Alþýðublaðið - 09.04.1988, Blaðsíða 18
18
Laugardagur 9. apríl 1988
Byrjað á öfugum enda: Ákveðið hvað íbúðirnar ættu að kosta áður en
framkvœmdir hófust.
FRAMTÍÐARLAUSN
Á HðSNÆÐISVANDA?
Sunnuhliðarsamtökin i Kópavogi reisa þjónustuíbúðir fyrir aldraða á nýstárlegan hátt.
Bankinn veigamikill milliliður. „Til fyrirmyndar(í segja íbúarnir. „Þjóðin verður að
endurskoða viðhorf sitt til lífslokanna, “ segir Ásgeir Jóhannesson einn frumkvöðla að
byggingunni. „Hœttulegt að gera ráð fyrir því að hið opinbera geti sinnt þessu“.
Þaö er ekki alvanalegt
aö áætlanir standist á Is-
landi þegar byggingar-
framkvæmdir eru annars
vegar. Og það veröur að
teljast í meira lagi óvana-
legt að fyrst sé ákveðið að
byggja hús á kostnaðar-
verði og það verð stand-
ist. Og enn verður dæmið
undarlegra, þegar við
fréttum af því að suður i
Kópavogi hefðu hugsjóna-
menn gengið skrefinu
lengra og gert eftirfarandi:
1) Ákveðið var að byggja
þjónustuibúðir fyrir
eldra fólk.
2) Næst var kannað
hverjir væri almennt
hagir þess fólks sem
er komið yfir sextugt.
Komist var að því að
meira en 9 af hverjum
10 íbúum þessa lands
búa í húsnæði sem er
að mestu eða aiveg
skuidlaust.
3) Þá spurðu menn sig
hvers virði er húsnæð-
ið sem fólkið býr í.
4) Þvi næst var ákveðið
að reisa hús með
íbúðum sem væru
ekki dýrari en svo aö
þetta eldra fólk gæti
flutt inn á öruggan
stað kysi það aö
breyta til. Vitað var að
fjöldi eldri borgara vill
minnka við sig og lifa
áhyggjulausu lífi hin
síðari ár. En það er
lika vitað að margir
kvíða ellinni.
Síðustu spurningunni sem
áhugamennirnir þurftu að
svara í þessari fyrstu lotu var:
Hvernig náum við þessu
marki þannig að fólk haldi
fullri reisn, og ekki sé verið
að íþyngja þjóðfélaginu:
Þetta er fyrsti kapítuli i
byggingarsögu þjónustu-
íbúða við Sunnuhlíð í Kópa-
vogi sem 10 félagasamtök
skrá. Það vakti mikla athygli
fyrir tæpum áratug, þegar 9
klúbbar og félagasamtök
ákváðu að reisa hjúkrunar-
heimili fyrir aldraða í Kópa-
vogi. Um 4000 heimili lögðu
til sem svaraði hálfu strætis-
vagnafargjaldi á dag, og
þannig var safnað í 2 ár. í maí
1982 var opnað hjúkrunar-
heimili fyrir 42 vistmenn, en
alls hafa nær 400 aldraðir
dvalið á heimilinu.
í kjölfar athugana árið 1985
um húsnæðismál eldra fólks
var næsta skref stigið. í Ijós
hafði komið að yfir 90%
fólks eldra en 60 ára býr í
skuldlausum eða skuldlitlum
íbúðum. Ásgeir Jóhannesson
sem mjög hefur beitt sér í
öldrunarmálunum í Kópavogi
segir að sömu samtök og
byggðu hjúkrunarheimilið
hafi ákveðið að byggja þjón-
ustuíbúðir fyrir eldra fólk og
miða kostnaðinn við
greiðslugetu þeirra sem áttu
(búðir fyrir.
Biðraðirnar
niðurlœgjandi
„Þar sem Ijóst var af könn-
un okkar að tíundi hver ein-
staklingur á þessum aldri á
ekki (búö“ segir Ásgeir „buð-
um við Kópavogskaupstað að
greiða götu þessa hóps, og (
fyrstunni standa undir kostn-
aði við nokkrar íbúðir í þess-
um byggingaráfanga. Við
töldum ekki hæfa að lífeyris-
þegar sem ekkert eiga fyrir
þurfi í hárri elli að skulda.
