Alþýðublaðið - 09.04.1988, Side 19

Alþýðublaðið - 09.04.1988, Side 19
Laugardagur 9. apríl 1988 19 þjónustu, sjúkraþjálfun, hand- og fótsnyrtingu, heitur pottur, verslun og bókasafn. Varsla er I húsinu allan sólar- hringinn og hefur verið hann- að sérstakt símakerfi sem á að auðvelda öllum að komast beint í samband við bráða- þjónustu eða aðra þá aðila beri eitthvað óvænt að. Setu- stofur og krókar eru á hverri hæð, sumarskáli á jarðhæð og sérstakur fundarsalur á efstu hæð. Áhersla er lögð á að hjón eða einstaklingar geti sjálf tekið ákvörðun um búskapar- hætti og er búist við að í framtíðinni verði sifellt yngra fólk sem búi í sambærilegu húsnæði. í dag býr fólk sumt í hárri elli á þessum stað, sumireru að mestu sjálf- bjarga í öllu, elda heima hjá sér í öll mál, en aðrir fá send- an mat í gegnum eldhús hjúkrunarheimilisins. Eiga allir kost á því. íbúðirnar tengjast heimilis- og hjúkrun- arþjónustu Kópavogskaup- staðar. Fara samviskusamlega með fjármagn gamla fólksins „Lykillinn að öllu okkar starfi við að koma þessu á legg er að fara samviskusam- lega með peninga gamla fólksins," segir Ásgeir Jó- hannesson. „Við ætluðum okkur ekki að leita í sjóði til að gera fólki kleift að búa vel í ellinni. Ég hef líka komist að því að það er alls ekki á valdi hins opinbera að sinna þessum hópi sem hér býr. Það á að taka við þeim sem mest þurfa með í dag, og því verður hið opinbera að taka ávallt fremst úr biðröðinni. Það er beinlínis hættulegt að minu mati að gera ráð fyrir því að hið opinbera geti sinnt þessu. Það gengur ekki held- ur stjórnunarlega. Við förum betur með peningana, ef fé- lagasamtök fást til að sinna þessu. Og ef við erum með peninga gamla fólksins milli handanna förum við gætnar að. Við byrjuðum t.d. á öfug- um enda getum við sagt. Við byrjuðum að ákveða hvað íbúðirnar mættu kosta, og við vitum að við getum ekki komið með einhverja bak- reikninga til þessa fólks. Við ætlum okkur að standa við það sem við segjum og áætl- anir hafa staðist. Það er svo- litið undarlegt hversu fáir hafa veitt þessu framtaki eftirtekt. Hvers vegna höfum við t.d. getaö byggt ódýrar en aðrir? Er það ekki forvitni vert?“ „Þjóðin verður að endur- skoða viðhorf sitt til lífslok- anna. Það vantar að vekja þjóðina um þann vanda sem er að glíma í þjóðfélaginu. Um 26 þúsund manns eru eldri en 60 ára. Ef við t.d. reyndum að byggja svona fyrir tíunda partinn myndu losna milljarðir úr kerfinu, ungt fólk fengi íbúðir í grón- um hverfum og foreldrar fengju örugga vist á efri árum. Sparnaður þjóófélags- ins yrði gífurlegur, sýnist mér," segir Ásgeir Jóhannes- son. Ásgeir sem hefur eytt ómældum stundum um árin við að koma þessu hjartans máli í gegn talar af mikilli reynslu „úr kerfinu“. Hann var m.a. sveitarstjórnarmaður i Kópavogi í 12 ár og hefur verið forstjóri Innkaupastofn- unar rikisins i fjölmörg ár. Það er eftirtektarvert að hann skuli fullyrða að framkvæmd eins og þessi að byggja yfir eldra fólk sé miklu betur komið i höndum félagasam- taka i samvinnu vió riki og sveitarfélög, en að hið opin- bera standi að henni — og það sé ekki heldur á valdi þess. Hér er sólsetrið yndislegt Sigrún Baldvinsdóttir og Erlingur Jóhannsson fluttu inn 19. des. „Það er svo und- arlegt,“ segir Erlingur, „að áætlanir standast allar. Við gengum frá samningi 1986 og þá var okkur sagt að við gætum flutt inn eftir 18 mán- uði. Og það stóðst.