Alþýðublaðið - 24.10.1987, Qupperneq 10
10
Laugardagur 24. október 1987
MnNBUDII
Sími: 681866
Útgefandi: Blaö hf.
Ritstjóri:
Ritstjórnarf ulltrúi:
Blaðamenn:
Umsjónarmaður
helgarblaös:
Ingólfur Margeirsson.
Jón Daníelsson.
Ingibjörg Árnadóttir, Kristján Þorvaldsson og
Sigríður Þrúður Stefánsdóttir.
Þorlákur Helgason.
Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson.
Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir, Eva Guðmundsdóttir,
Þórdís Þórisdóttir, Olöf Heiður Þorsteinsdóttir
og Guðlaugur Tryggvi Karlsson.
Setning og umbrot:
Prentun:
Filmur og prent, Ármúla 38.
Blaðaprent hf., Siðumúla 12.
Áskriftarsíminn er 681866.
Áskriftargjald 600 kr. á mánuði. í lausasölu 50 kr. eintakið virka daga,
60 kr. um helgar.
Hlutverk Sameinuðu
þjóðanna
DagurSameinuðu þjóðannaerí dag. Sameinuðu þjóðirn-
arvoru stofnaðar þ. 24. október 1945. Þau voru stofnuð eft-
ir mannskæðasta stríð sögunnar, en varlega áætlað lét-
ust um 30 milljónir manna í síðari heimsstyrjöldinni. Leið-
togar þjóðianda um heim allan ákváðu að styrjöldinni lok-
inni, að slíkur harmleikur skyildi ekki endurtakasig. Þann-
ig kviknaði hugmyndin að stofnun samtaka um alþjóða-
samvinnu. í upphafi stofnskrár hinna nýju samtaka komu
fram vonir þeirraog markmið: Að frelsakomandi kynslóðir
frá ógnum styrjalda, að staðfesta trúna á grundvallar-
mannréttindi, á mannvirðingu og manngildi, á jafnrétti
karla og kvenna og á jafnrétti þjóðanna, smárra sem
stórra. í stofnskránni er einnig staðfest, að skapa beri að-
stæður þar sem réttlæti og virðing ríkja gagnvart þeim
skyldum sem eiga rætur að rekja til sáttmála og annarra
samninga um þjóðarrétti. Þá kveður stofnsamningurinn á
um að Sameinuðu þjóðirnar eigi að beita sér fyrir félags-
legum framförum og bættum lífskjörum samfara auknu
frelsi.
Númá spyrja hvernig SÞ hafi starfað í anda stofnsamn-
ingsins undanfarin 42 ár, því að sjálfsögðu linnti ekki deil-
um, erjum og stríðum þótt SÞ hefðu verið stofnaðar. SÞ
hafa lagt fram fjölmargar tillögur til lausnar deilum en
samtökin geta ekki þvingað deiluaðila til að fara eftir
þeim, þvi auðvitað eru SÞ ekki heimsstjórn. Aðildarríkiri
eru fullvaldaríki og því aðeinseru SÞstarfshæfarað þessi
ríki starfi saman. Þetta samstarf byggist á sex höfuðþátt-
um: Allsherjarþinginu, þar sem fulltrúar allra aðildarríkja
eiga sæti, Öryggisráðinu, sem er eins konar miðstjórnar-
vald til varðveislu heimsfriðar og Öryggis, Efnahags- og
Félagsmálaráðinu, sem 54 ríki eiga aðild að starfar á veg-
um Allsherjarþingsins, Gæsluhernaðarráðinu, sem gætir
hagsmuna landssvæða undir erlendri stjófn, Alþjóða-
dómsstólnum, sem 15 dómarar skipa og sem Allsherjar-
þingið og Öryggisráðið velja í sameiningu, og starfslið
samtakanna, sem telur um 16 þúsund manns á 160 stöð-
um í veröldinni.
Við stofnun SÞ 1945 voru stofnríkin 51. ísland gerðist að-
ili að SÞ árið eftir, eða 1946. í dag eru 159 þjóðríki aðilar að
SÞ. Enginn efast um háleit markmið SÞ né um þann árang-
ur sem samtökin hafa sýnt á sviði friðar, öryggis, félags-
uppbyggingarog annarraframfaramála. Margir hafagagn-
rýnt SÞ fyrirað veraskriftstofubákn og pappírsverksmiðju
sem lítil eða engin (tök hefur í heiminum þegar á reynir.
