera viðræðu-
grundvöllur, en það getur
vel verið að þeirséu tilbúnir
•ð ræða slíkt,“ sagði Þórar-
inn.
sérstaklega fyrir að hafa
reynt að gera það sem for-
ráðamenn báðu okkur um að
gera, að styrkja stoðir undir
islenskan iðnað," sagði Guð-
laugur Bergmann forstjóri
Karnabæjar í samtali við Al-
þýðublaðiö í gær.
Guðlaugur Bergmann segir
reyndar að erfiðleikar í ís-
lenskum fataiðnaði sé gömul
lumma. „Það er eiginlega
orðið spurning hvers vegna
menn standi í þessu og öðr-
um iðnaði. Eigum við ekki
bara að vona að fiskurinn
bregðist ekki, halda áfram að
kaupa bila, farsíma og tele-
faxa. Njóta lífsins meðan
gullið endist og hafa gam-
an?“
í vor tók Hagkaup ákvörð-
un um að hætta rekstri
saumastofu í desember.
Starfsfólki var boðið störf
annars staðar í fyrirtækinu.
Að sögn Jóns Ásbergssonar
forstjóra er ákveðið að hætta
vegna þess að reksturinn er
óhagkvæmun.
iur H«rmannsson:
„Vil vinstri stjórn næst“
„Mjög mikill misskilningur
hefur leiðrést milli Alþýðu-
flokks og Framsóknar. Ég
fagna því. Ég tel aö grund-
vallarstefnur flokkanna séu
mjög skyldar, og að þeir eigi
þess vegna að geta vel unnið
saman,“ segir Steingrímur
Hermannsson í viðtali við
Alþýðublaðið. Steingrímur vill
að mynduð verði vinstri
stjórn, fari svo að ríkisstjórn-
in sitji ekki út kjörtímabilið.
Hann telur hins vegar mikil-
vægt að stjórnin sitji áfram
vegna þess stöðugleika sem
hún myndar í þjóðfélaginu.
Að mati utanrlkisráðherra
kemur ekki til greina að ís-
land sitji hjá við afgreiðslu
tillögu Mexíkana og Svía hjá
Sameinuðu þjóðunum um
fryctingu kjarnorkuvopna. í
fyrra sat ísland hjá við af-
greiðslu málsins.
Steingrimur segist fylgj-
andi því að hækka skatta til
að standa undir ýmsum vel-
ferðarmálum og þurrka út
fjárlagahallann. Island hefur
ekki staðið við skuldbinding-
ar sínar um framlög til þróun-
arlanda, þrátt fyrir yfirlýsing-
ar Alþingis um að stefna að
auknum framlögum. Um
þetta segir Steingrímur:
„Annað hvort eigum við að
hætta þessu eða reyna að
gera þetta sæmilega myndar-
lega.“ Segist utanrikisráð-
herra tilbúinn að leggja málið
í dóm þjóðarinnar með þjóð-
aratkvæðagreiðslu. „Er þjóð-
in tilbúin að leggja á sig
hækkun söluskatts til þess
að aðstoða þessi lönd. Ég er
meðmæltur þessari hækk-
un.“
Steingrímur segist hafa
rætt við Gorbatsjoff um
mannréttindamál, og hafi
hann sagt að fleiri föngum
yrði sleppt. Þá yrði ferðafrels-
ið meira í Sovét en í Banda-
ríkjunum. Utanríkisráðherra
telur afskipti Bandarikja-
manna í Mið-Ameríku ákaf-
lega varasöm. „Það er mín
persónulega skoðun, að með
afskiptum sínum eru Banda-
ríkjamenn að ýta þjóðum út í
kommúnisma eins og í Níg-
aragva,“ segir Steingrimur
Hermannsson. Lesið viðtalið
i heild sinni á 20. siðu í Al-
þýðublaðinu i dag.
inn. Að sögn Stefáns var það
bréflegt boð, sem hann og
hans stuðningsménn svör-
uðu með sama hætti. Ákveð-
ið var að halda fund fyrir 9.
ágúst„áður en göngur og
réttir áttu að hefjast. Af þess-
um fundi gat ekki orðið fyrr
en nú,“ sagði Stefán.
Stefánsmenn munu aðal-
lega ósáttir við byggðapólitík
ríkisstjórnar Þorsteins Páls-
sonar, og Stefán segir enn-
fremur að bæði Steingrímur
og Páll séu sammála þeirra
rökum. „Það kom fram að
þeir væru þessu sammála, en
erfitt um umbæturvegna
stjórnarsamstarfsins.“
Eftir fundinn sátu Stefáns-
menn eftir og ræddu þær
hugmyndir sem fram komu.