“ Þau sögðust hafa verið stálheppin að frétta af þessu, því að þeim hafi ekki litist á það sem til boða var í Reykja- vík. Hjónin höfðu leitað að húsnæði um nokkurn tíma og þótti illt í efni, þar til þetta tækifæri gafst. Sigrún segir að hér vanhagi ekki um nokkurn hlut nema strætó. Þeim þyki slæmt að strætis- vagn gangi ekki heim á hlað. í dag er nokkur spölur í vagninn. „Þegar vorar kemur hugur í okkur hjónin,“ segir Sigrún „og þá langar mann að ferð- ast til Reykjavikur." Erlingur og Sigrún höfðu búið í Reykjavík faldarfjórð- ung þar til þau fluttust í Kópavoginn, en bæði eru þau ættuð úr Þingeyjarsýslu og stunduðu búskap fyrir norð- an áður en þau fluttust suð- ur. Þeim finnst mikið öryggi í því að eiga hvenær sem er aðgang að heilsugæslu og getað kallað á hjálp í gegn- um símakerfið í húsinu ef eitthvað kemur upp á. Sigrún og Erlingur eru komin á Hjónin Sigrun Baldvinsdóttirog Erlingur Jóhannesson fluttu inn í Sunnuhiió 19.des. 1987. „Þaðersvo undar- legt að áætlanir hafa allar staðist,“ sagði Erlingur. níræðisaldur en þykjast viss um að þau yngist „töluvert" eins og Sigrún orðar það, við að komast í slíkt fyrirtaks- húsnæði. Sigrún segist meira að segja hafa vanist eldhúsinu strax, þó að henni hafi þótt undarlegt hvað plássið var mi'nna en í 4ra herbergja íbúðinni sem þau bjuggu í í Reykjavík. „Okkur þykir vænt um út- sýnið og hér er sólsetrið ynd- islegt,“ segir Sigrún og Er- lingur tekur undir með henni að hér sé gott að vera. Stofan á heimili Erlings og Sigrúnar. Málverk á veggjum og myndir úr heimabyggð Folk hræðist að fara á elliheimili Myndirnar á veggjunum í ibúðinni þeirra Björns Jóns- sonar og Maríu Hafliðadóttur vitna m.a. um búsetu í Paris. Þar var Björn starfsmaður al- þjóðaflugstofnunar, en márg- ir kannast við hann úr svif- flugi og áralangri vist hjá flugyfirvöldum á íslandi. Hingaö í Sunnuhlið fluttust hjónin síðast í janúar s.l. og una vel sínum hag. „Margt fólk er hrætt við að fara á elliheimili," segir María „og þess vegna er gott að svona kostur sé fyrir hendi handa eldra fólki. En þaó er ekki gott að fara seint á svona stað.“ Björn tekur und- ir með Maríu og segist sann- færður um að með tímanum muni þetta einkar álitlegt fyr- ir fólk sem ekki sé farið að eldast um of. „Mér finnst sér- staklega vel að öllu staðið hér,“ segir Björn. „Fjármögn- unin hefur mikla ko'sti. Við gátum selt einbýlishús okkar í Laugateig í Reykjavík án þess að hafa áhyggjur af framhaldinu. Bankinn sér um að tryggja greiðslurnar til sjálfseignarstofnunarinnar hér. í okkar tilfelli féllu greiðslur líka vel saman.“ María er ekki alveg eins sátt við flutningana og Björn. Hún hefði kosið að geta verið meira miðsvæðis, eins og þar sem þau bjuggu. „Ég hringdi I morgun til Reykja- víkur til að forvitnast um veðrið þar,“ segir María. „Mér finnst það eiginlega hálfgerð föðurlandssvik að flytja úr Reykjavík." En Maria fellst á að betri samgöngur með strætisvögnum tengdu þau betur við Reykjavík og færðu þau meira miðsvæðis. Henni finnst mikið öryggi að búa i „Þetta er til fyrirmyndar," segir Björn Jónsson um ibúöirnar. Björn býr i 3ja herbergja ibúð með konu sinni, Mariu Hafliðadóttur. Maria i eldhúsinu Björn i bókastofu íbúð eins og þessari og hún sé björt og rúmgóð. „Hér hef- ur maður alla kosti en enga galla,“ segir Björn, „og ef við þurfum að flytja er það ekk- ert vandamál, peningarnir eru í öruggum höndum í bankan- um i virði íbúðarinnar. Þetta er til fyrirmyndar.“

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.