Alþýðublaðið - 20.08.1988, Side 12
12
HLATURINN
W
(lengir lífið)
w
w
21. október eru liðin 20 ár frá innrás
Varsjárbandalagsríkjanna í Tékkó-
slóvakíu. Þar með draumurinn um
meira frelsi að engu. Þegar tilveran er
grá gctur gálgahúmorinn blómstrað.
Hér fyigja nokkrir bitar úr hversdags-
lífinu í Prag. Tékkar eru slóvakar og
sagðir hafa húmórinn í lagi:
★
Brú var byggð í Prag. Til þess að
reyna styrkleika hennar voru 2000
sovéskir dátar látnir ganga yfir.
Þyldi brúin þá stæðist hún prófið.
Ef hún héldi þeim ekki — þeim mun
betra.
★
í lestarklefanum sitja Tékki,
sovéskur hermaður, ung stúlka og
gömul kona. Lestin brunar inn í
göng og þá heyrist fyrst koss og
síðan eins og einhverjum sé gefið
utan undir.
Þegar lestin kemur út úr göng-
unum, hefur Rússanum auðsjáan-
lega verið gefið vel utan undir.
Hann hugsar sem svo: Klár gæi,
kyssti stelpuna og sló mig sfðan
utanundir.
Gamla konan hugsaði: Gott hjá
ungu stúlkunni að slá bölvaðan
dátann.
Unga stúlkan hugsaði: Algjör
bjáni, hugsið ykkur að kyssa gamla
konu I myrkrl.
Tékkinn hugsar: Snjöll hugmynd.
Kyssa sjálfan sig á hendina og reka
Rússanum bylrhingshögg.
— Tékkóslóvakia er hlutlausasta
land I heimi. Þar blanda menn sér
ekki í eigin mál.
★
Tékkinn má óska sér þrisvar.
— Ég óska þess í fyrsta lagi að
Kinverjar leggi Prag undir sig. í öðru
lagi óska ég þess að Kínverjar leggi
undir sig Prag. í þriðja lagi óska ég
þess að Kínverjar leggi undir Prag.
— Þettavarundarlegósk, félagi.
Viltu virkilega að þeir komi þrisvar
sinnum og hernemi Prag?
— Já, vegna þess að þá fara þeir
þrisvar þvert í gegnum Sovétríkin.
★
— Hvers vegna hafa Rússarnir
verið svona lengi í Tékkó?
— Þeireru að leitaað manninum
sem bað þá að koma.
★
Eftir innrás Sovéthers lagði Vasil
Bilak Moskvuvinur til að Tékkó-
slóvakía gengi í eina sæng með
Sovét sem 16. sovétlýðveldið. Til-
laga Bilaks var borin undir atkvæði
i miðstjórn tékkneska kommúnista-
flokksins, og greiddi Bilak einn at-
kvæði með tillögunnl.
Daglnn eftir gat að llta I Prövdu
austur i Moskvu:
— Tékkneski kommúnistaflokk-
urlnn samþykkti samhljóða að sam-
einast Sovétrlkjunum.
— Hvaða leikhús er stærst i
heimi?
— Tékkneska þingið.
— Hvers vegna?
— Jú, þinghúsið er i Prag, en
leikhústjöldin I Moskvu.
★
Tékkneski smábóndinn húkti við
brunninn og tautaði:
— Tuttugu og tveir, tuttugu og
tveir.
Rússa bar að og gerðist forvitinn.
— Hvað er um að vera?
Bóndi svaraði engu en tautaði
áfram:
— Tuttugu og tveir, tuttugu og
tveir.
Rússinn klkti ofan í brunninn, en
þá sparkaði bóndi I afturendann og
Rússinn féll ofan f.
— Tuttugu og þrir, tuttugu og
þrír.
★
í tékkneska útvarpinu eru fréttir
flokkaðar i þrennt! Heilagan sann-
lelk, llklegar fréttlr og helbera lygi.
í fyrsta hóþl er klukkan. í annan
hóp flokkast veðurfréttir, en i þann
þriðja allar aðrar fréttir.
★
— Varstu á slðasta flokksfund-
inum i Prag?
— Nei, en ef ég hefði vitað að
það var sá slðasti hefði ég áreiðan-
lega látið sjá mig.
Laugardagur 20. ágúst 1988
UPF5ŒRAN MUh
SANYRKJOBðlMU
VI&L0SNUMVI€
S0SIAC(SMAN5'.\
V0R OOr HAUST fl
RAD HEdHÍVAlO
S05WU5MI
ME© MtNHsS