Neitunarvaldi hefur ennfremur verið óspart beitt á Alls-
herjarþinginu, einkum af hálfu Sovétmanna og ýmis
þjóðþrifamál verið stöðvuð á þann hátt. Þrátt fyrir þessar-
ar gagnrýnisraddir efast enginn um hið gífurlega gildi SÞ
og þau hafa löngu sannað tilverurétt sinn, bæði með
lausnum áerfiðum alþjóðadeilum og vaxandi verkefnum
ýmissa stofnana sem SÞ hafa komið á fót. Síðast en ekki
síst eru SÞgífurleguröryggisventill I heimi kjarnorkuógna
og hringiðu breyttra tíma þar sem gjáin milli auðugra, iðn-
væddra landa og þróunarlandanna er stöðugt að breikka.
Nýjar framfarir og breytingar á atvinnuháttum, samgöng-
um og fjarskiptum auk tækninýjunga ( hernaði og geim-
vísindum, geta kallað á aukna spennu og átök. Hlutverk
SÞ hefur þvi aldrei verið stærra en ( dag.
ÖNNUR SJÓNARMIÐ
Alpýðnblaðið
e«u « mt
Ottó N. Þorláksson
tók sér fari im*ð togara til Eng-
lands núna fyrir helgina.
mm ntjaibio bh
„Wienerblod“.
Ljómandi fallegur sjónleikur
i 6 páttum, gerður eftir hinnl
alþektu „Operettu" með sama
nafni.
Aðalhlutverk leika:
Liane Haid,
Oscar Marion o. fi.
Mynd pessi gerist i Wien og
Dónár fftgru héruðum. Efniö
er fjörugt ástareefintýri oin*
og kunnugt er eftir opwett-
unni. Myndin er.mjög skemti-
leg og iramúrskarandi að
öllum frágangi.
t síðasta sinn.
tjjriir
ármm
SVERRIR Hermannsson
fyrrum ráðherra og prúð-
menni, setti fram sjónarmiö
sin í gær á síðum Tímans um
fyrirhugaða lækkun á fram-
lögum ríkisins til Þjóðarbók-
hlöðunnar. Sverrir er nú kom-
inn í eins konar dýrlingatölu
hjá menningarmafíunni fyrir
að framkvæma allt milli him-
ins og jarðar á ráðherratíma
sínum í menntamálaráðu-
neytinu. Hins vegar mun
hann ekki vera i sömu dýrl-
ingatölunni uppi í fjármála-
ráðuneyti þar sem menn hafa
þurft að borga reikningana
fyrir vinsældir hans hjá
kúltúrliðinu. En hvað um það.
Sverrir er sár. Og hann segir
við Tímann af sinu alkunna
lítillæti og hógværð:
„Ég mun sækja þetta mál
af miklu offorsi, það er Ijóst.
Fólk er skattlagt og það
borgar með gleði í þetta
þjóðnauðsynlega fyrirtæki,
Þjóðarbókhlöðuna, og það
verður ekki liðið að svo komi
einhverjir rummungar og taki
það ófrjálsri hendi,“
Og áfram heldur ráðherr-
ann fyrrverandi:
„Þannig var að við gerðum
samkomulag um það í fyrra
að framkvæma ekki fyrir alla
peningana. Það var útaf fyrir
sig í lagi, enda mikil spenna í
byggingarmálum í Reykjavík.
En það var samkomulag um
að afgangurinn yrði borgaður
inn á sérreikning í Seðla-
banka íslands, þar sem pen-
ingarnir yrðu ávaxtatfir að
fullu og verðgildi þeirra héld-
ist að fullu.
Við þetta var ekki staðið
og mismunurinn var ekki
borgaður þar inn, eins og um
var samið,“ sagöi Sverrir.
Hann lagði á það áherslu að
eftir þessum peningum yrðu
nú gengið.
Ennfremur gengi það ekki
að ætia núna að fara að taka
einhverjar 125 milijónir
ófrjálsri hendi og láta þær
renna inn i ríkissjóðshít og
hafa það þar vaxtalaust. „Það
kemur ekki til nokkurra
greina að samkomulag geti
orðið um það,“ sagði Sverrir
Hermannsson.