„Það er ekki búið að ræða
þessi mál í botn og því erfitt
að segja til um framhaldið,
en ef það á að standa við
óbreyttan stjórnarsáttmála þá
sé ég ekki hvernig hægt er
að ætlast til þess að nokkur
landsbyggðarmaður styðji
slíkt,“ sagði Stefán, en hins
vegar elur hann þá ósk.í
brjósti að ekki verði staðið
við ýmis gefin loforð stjórnar-
sáttmálans. „Til dæmis ef
horfið verður frá sölu ríkis-
banka og látið af sjóðarugli
og umfram allt ef staðið verð-
ur við jöfnun aðstöðu. — Það
er ekki nóg að stefna í norð-
ur en fara í suður,“ sagði
Stefán.
Á sáttafundinum mun ekki
hafa komið til tals að Stefán
tæki sæti í ríkisstjórn. Að
sögn Stefáns var heldur ekki
rætt um samstarf eftir næstu
kosningar.
Islenskir bakarar:
Odýrt hráefni
en dýr brauð
Brauð virðast talsvert
dýrari á íslandi en efni
standa til miðað við hrá-
efnisverð. Algeng hráefni
til baksturs svo sem sykur
og hveiti reyndust veruleg-
um mun ódýrari á ísiandi
en í Danmörku eða Sví-
þjóð, í könnun sem Al-
þýðublaðið hefur látið
gera, en brauðin sem bök-
uð eru úr þessu ódýra hrá-
efni eru hins vegar á svip-
uðu verði og brauð í Sví-
þjóð. I Danmörku eru
brauð hins vegar mun
ódýrari.
Verðkönnun okkar, birt-
ist á siðu 14 í blaðinu,
sýnir að hveiti og sykur
eru ódýrari á íslandi en í
Skandinavíu. En hvers
vegna eru brauð á íslandi
ekki miklu ódýrari? Er ekki
hveiti stór hluti hráefnis-
kostnaðar?
Höröur Kristinsson, bak-
arameistari i Austurveri i
Reykjavík varð fyrir svör-
um: „Jú, ef hveiti og sykur
eru ódýrari en í Norður-
löndum eiga brauðin að
vera lægri hér. Hins vegar
er ýmiss konar kostnaður,
rafmagn, vinnulaun o.fl. og
ýmiss önnur efni eru í
brauðinu. Við handverks-
bakarar getum alls ekki
keppt við stóru verk-
smiðjubakariin, Mjólkur-
samsölunaog Mylluna.
Þeir ættu að vera lægri í
verði. Við höfum aðeins
eitt svar — það er að
bæta gæðin.“
Staðfestir hærra verð
— segir formaður Neytendasamtakanna
um verðkönnun Alþýðublaðsins
„Þetta er ákaflega þarft
framtak. Könnunin stað-
festir það sem Neytenda-
samtökin hafa sagt, að
vöruverð á íslandi er
hærra en í nágrannalönd-
unum,“ sagði Jóhannes
Gunnarsson, formaöur
Neytendasamtakanna, er
hann var inntur álits á
samanburðarkönnun okk-
ar sem birtist á 14. síðu
blaðsins í dag.
í fyrsta sinni á íslandi
er verð borið saman á
„neyslukörfu." Allir neyt-
endur kannast við vörurn-
ar. Dæmigerð verslun fjöl-
skyldu hér á landi.
„Þessi könnun ykkar
kallar fram margar spurn-
ingar. Það er gott fyrir ís-
lenska neytendur að sjá
samanburðinn. Það má
spyrja sig hvers vegna
Mikligarður er 22% dýrari
en sambærilegur markað-
ur í Sviþjóð. OBS-verslun-
in sem er í úrtaki ykkar í
Stokkhólmi er í samvinnu-
félagskeðjunni eins og
Mikligarður hér.“
Athygli vekur m.a. að
hveiti og sykur séu miklu
ódýrari á Islandi en í
Skandinavíu.
„Ég held að skýringin
liggi að einhverju leyti í
því að við njótum heims-
markaðsverð, sem er nið-
urgreitt. Skandinavar selja
líklega hveitið á kostnað-
arverði hjá sér,“ sagði
Jóhannes.
f»
:Jc----- tí.t. ^ ______