Alþýðublaðið - 20.08.1988, Síða 5
Laingardagur20. ágúst 1988
FRÉTTIR
j Presti falinn rekstur KRON og Miklagarðs j
RADNING FORSTJORA
RÍDUR SAMEININGAR
„Það er ekki nokkur leið að
svara þessu strax. Ég sagði
stjórninni, þegar búið var að
ákveða þetta, að ég liti ekki á
þessa ráðstöfun til mjög
langs tima. Þetta er ekki nýtt
starf sem ég hef fengiö,
heldur er verið að launa
stjórnarformanninn,“ sagöi
Þröstur Ólafsson, stjórnarfor-
maður KRON og Miklagarðs,
við Alþýðublaðið í gær, en
stjórn KRON ákvað að fela
Þresti formlega yfirumsjón
með starfsemi félagsins
meðan unnið verður að sam-
einingu og endurskipulagn-
ingu rekstrar fyrirtækjanna.
Stjórnin ákvað á fundi sinum
að ganga fyrst frá sameining-
armálum, áður en ráðinn yröi
nýr framkvæmdastjóri.
Þröstur sagöi að meö
þessari ákvörðun væri því
nánast slegið á frest um
óákveðinn tíma að ráða nýjan
framkvæmdastjóra. „Þaó var
ákveðið að ganga frá samein-
ingarmálum áðuren farið
yröi að ráða framkvæmda-
stjórann,“ sagði Þröstur.
Fyrst um sinn, a.m.k.,
munu Ólafur Stefánsson,
kaupfélagsstjóri KRON, og
Jón Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Miklagarðs,
gegna störfum áfram að
sögn Þrastar.
Frá og meö 1. september
hefur sérstök rekstrarstjórn
með höndum daglegan rekst-
ur undir forystu Þrastar
stjórnarformanns.
Reiknað er með að fyrsta
áfanga sameiningarinnar
verði lokið um áramót og að
málið verði í höfn fyrir aðal-
fund KRON á næsta ári.
Þröstur Ólafsson: Lit ekki á þessa
ráðstöfun til mjög langs tima.
Lánskjara vísitalan
1,67% hækkun
í ágúst
Lánskjaravisitala hækkar
um 1,67% í ágústmánuði og
umreiknað til árshækkunar
svarar það til 22% veröbólgu
en miðað við hækkanir vísi-
tölunnar siðustu þrjá mánuði
er árshækkun lánskjaravísi-
tölunnar 45,9%
ÁBYRGÐAR-
LAUST TAL
segir Þórður Ingvi
Guðmundsson,
framkvœmdastjóri
kaupleigufyrirtœkisins
Lindar hf, um ummœli
Olafs Ragnars um
ógœtilega fjárfestingu
kaupleigufyrirtœkja.
Ummæli Ólafs Ragnars
Grímssonar, formanns Al-
þýðubandalagsins, um að tvö
fjárfestingarfyrirtæki standi
nú mjög tæpt og geti ekki
staðið við skuldbindingar
sinar hafa vakið mikla at-
hygli. Ólafur segir að fjár-
mögnunarfyrirtæki hafi aö
undanförnu orðið að yfirtaka
30—40 fyrirtæki og fjár-
magniö liggi nú ávöxtunar-
laust „á lager“ eignarleigunn-
ar.
Ólafur hefur ekki viljað
nefna hvaða fyrirtæki hér er
um að ræða. Fjögur eignar-
leigufyrirtæki starfa nú í
Reykjavík og segir Þórður
Ingvi Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Lindar hf., í
samtali við Alþýðublaðið að
þessi ummæli Ólafs geti ekki
átt viö Lind þar sem Lind hafi
engum kaupleigusamningum
tapað á tveggja ára ferli
sínum. Aðeins hafi tvívegis
þurft að sækja bíla sem
leigðir voru á starfstímabil-
inu. „Þeir voru seldir
skömmu síðar og því bárum
við ekki skarðan hlut frá
borði. Vanskil hafa verið inn-
an við hálft prósent, sem er
mjög gott hlutfall. Við gerum
hins vegar ráð fyrir þvi að
vanskil fari vaxandi vegna
erfiðleika fyrirtækja. Það er
mikill ábyrgðarhluti að halda
þessu fram eins og Ólafur
gerir án þess að nefna fyrir-
tækin á nafn, því hættan er
sú að nú fari kaupendur að
kippa að sér hendinni, sem
getur leitt til keðjuverkunar,"
segir Þórður Ingvi í samtali •
við Alþýðublaðið.
Hljómplata landsliðsins var kynnt á Sprengisandi i gær, en veitingastaðurinn er einn fjölmargra styrktaraðila HSÍ. A-mynd/Magnús Reynir.
Handboltalandsliðið
EKKI SUNGIÐ SITT SÍÐASTA
Landslið íslands í hand-
bolta hefur ekki sungið sitt
síðasta. Framundan er mikil
törn í æfingum fyrir Ólympíu-
leikana, en á þriöjudag kemur
út hljómplata með söng pilt-
anna og Ladda, sem hefur
aðstoðað dyggilega.
Grunntónninn að lögunum
þremur, sem eru á plötu
Steinaútgáfunnar, er saminn
af Valgeiri Guðjónssyni. Ef
dæmið gengur upp verður
hagnaöur af plötunni 1,5—2
milljónir króna, sem munu
renna óskiptar til handknatt-
leikssambandsins.
Garðabœr
BYGGJA 47 IBUÐIR FYRIR ALDRAÐA
í Garðabæ var stotnaö
byggingarfélag 10. ágúst sf.
til að hefja byggingu ibúða
fyrir aldraða Garðbæinga.
Hefur verið ákveðið aö hefja
byggingu 47 íbúða fjölbýlis-
húss og verður stærð ibúö-
anna frá 60—100 term.
„Áður hafði starfað undir-
búningsnefnd til aö kanna
möguleika á að byggja íbúðir
fyrir aldraða eins ódýrt og
kostur er og er ákveðið að
hefja byggingarframkvæmdir
þegar i haust við miðbæinn,1'
segir Einar Guðmundsson,
formaður félagsins.
Að sögn Einars er stefnt
að því að íbúðirnar verði til-
búnar eftir 14 mánuði. Sagði
hann jafnframt að ekki væri
búið aö ganga frá fjármögn-
unarhliðinni endanlega, en
það væri Ijóst að þetta fyrir-
komulag gerði öldruðum
kleift að eignast þessar íbúð-
ir mun ódýrar en á frjálsum
markaði.