Hugmyndafræði okkar hefur
frá upphafi verið sú að eldri
borgarar veldu sjálfir stærð
íbúðar og ráðstöfuðu eignum
sínum og lífeyri sínum þann-
ig að umhverfið sæmdi hverj-
um og einum. Ef fólk kýs að
búa við öryggi og þjónustu
og ( vernduðu umhverfi, beri
að leita leiða til að fullnægja,
þeim óskum. Biðraðir eldra
fólks við félagsmálastofnanir
til að komast í húsaskjól og í
öryggi er niðurlægjandi.
Hugsaðu þér að maður skuli
þurfa að horfa upp á hið
mætasta fólk í örvæntingar-
fullri tilraun að fá hjálp sam-
félagsins." Og Ásgeir heldur
áfram: „Við sáum þegar bygg-
ingu hjúkrunarheimilisins var
lokið að þörfinni f samfélag-
inu var engan veginn full-
nægt. Það er svolítiö gaman
að rifja upp hvernig leiðin að
þessari tilraun okkar til
lausnar á húsnæðisvanda
aldraðra var rötuð. En það
þurfti að yfirvinna ýmsa
þröskulda. Og tillaga okkar
var heimasmíðuð, engin
reynsla fyrir, svo að það var
kannski ekki nema von að
aðilar sem leitað var til hafi
ekki kyngt öllu í fyrstunni."
Fyrst var ákveðið hvað
þœr mœttu kosta.
Þeir sem vildu byggja
íbúðir fyrir aldraða ákváðu
fyrst hvað íbúðirnar mættu
kosta. Allir voru sannfærðir
um aö mikill fjöldi vildi
breyta til, ef viðunandi lausn
fengist. Færa sig úr íbúðum
eða einbýli, sem hjá mörgum
var allt of stórt og krafðist
viðhalds sem fólk treysti sér
ekki til að standa undir.
íbúðirnar mættu ekki kosta
meira en venjulegur ibúðar-
eigandi gæti sómasamlega
ráðið við og forsenda væri að
lifeyrisþegar þyrftu ekki að
stefna sér í skuldir. Þess
vegna var lauslega áætlað
hvað Ibúðirnar mættu kosta
áður en lengra var haldið.
Ásgeir Jóhannesson segir að
það hafi kostað marga
klukkutíma fyrir hönnuði að
sjá hvort þaö tækist að
byggja ódýrar en sómasam-
legar íbúðir. Lausnin fannst
og í Kópavoginum byggja
þeir miklu ódýrar en aðrir
aðilar hafa gert í sambærileg-
um verkefnum fram að
þessu. Og það sem llka er
mikilvægt er að tímaáætlanir
Jóhann Arnason, framkvœmdastjóri
Sunnuhlíðar, staddur í miðrými húss-
ins. Iðnaðarmenn að störfum, en enn
er nokkuð ógert í tengiálmu hússins
og íþjónusturými. „Framkvœmdum
miðar vel, “ segir Jóhann.
hafa staðist. Hilmar Þór
Björnsson arkitekt, sem
hannaði húsið ásamt Gunn-
ari Torfasyni verkfræöingi,
segir að leitað hafi verið
leiða á ýmsa vegu til að ná
fram mikilli hagkvæmni.
Aðalverktaki hússins,
Byggðaverk, hafi I sumu tilliti
gengið skrefi framar en
hönnuður sáu fyrir og nefndi
Hilmar m.a. að verktaki hafi
getað notað mótin enn betur
en gert hafi verið ráð fyrir.
Húsið er allt einangrað að ut-
an og fyrir bragðið var hægt
að vinna jöfnum höndum
innanhúss og utan. Fleira
telur Hilmar að hafi haldið
kostnaði niðri. Jóhann Árna-
son framkvæmdastjóri
Sunnuhlíðar kvað viðhalds-
kostnað verða lítinn á húsinu
Ásgeir Jóhannesson: „Að maður
skuli þurfa að horfa upp á hið mœt-
asta fólk í örvœntingarfullri tilraun
til að fá hjálp samfélagsins. “
i framtíðinni. Notaðar eru
sérstakar plötur utanhúss og
innan sem ekki krefjast máln-
ingar og auðvelt sé að skipta
um þær. Fjármögnunin gerði
það líka að verkum að hægt
væri að halda uppi þeim
byggingarhraða sem best
hentar til verksins.
