Alþýðublaðið - 20.08.1988, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 20.08.1988, Blaðsíða 6
6 Laugardagur 20. ágúst 1988 Asmundur Stefánsson um starfið í stjórnmálaflokkunum Þrátt fyrir mikla umrœðu um efnahagsmál og bráðaaðgerðir er verkalýðshreyfingin býsna afskipt. Hvers vegna er frekar leitað ráða hjá forstjórunum? Róa verkalýðs- foringjarnir einir, því að umbjóðendur hafa lítinn áhuga á kaupi og kjörum? Hvernig heilsast Alþýðubandalaginu? Er Alþýðuflokkurinn að verða „ábyrga íhaldsaflið“ í ríkisstjórninni? Ásmundur Stefánsson forseti ASJ er tekinn tali. Hann hefur verið innan- búðar í Alþýðusambandinu síðan 1974, fyrst sem hagfræðingur en síðar sem œðstráðandi. í FRIÐI FRÁ UMRJÓÐENDUM „Kröfumar til ASÍ eru miklu víótækari en 1974. Það er ætlast til meiri þjónustu af hálfu Alþýðusambandsins á öllum sviðum, og þar er ætl- ast til að við skiptum okkur af fleiru en fengist var við '74. ASI hefur víðtækari þjón- ustuskyldu í dag. Samtímis hefur starf verka- lýðsfélaganna breyst mjög á þessum tíma, og ekki allt til bóta. Það er til dæmis Ijóst að það er miklu erfiðara að fá fólk til sjálfboðaliðastarfa af hvaða tagi sem er. Þetta er ekki bara í verkalýðshreyfing- unni. Þetta þekkja menn ekki síst I pólitísku flokkunum, þar sem þátttakan í þvl starfi sem þar fer fram hefur snar- minnkað. Við i verkalýðshreyfingunni verðum kannski meira vör við það vegna þess að allt okkar kerfi byggir meira á beinni þátttöku félagsmanna í ákvarðanatöku en annaó fé- lagsmálastarf. Þeir sem eru kosnir til að sinna pólitísku starfi hjá stjórnmálaflokkum geta sinnt því nokkuð í friði frá sinum pólitísku umbjóð- Viötal Þorlákur Helgason endum á meðan þeir eru í embætti. Hvorki þeir né um- bjóðendurnir óska eftir skoð- anaskiptum á kjörtímabilinu — en í verkalýðshreyfingunni ganga allar meiriháttar ákvaróanir fyrir félagsmenn- ina. Það gildir sama hvort lýst er yfir verkfalli, samning- ar samþykktir eða hvort ákveðið sé að kaupa hús undir félagsstarfið eða skrif- stofurnar.“ — Af hverju ættu stjórn- málaflokkar aö starfa öðru vísi en verkalýðshreyfingin? „I verkalýðshreyfingunni er gerð krafa til beinna lýðræð- islegra ákvarðana, en það er engu slíku til að dreifa i stjórnmálaflokkunum. Þar er verkaskiptingin ósköp skýr, sumir kjósa en aðrir fram- kvæma. Stjórnmálaflokkur getur lif- að gjörsamlega án sinna um- bjóðenda að öðru leyti en því að hann þarf á þeim að halda í kosningum. Þess utan skipta þeir hann engu máli, og stjórnmálaflokkarnir vinna nánast allir út frá því sjónar- miði. Ég sé ekki að Kvenna- listinn sé mikið öðru vísi en aðrir í þessu efni, hann er með þinglið með tiltrú hjá ákveðnum hópi fólks, og vinnur út frá því. Kjósendur Kvennalistans koma fáir nærri starfi flokksins. Verkalýðshreyfingin getur aftur á móti ekki skotið sér undan þessari beinu lýðræð- islegu skyldu." — Eru verkalýðsforingjar ekki gagnrýndir fyrir of lítil tengsl viö sitt fólk? „Jú og það sérstaklega af stjórnmálamönnunum. Auðvitað eru til forystu- menn sem eru lítið fyrir það að hlusta á það sem fólkíð vill. Það er hins vegar stærra vandamál, þegar fólk fer að ætlast til þess að forystu- mennirnir vinni eins og kjörn- ir fulltrúar á þingi eða í bæj- arstjórnum. Eg verð var við þetta, þegar ég leita álits fólks á vinnustöðum. Þá er ekki óalgengt að svarið sé: Til hvers helduröu að þú hafir verið kosinn? Er það ekki þitt að segja okkur hvað á að gera? Menn eiga við þennan vanda að etja í félagsstarfi í vaxandi mæli. Það er eins og hið borgaralega lýðræði, þar sem einn er kosinn til að gera, sé aö færast yfir á fleiri svið samfélagsins. Verkalýðs- hreyfingin á í vandkvæóum með að finna svar við þessu. Annars vegar höfum við reynt að fara út á vinnustaðina, til að ná betra sambandi. Hitt er aukið fræðslustarf, einkum fræðsla trúnaðarmanna." Á EINNI HENDI — Hefur þeffa vandamál orðið áþreifanlegra með tim- anum? „Það er stig af stigi aó færast í þá áttina að stjórnar- menn færist undan verkefn- um, vísi á formann sem oft er jafnframt starfsmaður félags- ins. Þá blasir sú hætta við að einn maöur sitji á upplýsing- um og stjórnin komi aðeins saman til að samþykkja gjörðir formannsins. Þessi þróun eráberandi i félögunum, og ég óttast mest að þessi undansláttur félaga frá því að taka að sér ábyrgðarstörf og jafnframt erfiðleikar með að halda trún- aðarmönnum séu orðnir hreyfingunni fjötur um fót. Sú togstreita sem myndast þegar menn taka á sig ábyrgðarstörf fyrir verkalýðs- félagið nær oft inn í fjöl- skyldurnar. Sá sem tekur að sér verkefni fyrir félag verður oft af launum fyrir eftirvinnu og það samrýmist oft ekki þörfum heimilisins. Þetta getur bitnað enn frekar á konum, sem gegna þremur hlutverkum; forræði heima, vinnu og ábyrgðarstarfi." — Er þetta ekki alvarleg lýsing á verkalýðshreyfing- unni; Almennt áhugaleysi launafólks og þróun til eins- mannshreyfingar í stjórnum félaganna? „Þeim mun meiri er ábyrgðin innan hreyfingarinn- ar. Hún er lýðræðislega upp- byggð og krefst beins lýð- ræðis af fólkinu og verður að glíma við áhugaleysið. Þetta er auðvitað harður dómur yfir hreyfingunni og út af fyrir sig yfir okkur öllum í þjóðfélaginu. Ég lít svo á að flóttinn frá lýðræðinu sé alvarlegasta mein samfélags- ins.“ FYRIR FRAMAN LIFANDI MYNDIR „Það éru fámennari og fá- mennari hópar sem taka ákvarðanir innan stjórnmála- flokkanna. Ef þú tekur Al- þýðuflokkinn (eða hvaða flokk sem er) í dag og fyrir 15 árum þori ég að fullyrða að fólki í virku starfi hefur fækk- að þannig að það er hrein- asta hörmung. Þessi stjórn fárra manna leiðir ekki til sömu þversagnar innan stjórnmálaflokkanna og það gerir í verkalýðshreyfing- unni.“ — Er þetta þátttökuleysi til vitnis um að lýðræðis- n

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.