„Það verður ekki liðið að
þær séu teknar ófrjálsri
hendi inn i ríkissjóðshítina."
Við spyrjum (fávisku
okkar: Hverjir búa til ríkis-
sjóðshít og hvernig? Og enn-
fremur: Hverjir eru að moka
flórinn eftir hvern?
NÝ og óvænt sjónarmið
koma fram hjá Svavari Gests-
syni fráfarandi formanni
Alþýðubandalagsins í síðasta
Helgarpósti. Þar er formaður-
inn fráfarandi í opnuviðtali og
fer víða. En einna athyglis-
verðast er þó að Svavar
Gestsson telur sig, Ásmund
Stefánsson og Ólaf Ragnar
vera gamla hákarla sem eigi
að rýma fyrir yngra fólki sem
hyggst starfa sem heiðarlegir
sósíalistar. Þetta er ekki
hægt að skilja á aðra lund,
en að umræddir heiðurs-
menn hafi ekki starfað sem
heiðarlegir sósíalistar. En
gefum Svavari orðið:
„Já, ég vil breyta um for-
ystu í flokknum. Ég vil skipta
um forystu þannig að þeir
sem hafa aðallega verið i
þessu andskotans innan-
flokksstreði verði aðeins til
baka á sviðinu og að nýtt og
yngra fólk fái að takast á við
hlutina.
Ég held að það væri bein-
linis léttir fyrir flokkinn ef
þessir hákarlar sem hafa ver-
ið þarna mjöjg framarlega,
eins og ég, Asmundur og
Ólafur Ragnar, rýma fyrir
nýju fólki sem vill bara starfa
sem hverjir aörir heiðarlegir
sósíalistar.
Mér finnst það mjög mikil
mistök af Ólafi Ragnari að
sækjast eftir formennsku við
þær aðstæður sem nú eru í
flokknum. Auðvitað getur
hann einhvern tíma orðið for-
maður flokksins, eins og hver
annar, en mér finnst að að-
stæðurnar kaili á það að við
reynum að skapa skilyrði fyr-
ir öðruvisi forystu en hefur
verið i flokknum á undanförn-
um árum.“
Á þá Svavar kannski við að
kandidat hans, Sigríður
Stefánsdóttir, sé smáfiskur?
er etttMbnrferilani
m IrifllelkaHan elna.
Menn geta fengið fallegan litar-
hátt og bjart hðrund án kostnað-
arsamra fegrunar-ráöstafana. Til'
pess parf ekki annaö en daglega
umönnun og svo aö nota hina dá-
samlega mýkjandi og hreinsandi
TATOL-EANDSAPU,
sem er búin til eítir forskrift
H'ederströms læknis. I henni eru
eingöngu mjðg vandaðar oliur,
svo að l raun og veru er sápan
alveg fyrirtakshörundsmeðal.
Vkoitt i hegningarhúslnu.
Rannsókn á vinbirgðum jreim,
sem fluttar hafa verið i hegningar-
húHið, er nú lokið. Hafa |>eir
Friíx diiðmnndísön og Pétur
Zóhpóniaáion unnið að hcnni i
vííth og haft Iftgreglu Off starfs-
tnenn frá ' áfengisverzluninrti tll
adstoðar. Reyndust hifgfflrilar vera
mlklnr af whiskyi og- Jionf-
hki. Það, seöt 'sérstaklegá er at-
hugavert, er pað. aö ehgdk skýrsJUr
voru áður til um vinhirgðir pessar
og engin úttekt á peim hafði
fyrr farið fram. Íhaldssljómia lét
hirgðirnar vera órannsakaðar.
•
Splkþrndðnr
rlftptur.
Tekið á móti pöntunum.
Klein,
Frakkastig 16. Simi 73.
Sklpafréttir.
t gær kom fisktökuskip, „Ing-
tmn“, til Coplands, slúp með bygg-
ingarefni, eðatlega mftrstein, til
frystihássbyggingarinnar sænsku,
timburskip til „Vöhindar" og i
morgun kolaskip til .Alliance" og
„Kveldálfs". — „Aiexandrína
drottrang" fer kl. 6 atmað kvöld i
Akureyrarfðr..
Samakotia tlí fátseku ekkj-
unnar.
Frá Gunnu kr. 5,00,
Heillrlit, bjart hðnuð