Fjámögnun
íbúar I Sunnuhlíð fjár-
magna Ibúðimar með þvl að
færa til eignir. Fólk sem á
íbúðir selur þær og eignast
íbúðarrétt I Sunnuhlíðinni.
Búnaðarbanki íslands i Kópa-
vogi er veigamikill hlekkur I
keðjunni. Eftir að fólk hefur
öðlast uppáskrift um íbúðar-
réttinn er andvirði íbúðarinn-
ar greitt til Búnaðarbankans
á 18 mánuðum (eða skemur).
Sunnuhlíðarsamtökin sem
eru eigendur íbúðanna
tryggja íbúum búsetu til ævi;
loka ef Ibúðarrétthafi óskar. í
stað afsals fyrir íbúðinni fær
íbúðarrétthafi I hendur
bankatryggingu frá Búnaðar-
bankanum, þar sem bankinn
ábyrgist að greiða fullt gang-
verð sambærilegra íbúða I
Kópavogi á hverjum tíma skv.
mati, ef íbúðarrétthafi óskar
eftir að flytja úr Ibúðinni —
eða greiða til erfingja við frá-
fall íbúa.
Kostnaður við að búa
í Sunnuhlíð.
íbúðarrétthafi greiðir ekki
húsaleigu, en greiðir þess I
stað I sameiginlegan hús-
sjóð, hita, rafmagn I sameign,
viðhald og annan húskostn-
að, en Sunnuhlíð sem hús-
eigandi ákveður og sér um
allt viðhald utan húss og inn-
an. Er það gert til að forðast
hugsanlegan ágreining milli
íbúa um viðhald og fleira.
Kostnaður við íbúðir er mis-
munandi. Um er að ræða 3
stærðir íbúða. Þær minnstu
sem eru 1 herbergi eru 49
fermetrar að stærð, 2 her-
bergja íbúðirnar eru 61 fer-
metri og 3 herbergja 81 fer-
metri. Nú er mánaðarkostn-
aður við stærstu íbúðirnar
um 9.600 krónur og þætti lík-
lega ekki mikið miðað við
þann kostnað sem Ibúðar-
eða íbúðarhúseigendur hafa
á hverju ári, þegar tekið er til-
lit til alls kostnaðar eins og
gert er I Sunnuhlíð, meira að
segja viðhalds húsnæðis.
Að byggja ódýrt
Augljóst er að jafn og eðli-
legur byggingarhraði — og
miklu skemmri en almennt
gengur og gerist á íslandi
hefur skilað áætluðu verki.
(búðirnar I Sunnuhlíð eru
ódýrar á almennum mæli-
kvarða. Lauslega áætlaö mið-
að við hækkun byggingarvísi-
tölu frá fyrstu verðáætlunum
I september 1986 til dagsins I
dag er verð íbúðanna:
1 herbergja: 2.9 milljónir
2 herbergja: 3.2 milljónir
3 herbergja: 3.7 milljónir
Er alls ekki ósennilegt að
þessar íbúðir með þeim kost-
um sem þær hafa séu 30-
50% ódýrari en aðrar sam-
bærilegar á fasteignamarkaði
I dag. Það er engum vafa
undirorpið að mjög vel hefur
tekist til um frágang og gerð-
ir íbúðanna. Þær eru vistleg-
ar I alla staði, rúmgóðar.
Enda kemur I Ijós I viðtölum
þeim sem birtast við íbúana
að á betra verði vart kosið í
húsnæðismálum.
Samtenging íbúða
og hjúkrunarheimilis
Innangengt er á milli hjúkr-
unarheimilisins sem reis
1982 og ibúðanna. Við ibúð-
irnar rís lika þjónustukjarni,
þar sem m.a. verður veitinga-
salur, aðstaða fyrir heimilis-
Myndin er af setustofu á efstu hæð. Útsýni tii allra átta.
Vistlegar íbúðir. Myndin ertekin í ibúð hjónanna Björns Jónssonarog
Mariu Hafliðadóttur