Alþýðublaðið - 09.04.1988, Page 21

Alþýðublaðið - 09.04.1988, Page 21
Laugardagur 9. apríl 1988 21 hyggjunnar, háöur hugsana- venju kónglegra valdsmanna. Mark og miö þess hugsunar- háttar var aö ná valdi, halda völdum, sýna vald og beita þvi. Byggingar þessara manna voru fyrst og fremst minnismerki um magt og mikilleik, — þeim sjálfrátt eöa ósjálfrátt, hver sem teiknaði. Guöjón Samúelsson var Ijúflingur, er sagt, óþreyt- andi að breyta og viljugur að skilja þá sem hann vann fyrir. Hann hentaði þvi þeim sem fóru með völd, til aö byggja minnismerki fyrir þeirra pólitík. Þaö er fyrst nú, á síðustu árum sem arkitektar eru farn- ir að nota hinar sveigðu mjúku Ifnur, — í skipulag garða og rétt örlítið í bygg- ingar. (Laugardalshöll). Tvær kirkjur í Reykjavík bera hinn kristilega og kvenlega þokka sem segir: „Komið til mín...“: Maríukirkjan í Breiðholti og hin hógláta Breiðholtskirkja sem hreykir sér ekki á hæð yfir fólkið heldur situr settleg á sléttu, innanum umferðar- eril og klunnalegar mamm- onshallir nútímans svo- nefnda, reiðubúin að taka í skjól hvern þann sem i háska kynni að lenda. Það er jafn- aðarmannapólitík nútímans. Sjálfshól í þakkcir stað! Þótt það væri fyrst og fremst uppgangur jafnaðar- manna í Danmörku og atfylgi þeirra sem færði íslending- Líitáhi „Sagt er að Guðjón Samúelsson --------------------------------------------- hafi skapað islenskan byggínga- stil. Það er rangt." s um lýðveldið, þá þótti is- lenskum stjórnmálamönnum sér henta betur að hrópa, að þeir heföu náð landinu úr höndum Dana með yfirburð- argarpskap sinum einum, heldur en að þakka fyrir sig. Það er því ekki listræn hugs- un Guðjóns ein sem ræður svip bygginga þeirra, sem við hann eru kenndar. Það er ekki síður valdsgleði þeirra sem yfir verkum hans réðu og, ef til vill, beittu Guðjóni fyrir sig, i baráttunni við að knésetja menn með annan smekk. (Hvaö varð um aðra arkitekta þessa tíma?) Opin- ber hús þessara manna eru á móti jafnaðarmennsku. (Þótt ágæt listaverk séu). Þau bjóða ekki velkomna alþýðu manna. Þau gnæfa yfir hana. Hinu kvenlega og þokkafulla og mjúka, — sem er megin- einkenni lands vors og þjóð- ar, skipa þau, ströng og staf- fírug eins og karlinn, slopp- inn undan vendi kóngsböð- ulsins; „Niður á kné með þig kona! Hver er húsbóndinn hér“. Þessvegna höfðu sósíal- iskt sinnaðir menn löngum óyndi af þessum byggingum, gjarnan án þess að gera sér grein fyrir ástæðunni. Oftast sögðu þeirf klanfaskap: „Þær eru Ijóta . Innst inni datt engum það í hug. Þær eru fallegar. En boðskapur og svipmót þeirra var á móti okkur. Það er ekki lýðræðisstíll. Það er drottnunarstíll.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.